Vísir - 24.01.1967, Page 12
'ouröi sínum til frekari áíherzlu.
„Ég mótmæli, yöar hágöfgi. Vitn
ið leyfir sér aö kveða upp dóm í
málinu.“
Edna Lampson hvessti augun á
verjandann. „Harold,“ mælti hún,
hneyksluð og' ávítandi.
Harold Lafnpson draup höföi. „Já
eiskan?"
„Hvað oft hef ég sagt þér að
grípa ekki fram í, þegar ég tala?
Milljón sinnum, það er ég viss um.
Þú ert tomæmur, Harold.“
„Já, en góða mín ...“ reyndi Har
old Lampson aö malda í móinn.
„Þegiðu," kallaði Edna yfir þver
an réttarsalinn úr vitnastúkunni yf
ir að borði verjandans. „Eins og þú
vitir ekki, að hann hefur myrt
blessaöa konuna? Þú veizt það eins
vel og ég ...“
„Edna, fyrir alla muni..
Ejn frú Lampson var ekki á þvl
að láta í minni pokann fyrir verj-
andanum, herra Lampson.
„Og eitt ætla ég að segja þér,
Harold Lampson. Ef þú ætlar að
halda uppi vöm fyrir viðuritennd-
an morðingja, þá vaknarðu áreiðan
lega við það einhvem morguninn,
að þú hefur verið sviptur málfærslu
réttindum. Sviptur öllum réttindum
... einmitt! Og hvað verður þá um
okkur, konuna þína og blessuð
bömin okkar ...“
Og svo framvegis ... og svo fram
vegis...
Dómarinn baröi i borðið en Edna
lét sér ekki segjast.
... eða nágrannamir? Hvað
skyldu þeir hugsa og segja?“ kall-
aöi hún yfir öxl sér, þegar réttar-
ÞÝZKAR ELDHÚSiNNRÉTTINGAR
úr harSpIasti: Format innréttingar bjóða upp
á anna'S hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar meS baki.og borSplata sér-
smíðuS. Eldhúsið fæst mcð hljóðeinangruð-
um stúlvaski og raftækjum af vönduðustu
gerð. - ScndiS eða komið með mól af eldhús-
inu og við skipulcggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum frá Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmála og . _ _
lækklð byggingakostnaðinn. ki
HÚS & SKIF .hf VAUOAVIOI II • SIUI IISIS
vörðurinn leiddi hana út úr stúk-
unni.
„ ... og er það álit yðar, herra
læknir, að þessar töflur, sem á-
kærði fékk hjá yður ...“
„Alka-dexa-benza-therea-pot-a-
zellamine ... “ sagöi dr. Bentley.
„Þekktara undir nafninu ...“
„Ærslatöflur ...‘
„Þakka yður fyrir, herra lækn-
ir. Er það álit yðar. að umræddar
töflur geta reynzt hættulegar við
viss skilyröi?'
„Einungis ef þeirra er neytt á-
samt áfengi,“ svaraði dr. Bentley.
„Annars eru þær gersamlega mein-
lausar. Maður verður dálítið kát-
ari og örari satt er það ... tekur
kannski lagið ... en algerlega mein
lausar...“
„En... sé þeirra neytt með á-
fengi?“
Dr. Bentley fómaði höndum til
himins.
„Gerið þér í raun og sannleika
ráð fyrir, að við trúum þessu,
herra Firbank?" spuröi saksóknar-
inn.
„Já, herra minn,“ svaraði Char-
les, hinn alfullkomni þjónn.
„Að herra Ford hafi einungis ver
iö aö prófa morðaðferð fyrir teikni-
þátt sinn?“
Charles hallaöi sér aftur á bak
í stólnum í vitnastúkunni og
brosti breitt, þegar hann komst að
raun um hvað saksóknarinn var
ljóngáfaður. „Einmitt, herra minn.
Þér skiljið þetta til hlítar, herra
minn,“ sagði hann. „Herra Ford
mundi aldrei detta í hug að láta
Bash Brannigan aðhafast neitt það
sem hann hefði ekki áður fram-
kvæmt sjálfur.“
„Ekki heldur að kála konu sinni?“
spurði saksóknarinn.
Þeirri spumingu lét Cha,rles ó-
svarað.
Saksóknarinn hélt áfram. „Hefur
yður nokkum tíma dottiö þaðií
hug, herra Firbank, að ef til vill
hafi herra Ford viljað koma því
inn hjá yður, að þetta væri ein-
ungis ...“ og háðið í rödd saksókn-
arans var eins og hárbeitt sverös-
egg, ... „einungis prófun?“
„Hvað eigið þér viö, herra minn?“
„Þaö var orðið myrkt af nóttu,
ekki satt?“ spurði saksóknarinn.
„Jú, herra minn.“
„Samkvæmt yöar eigin frásögn,
urðuö þér vitni að nefndum atburð-
um og tókuð ljósmyndir af þeim
út um 'hótelglugga. Þér voruð sem
sagt svo langt í burtu, að yður var
ógerlegt að sjá hvort þaö var í
rauninni sýningarbrúöa, sem herra
Ford kleif meö upp á þakið þessa
örlagaríku nótt — eöa frú Ford
sjálf?“
Áheyrendumir stóöu á öndinni.
Dómarinn barði í borðiö.
„Eða hefðuð þér getað séð mun
inn, þaöan sem þér stóðuö meö
myndavélina?" spuröi saksóknarinn
„Þess vegna getur það allt eins
hafa verið líkami frú Ford, sem
herra Ford bar á herðum sér og
gróf undir steinsteypuhrærunni...“
„Nei, herra minn, það er óhugsan
legt...“ svaraöi Charles og virt-
ist móðgaður. En smám saman var
sem einhver önmir hugsun næði
V í SIR . Þrlðjudagur 24. janúar 1967.
T————1
tökum á honum, fyrst var eins og
hann væri enn í nokkrum vafa, en
svo léttist á honum brúnin ,og hann
fór að brosa — 1 fyrsta skipti eftir
að hann tók sæti í vitnastúkunni.
„Haldið þér það í raun og veru,
herra minn? Já, auövitað! Þér haf-
ið lög að mæla, herra minn! Því-
líkur erkiasni gat ég verið, að
sjá þetta ekki str?-? Vitanlega
gerði hann það ...“
Charles varð svo mikið um að
hann spratt úr sæti sínu og hraðaði
sér yfir til herra Fords en áheyrend
umir f salnum ætluðu bókstaflega
að ganga af göflunum.
„Til hamingju, herra minn ... Ég
óska yður innilega til hamingju,
herra minn,“ mælti hinn alfull-
komni þjónn og sló á öixlina á fyrr
verandi húsbónda sínum. „Frábær-
lega snjallt, herra minn, stórkost-
lega snjallt! Ég verð að viðurkenna
að yður tókst að blekkja mig ...
Getið þér gert yður þaö í hugar-
lund, herra minn, að ég ... að ég
hélt aö það væri sýningarbrúðan!
Það lítur út fyrir að ég sé ekki eins
skarpskyggn og ég hef haldiö, herra
minn!“
Það lá við sjálft, að þetta væri
meira en herra Ford fengi afborið,
enda nóg samt. „Fyrir alla muni,
Oharles ... þér hafið ekki hug-
mvnd um hvað þér eruð að segja
Þjónninn alfullkomni lét sér að
minnsta kosti efcki segjast. „Herra
minn, þér getið ekki ímyndað yður
hve þetta gleður mig! Nú segi ég
tafarlaust upp vistinni hjá herra
Rawlins og kem aftur til yðar f
vikulokin. Ég óska yöur enn emu
sinni til hamingju, herra minn ...
þetta er ...“
Gharles heföi getað haldið þann
ig áfram í það óendanlega, ef haim
hefði ekki allt í einu veitt þvf at-
hygli hve óeðlilega hljótt var orðiö
í réttarsalnum.
‘ Óttasvipur kom á'andlit honum.
AsD6MáfinrL réiá”hátfðlega úr sæti
sfnu. j,Þákká‘ ýðúr fyrir, herra Fir-
bánk,“ sagði hann. „Þetta er nóg.“
Þvi næst sneri hann sér að kvið
dómendum.
„Nú verður hlé á réttarhöidun-
um,“ tifkyrmti harm.
Það var farið að rökkva úti fyr-
ir klefaglugganum. Herra Pord sat
í hnipri á bálki sínum, herra
Lampson æddi fram og aftur inn-
an þröngra veggjanna. Þótt ótrú-
Iegt mætti virðast, virtist HaroM
Lampson ánægður yfir gangi máls-
ins.
„Þetta er alls ekfci svo bölvaö,"
Stanley,“ sagði hann. „Þú hefur
ekki neinu að kvíða.“
„Ekki það?“ Rödd Stanleys Ford
var annarlega hljómvana.
Harold Lampson sló hughreyst-
andi á öxl fanganum og lá við
sjálft að hann byði honum vindil.
„Ég held að það komi aíls ekfci
til þess að þú verður sendur í raf-
magnsstólinn," sagði hann. „Ég
mundi álíta að lfkurnar fyrir því
séu ekki nema ein á móti tíu. Og
þú verður að viöurkenna, að það er
alls ekki svo slæmt.“
„Ég get ekki hugsað mér það
betra, Harold ...“
„Persónulega er ég þeirrar skoð
unar, að þú hljótir tuttugu ára fang
elsi. Hvað er ekki svo hræðilegt,
þegar maður hugleiöir þaö nánara
Ég á við það, að þú hefur alltaf
helzt kosið einfalt mataræði og
reglubundið lífemi. ekki satt?"
„Og röndóttur fatnaður hefur
alltaf klætt mig vel.“
„Það gleður mig sannariega, aö
þú skulir koma auga á ljósu hlið-
arnar,“ sagði Harold Lampson. „Og
reyndu lfka að Ifta á málið frá
mínu sjónarmiöi, eins og góður vin
ur og félagi. Fengi ég þig sýknaöan
mutndi Edna ganga af göflunum ...
bókstaflega sleppa sér. Og þú þekk
ir það, hvemig það er aö vera í ná-
vist hennar, þegar hún fer í þann
hgm...“
„Það yrði voðalegt fyrir þig, já,“
sagði fanginn, sem vissi sig þegar
dæmdan.
„Ho-ho-ho ...“ hneggjaði Har-
old Lampson. „Hún mundi ekki
tala viö mig í mánuð. Og þegar
hún er við það heygarðshomið, þá
gerir hún mér hjónabandið að vfti
bókstaflega að vfti...“
„Hjónabandið?“
„Já ... blátt áfram að víti...‘
„Ég skil,“ sagði herra Ford.
Harold Lampson drap öskunni af
vindltaum á gólfið.
„Þú hefur vonandi ekkert við
það að athuga, Stan, er það? Þetta
er steingólf hvort eö er,“ rnælti
Harold Lampson. „Það er eitthvað
I0PEL
CARAVAN #59Í|
Opel Caravan 1959 i góðu lagiji
tll sölu. Nýuppgerð véL ný
dekk. Góðir greíðslnskilmálar. C
Sldpti á minnl bíl koma tS)
gre.ina. Sfmi 41361 eftlr M. 7.,[
HEITAR
PYLSUR
Reymi LANDSmS
BEZTU PTLSUR
ódýrar — Ijúffengar
Verzlunin ÞOLL
Gegnt Hótel Islands
bifreiöastæðinu
____________________
\ tJOJ EVSJ AS VÆ SPEAK,
/VOUR. CJTV MAV BE ATTACKED
BV EVIL MEN INTENT Ohl
STEALING YOUR PRECIOUS T
7 SUN AAETAL / _______/
VOU CAN TELL ME
WHILE WE FEAST/
' THIS IS A
DAV OF XH
FOR LA.
TAR2AN/..
MANY TIMES
HAVE MV
THOUGHTS
BEEN OF ^
SOU’ J
JmU
C-iMfO
„Þettta er dagur gleöinnar, Tarzan. Oft
hef ég hugsað til þín.“ ‘
„Ég kem í sorglegum erindagjörðum. Þú
gétúr ságt mér frá J>ví meðan við höldum
veizlu.“
„Nel, jafnvel núna, meðan við tölum, eru
illir menn kanrtski að undirbúa árás á Op-
ar til aö ræna sólarmálminum ykkar.“
SPflRIÐ TÍMA
RAUDARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
BS-X:.