Vísir - 02.03.1967, Side 1
Mjög lítið um brot á
y er ðstöð vunarlö gunum
57. árg. - Fimmtudagur 2. marz 1967. - 52. tbl.
— Þaö er áberandi hvað fyrir
spurnir um verölag á ýmsum
hlutum hafa aukizt siðan verð
• stöðvunarlögin gengu í gildi í
haust, sagði Kristján Gíslason
verðlagsstjóri í morgun er Vis
Fjögurra manna áhafnar saknað
Unifangsmikil leit aö válbátnum Freyju frá Súöavík — Tvær flug-
vélar, 10-12 bátar og lestarflokkar taka þátt í leitinni
24 tonna línubáts,
Freyju BA 272 frá Súða-
vík er ennþá saknað og
4 manna áhafnar. Ekk-
ert hefur heyrzt til báts-
ins síðan klukkan 16.30
í gær, en þá var hann að
enda við að draga línu
sína og búizt við að
hann legði af stað til
lands. Báturinn var þá
staddur í mynni fsafjarð
ardjúps 6.4 mílur frá
Deild og 7.4 mílur frá
Rit, sem eru tangar sitt
hvorum megin Djúpsins.
Kafald var þá og hvass-
viðri, en sjólítið.
Leit var hafin að bátnum í
gærkvöldi, þegar hann kom
ekki að landi á eðlilegum tíma
og ekkert heyrðist til hans. Þá
var veður tekið að skána. Leit-
inni var haldið áfram í nótt og
í morgun.
Fjórir bátar höfu leit í gær
en í morgun voru þeir orðnir 10-
12 frá öilum verstöðvum í ísa-
fjarðardjúpi. Landhelgisgæzlu-
flugvélin flaug vestur í morgun
meö birtingu til leitar og vél
Vesturflugs á ísafiröi fór einnig
af stað í morgun.
Leitarflokkur frá Súðavík
lagði upp í nótt og leitaði Súða
víkurhlíð og strandlengjuna
alla allt vestur undir ísafjörð
Sveit Slysavarnafélagsins á Bol
ungarvík var reiðubúin að leggja
í Stigahlíðina í morgun og einn
ig voru tilbúnir leitarflokkar frá
Hnífsdal og ísafirði, en skyggrii
var svo gott í morgun að flugvél
ar og skip gátu leitaö með
ströndinni, svo hætt var við aö
senda leitarflokka fótgangandi,
enda er ströndin mjög torveld yf
irferðar.
í nótt fannst Ijósbauja á línu
frá Freyju, þar sem báturinn
hafði síðast gefið upp staðará-
kvörðun í mynni Isafjarðardjúps
og í morgun fann bátur belg frá
Freyju út af Súgandafirði, eða
allmiklu sunnan við staðinn, er
báturinn gaf upp í gær. Þetta
var hið eina sem fundizt haföi
í morgun þegar blaðið fór í
prentun og var þá enn verið aö
leita. Þessir hlutir, sem fundizt
hafa gefa ekki mikjar vísbend-
ingar, þvx að belgi getur alltaf
slitið upp eða tekið út af bátum
þegar hvasst er.
Vélbáturinn Freyja er 11 ára
gamall eikarbátur -24 tonn að
stærð, smiðaður i Neskaupstað
1956. Hann hefur að undanförnu
stundað línuveiðar frá Súðavík.
ir spurði hann um framkvæmd
verðstöðvunarinnar. — En að
þvf er vlð getum bezt séð virð
ist þetta allt ganga skaplega
fyrir sig og Iítið vera um brot
gegn lögunum.
— Fólk kemur með fyrirspurn
ir til okkar um allt milli himins
og jarðar, húsaleigu, opinber
gjöld og vöruverð. Er greinilegt
að almenningur hefur tekið lög
in um verðstöðvunina mjög al-
varlega og vill fylgjast vel með
að þeim sé fylgt, enda er hér
um mjög skýr lagaákvæði að
ræöa. Virðist ekki vera mikið
um að lögin séu brotin og er
ekki hægt að segja að fleiri kær
ur vegna ólöglegs verðlags hafi
borizt eftir að verðstöðvunin
gekk i gildi, en áður.
— Samkvæmt fregnum, sem
ég hef fengið frá samstarfsmönn
um mínum úti á landi virðist
þetta með eðlilegum hætti þar
og lítil sem engin brögð að því
að lögin séu brotin.
J
Óvíst oð vitnið fari utan
Elmo Nielsen málið gerist æ um-
fangsmeira, en þaö var nýlega tekið
fyrir dóm í Danmörku. Málið hefur
teygt arma sína hingað til Islands
eins og kunnugt er, vegna hugsan-
legs faktúrufals og hafa fjölmargir
íslenzkir aðilar verið tengdir við
málið. — Einn þeirra Páll Jónasson
heildsali hefur verið beðinn að
koma til yfirheyrslu og vitnisburð-
ar í Kaupmannahöfn, en honum ber
ekki skylda til þess þótt vonazt hafi
verið eftir því að hann komi. —
f morgun þegar Vísir hafði tal af
Páli sagðist hann ekki vera búinn
að taka afstöðu til þess, hvort hann
færi utan.
Þórður Bjömsson, yfirsakadóm-
ari hélt utan fyrir nokkru til að
fylgjast með málaferlunum I Höfn
en þá var búizt við að þeim myndi
ljúka áhálfum mánuði. Nú er allt
útlit fyrir að það muni dragast
eitthvað.
Kristnitökugígar eins og þeir litu út árið 1960. nú hefur landiö alveg verið sléttað út upp undir hlíðina
til vinstri á myndinni er í eign K.F.U.M. (Þorleifur Einarsson tók myn dina ofan af fellinu til norðurs).
á miðri myndinni. — Skálinn
Kristnitökugígar horfnir ofan i
húsgrunna
Kristnitökugígar á Hellisheiði,
leifar hins sögulega atburðar
þegar hraunið rann, bá er kristni
var lögtekin á Alþingi árið 1000
eru nú að mestu leyti horfnir
af yfirboröi jarðar. — Gígarn-
ir eru að mestu leyti myndaðir
ur gjalli, sem hefur gert þá eftir
sóknarverða fyrir húsbyggjend-
ur meöal annarra, en þeir nota
gjall til að setia ofan í grunna.
Ekki virðist hægt að fá úr því
skorið hver ber mesta sök á
því að þessar sögulegu og þjöð-
fræðilegu miniar eru nú horfn-
ar svo til sporlaust af yfirborði
jarðar, enda munu líklega marg-
ir bera sök á máli.
Eldgjáin, sem Kristnitökugíg-
arnir eru í, er 16.5 km. löng,
liggur frá Eldborg undir Meitl-
um og allt upp fyrir Hveradali.
— Gígarnir sjálfir eru þó að-
eins á hluta sprungunnar, — fyr
ir ofan Hveradali og í Eldborg.
— Það eru gígarnir fyrir ofan
Hveradali, sem hafa orðið fyrir
barðinu á húsbyggjendum og
öðrum. — Menn fóru fyrst að
taka ofaníburð sunnan í fjallinu
sem stendur norðan við veginn,
þegar komið er upp úr Hvera-
dölum, fyrir allmörgum árum og
því langt síðan landslagið var
eyðilagt þar. — En það eru ekki
nema nokkur ár síðan farið var
að taka ofaníburð fvrir norðan
fellið. Fyrst var vart við, að
menn höfðu verið þar um 1960,
en gígarnir þar hafa nú alveg
veriö jafnaðir við jörðu, enda
hefur mikil ágengd verið í ofaní-
burðinn þar. — Þorleifur Einars
son jarðfræðingur, tiáöi Vísi, að
þegar hann kom þar sumarið
1965, hefði heill vinnuflokkur
með iarðýtu unnið við ofaní-
burðartökuna. — Hann komst
ekki aö þvi hverjir voru þarna
að verki, enda skipti þaö ekki
höfuðmáli hveriir hafi eyöilagt
.þessa gíga, heldur aö það hefði
r1verið gert. — Þorleifur sagði,
aö 'aö væri mikiö happ, að Eld
borg undir Meitlum væri ekki
í vegasambandi, því ellegar
væri sennilega einnig búið að
eyðileggja hana.
Hraun úr Kristnitökugígum
greindist i þrjár kvíslar, þegar
gígarnir gusu árið 1000. —
Þurárhraun, sem rann niður *í
Vatnsskarð og Ölfus, Hveradala
hraun, sem rann alla leið út í
Þrengslin, en þriðja kvislin rann
úr Eldborg undir Meitlum og
rann þar sem Þrengslavegurinn
kemur niður á láglendið í Ölf-
usinu.
Það var Þurárhraun, sem
stefndi á bæ Skafta goða þegar
lögfesta átti kristni á Alþingi
árið 1000. — Kom óhugur að
forfeðrum vorum, þegar sendi-
maður flutti þessar fréttir til
Alþ. ígis og allt útlit fyrir um
tíma, að kristni yrði ekki lög-
tekin að sinni. — Þá mælti
Snorri goði Þorgrímsson á
Helgafelli hin frægu orð, sem
í heiðri hafa verið höfð síðan:
„Um hvað reiddust goðin. þá er
hér brann hraun, er nú stönd-
um vér á“. — Mun þetta vera
fyrsta jarðfræöisetning í ísl.
bókmenntum.
Gljafaxi fór
fil Grænlsmds
klukknn 12.30
Rétt fyrir hádegi í dag var á-
kveðið að Gljáfaxi legði af stað
kl. 12.30 í dag til Danmarkshavn
á Grænlandi til að sækja
áhöfn og farbega Glófaxa, sem
skemmdist þar. fyrir nokkru. Var
veðurútlit ekki gott í Meistaravík,
en þar harf vélin að lenda til að
taka eldsneyti.
Veður var gott í Danmarks-
havn í morgun 22 stiga frost og
er það minna frost en þar hefur
veriö undanfarið.
Kviknnði í bíl
Slökkviliðið var í gær kvatt inn
á Suðurlandsbraut skammt frá
gatnamótum Langholtsvegar. Mað-
ur, sem þar var á ferð í Volks-
wagenbifreið sinni, hafði orðið elds
var í bifreið sinni. Var hann að
koma af verkstæði með bílinn, þar
sem skipt hafði verið um vél í
honum. Þegar slökviliðið kom á
staöinn, hafði ökumaður sjálfur
slökkt eldinn. Skemmdir urðu ekki
miklar. Talið er, að rafmagn hafi
leitt út og af því stafað eldurinn.
/