Vísir - 02.03.1967, Blaðsíða 7
V í SIR. Fimmtudagur 2. marz 1967,
7
morgun útlönd í mörgun útlönd í morgun útlönd í raorgun útlönd
iiturlyfjanotkun að verða æ alvar-
fegra vandamál á Norðurlöndum
Eiturlyfjanotkun er að verða al-
varlegt vandamál á Norðurlöndum
eins og i Bretlandi og fleirS lönd-
um. Dagblöðin birta daglega frétt-
ir sem staðfésta þetta, fréttir sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar
sem er í sókn í öllum Iöndunum
gegn eiturlyfjahættunni. Pannig
skýrir Aftenposten í Osló frá því
í fyrradag, að röggsamlegar að-
gerðir rannsóknarlögreglunnar hafi
leitt til bess, að nú séu nær dag-
lega framkvæmdar handtökur
vegna eiturlyfjaneyzlu.
Fyrirsögn fréttarinnar, sem birt
er á forsíðu er: Marihuana er rækt-
að í Noregi.
í fréttinni, sem er frá í gær,
segir: Fjórar ungar manneskjur
voru handteknar í gær og lagt
bann á bréfaskriftir og heimsóknir
til þeirra. Þær voru leiddar fyrir
rétt til yfirheyrslu — sakaðar um
að hafa í fórum sínum eiturlyf,
selja þau eða nota.
Á undangengnum tveimur mán-
uðum hafa yfir 20 ungar manneskj-
ur verið handteknar af lögreglunni
vegna eiturlyfjaneyzlu. Meöal
þeirra var 27 ára gamall stúdent,
sem var í þann veginn að ganga
undir embættispróf. Hann fékk
fjögurra vikna fangelsi. Hann
lét lögreglunni í té upplýsingar,
sem vöktu mikla furðu, þ.e. hann
hefði reykt marihuana ræktað í
Noregi.
Seytján ára gömul stúlka, sem
áður hafði verið í sjúkrahúsi vegna
taugaveiklunar bugaðist alveg f rétt
inum. Hún hefur játað að hafa
reykt marihuana í opinberri hjálp-
arstofnun fyrir konur í Osló. Ann-
ars var 28 ára gamall sjómaður frá
Tanzaniu fangelsaður í viku, m.a.
fyrir að hafa gefið þessari stúlku
marihuana. Og tvftugur sjómaður
var fangelsaður í 3 vikur fyrir að
hafa 200 gr. af marihuana í fórum
sínum. Þetta var í fyrsta sinn, sem
lögreglan var tilneydd að setja
unga stúlku í fangelsi vegna eitur-
lyfjanotkunar. Hún er ákærð fyr-
ir að hafa margsinnis í janúar og
febrúar reykt marihuana f fyrr-
nefndri stofnun meðan hún var þar
sjúklingur. Hún kvaðst hafa verið
undir þungu fargi og ekki verið
þess megnug að hætta.
Aftenposten hefur snúið sér til
stofnunarinnar og fengið þær upp-
lýsingar, að f stofnuninni sé reynt
að hafa eftirlit sem frjálslegast, til
þess að sjúklingarnir hafi ekki á
tilfinningunni, að verið sé að
njósna um þá, og það geti komiö
fyrir, að eitthvað þyki grunsam-
legt við sjúkling, og sé þá reynt
að komast að hvort sjúklingurinn
hafi neytt áfengis, tekið inn töflur
o.s.frv. og í þessu tilfeíli hafi sjúkra
húsið ekki haft vitneskju um, að
stúlkan hafi reykt marihuana.
Weatherley
Bertrand Russell fékk
neitun hjá stjórn Sviss
Brezki heimspekingurinn Bert-
rand Russell fær ekki leyfi svissn
eskra stjómarvalda til þess að taka
fyrir ákæru hans og stuðnings-
manna hans á hendur Johnson
Bandarfkjaforseta fyrir stríðsglæpl.
í tilkynningu svissneska dóms-
málaráöuneytisins segir, að Russell
hafi sótt um leyfi til þess, að „dóm
stóll“ tæki fyrir ákæruna í Sviss
en slíkur „dómstóll" hefði ekkert
dómsvald og ekki til hans stofnað
af yfirvöldum, er til þess hefðu um
boð. Þá segir þar, að svissneska
stjórnin sé þeirrár skoöunar, að
„dómstóllinn" mundi taka stjóm-
málalega afstöðu til Vietnam-deil-
unnar og það mundi varla geta tal-
izt í þágu friðarins.
Sjómaður dœmdur i 18 mán-
aða fangabúðavist hjá Rússum
Enskur sjómaður, John Thom-
as Weatherley, 29 ára var í gær
í Leningrad dæmdur í 18 mánaða
fangabúðavist „við strangan aga“.
Hann var 20. janúar sl. f gisti-
húsí‘f 'L’eningrad mjög drukkinn og
var sakaður um að hafa komið af
Handtaka í New Orleans
- Garrison boðar fleiri
Fyrrverandi ofursta f Banda-
ríkjaher, Clay Shaw, var í gær skip
að að mæta til yfirheyrslu f skrif-
stofu saksóknara í New Orleans,
vegna gruns um þátttöku f sam-
særi til áð myrða John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta.
Yfirheyrslurnar stóðu f 5 klukku
stundir. Aö þeim loknum var mað
urinn úrskurðaður í gæzluvarðhald
en jafnframt tilkynnt að hann
mundi veröa látinn laus gegn 25.
000 dollara tryggingu fyrir, að
hann mæti fyrir rétti, þégar hann
er til kvaddur. Maðurinn hefur ekki
enn sem komið er að mihnsta kosti
verið ákærður.
Garrison saksóknari hefur boöaö
fleiri handtökur. Hann kvað fyllstu
nærgætni hafa verið viðhafða, er
Shaw var yfirheyrður.
Shaw var í Bandaríkjaher í síð-
ari heimsstyrjöldinni og var sæmd
ur franska stórkrossinum' fyrir
vasklega framgöngu.
Hryðjuverkaöldin
I
stað slagsmálum, en þar var brull-
aup haldiö, og nefbrotið brúðgum-
ann. Brúðurin bar, aö hann hefði
verið mjög drukkinn og raunar virð
ast allir hafa verið undir áhrifum
nema hún. Weatherley, farmaður
á brezka skipinu Baltic Merchant,
haföi játað sekt sína.
Sambandsstjórn Suður-Afríku hefur óskað eftir að ræða við forustumcnn allra stjómmálaflokka og sam-
taka í Aden i von um, að það leiöi til þess, að endi verði bundinn á hermdarverldn þar, en þau hafa verið
framin þar daglega vikuin saman, sprengjum komið fy rir i íbúöarhúsum, hús sprengd í loft upp og margir
særzt og beðið bana. Fyrir nokkru var sprengt í loft u pp hús Mackawees fyrrverandi forsætisráðherra, sem
3retar viku frá fyrir tveimur árum, en hann er nú forsprakki samtaka, sem hafa bækistöð í Yemen og
þar mun hann vera, en synir hans 3 vom meðal þeirra sex manna, sem biðu bana af völdum sprengingarinn-
ar. Myndin var tekin eftir að sprengingín varð og sjást á henni brezkir hermenn að leita að sprengjum.
► Látinn er Henry Luce, útgef-
andi bandarísku tímaritanna Times
og Life, 63 ára að aldri.
► Dómstóll í Hamborg hefur
fellt þann úrskurð, að ekki beri
að viöurkenna kröfu Önnu Ander-
son, sem nú býr í Schwarzwald,
um viöurkenningu á, að hún sé dótt
ir Nikulásar Rússakeisara. Kröf-
um hennar í þessu efni hefur marg
sinnis veriö hafnað áður.
► Dr. Theophilus Ebenhazer Dong-
es hefur verið kjörinn forseti Suö-
ur-Afríku í stað Swarts forseta,
sem lætur af embætti 31. maí. Dong
es lét nýlega af störfum sem fjár-
málaráðherra eftir 8 ára starf. Þing
menn beggja deilda kjósa forseta.
Donges hlaut 162 atkvæði, en for-
setaefni stjórnarandstæðinga Pet-
er van de Byl hlaut 52 atkvæði.
Hann er 77 ára og gegndi ráðherra
embætti á sínum tíma í embættis-
tíð Smuts hershöfðingja og forsæt
isráðherra.
► Aukakosningar standa fyrir
dyrum í 6 kjördæmum í Englandi
og mun Verkalýösflokknum sigur-
inn vfs í 3 þeirra. Kosning fer m.a.
fram í kjördæmi Frank Cousins,
fyrr tæknimálaráöherra, nú forseta
Sambands flutningaverkamanna og
hefur flokkurinn þar f kjöri 24 ára
gamlan pilt, sem yrði yngsti þing-
maður í brezka þinginu, næði hann
kosningu.
► Hið kunna brezka skipafélag
P & O býst við að verða að hækka
fargjöld í skemmtisiglingum skipa
sinna vegna aukins tilkostnaðar.
Tekjur félagsins voru meiri 1966 en
1965 að vísu af far- og farmgjöld-
um, en tiikostnaður óx mjög og
skipafélagið tapaði 1-114 milljón
sterlingspunda árið sem leiö vegna
sjómannaverkfallsins.
Pólsk-tékkneskur
vinóttusáttmóli
Nýr vfnáttusáttmáli milli Pól-
lands og Tékkóslóvakfu var undir-
ritaður f gær.
Hann kemur í stað sáttmála, sem
gerður var 1947.
Antonin Novotny forseti Tékkó-
slóvakíu er í heimsókn f Varsjá og
undirritaöi hann sáttmálann ásamt
Josef Lenart forsætisráðherra Pól-
lands. Áður höfðu farið fram við-
ræöur, sem pólskir ráðherrar og
stjórnmálaleiðtogar tóku þátt f.
Biduult heim
úr útlegð
George Bfdault, fyrrum forsætis
ráðherra í Frakklandi, hefur tekið
ákvörðun um að hverfa helm, en
hann hefur dvalizt í útlegð af
eigin hvötum frá 1962.
Á því ári lýsti hann yfir því, að
hann myndi heyja baráttu gegn de
Gaulle.
Bidault hefur skýrt blaði í Lyon
bréflega frá ákvörðun sinni. Ekki
segir hann neitt um hvenær hann
muni hverfa heim, en hann gæti átt
á hættu að veröa handtekinn og
Ieiddur fyrir rétt.
1