Vísir - 02.03.1967, Qupperneq 8
8
V1 SIR . Fimmtudagur 2. marz 1967.
VISIR
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
WA’.V.V.V.'AV/.V.VAV.V.V.V.V.V.V.'VV.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.W.V.V.V.V.V.V
\ Kosningaúrslitin í Ind-j
\ landi voru áfall fyrir i
j Kongressflokkinn
Ekki setjast milli stóla
§agt var frá í grein hér í blaðinu fyrir skömmu, að
markaður fyrir hraðfrystan fisk væri að hverfa í Bret-
landi. Árið 1965 nam slíkur útflutningur nærri 300
milljónum króna, en í fyrra féll hann næstum því nið-
ur í 100 milljónir króna. Þessi markaðssamdráttur
stafar af ýmsum ástæðum og ein af þeim er, að EFTA-
löndin hafa nú mun betri viðskiptakjör en íslending-
ar, sem þurfa að greiða allháan toll af hraðfrystum
fiski í Bretlandi.
Þetta er örlítið sýnishorn af þeirri þróun, sem er
að verða í markaðsmálum íslands. Efnahagsbanda-
lögin í Evrópu, EBE og EFTA, eru sífellt að auka verk-
svið sitt, skapa aukin viðskipti innan bandalaganna
og mynda jafnframt tollmúra gagnvart öðrum lönd-
um. Forustumenn í EFTA, einkum stjórnmálamenn á
Norðurlöndunum, hafa hvatt íslendinga til þátttöku
í bandalaginu, og lofar það góðu um, aö takast megi
að ná hagstæðum samningum við það.
ísland er í tiltölulega góðri aðstöðu til þátttöku. Við
reisnarstefnan í efnahagsmálum hefur leyst þjóðina
úr viðjum hafta og vöruskiptaverzlunar, þannig að
framleiðsluvörur landsmanna eru fyllilega gjaldgeng-
ar á frjálsum markaði. Með því hafa skapazt mögu-
leikar á efnahagssamstarfi við þær þjóðir, sem búa
við hliðstætt hagkerfi og viðskiptakerfi og hér ríkir.
Þeim mun hrapallegar væri að stíga ekki skrefið til ;j
fulls. Það getur auðveldlega leitt til þess, að land-
ið einangrist viðskiptalega, — setjist milli stóla í ut-
anríkisviðskiptum.
Ekki skal reynt að gera lítið úr aðlögunarerfiðleik- ■-
unum, sem munu fylgja þátttöku íslands í auknu
efnahagssamstarfi vestrænna ríkja. Samkeppnisað-
staða íslenzks iðnaðar mun versna, en úr þeim erfið-
leikum má draga með því að lækka hráefnistolla fyrr
en tolla á fullunnum vörum, með því að stuðla að
aukinni framleiðni í íslenzkum iðnaði, og með því að
koma á samstarfi og samruna lítilla iðnfyrirtækja hér
á landi. Vöruskiptaverzlun íslands við ýmis lönd er
ekki lengur neinn Þrándur í götu, því hún er smám
saman að leggjast niður og verzlun í frjálsum gjald-
eyri að koma í staðinn. Loks mun fjárhagur ríkisins
stórversna við minnkun tolltekna, en ekki virðast
ýkja miklir erfiðleikar á að bæta það upp í söluskatti
eða virðisaukaskatti. Þannig virðast hinir ýmsu örð-
ugleikar alls ekki vera óyfirstíganlegir.
Stöðugt komast á kreik nýjar hugmyndir um víð-
ara efnahagssamstarf hinna vestrænu ríkja beggja
vegna Atlantshafsins. Er því eðlilegt, að íslendingar
vilji fara varlega í þessum efnum og sjá hvemig málin
þróast. Hins vegar vinnur tíminn gegn hagsmunum ís-
lands í þessum málum, í formi vaxandi söluerfiðleika
á markaði efnahagsbandalagaríkjanna. Við megum
ekki bíða með hendur í skauti, heldur taka virkt frum-
kvæði að því að nálgast þessi efnahagsbandalög.
Kosningunum í Indlandi lauk
þannig sem kunnugt er, aö Kon
gressflokkurinn hélt meirihluta
sfnum í sambandsþinginu, en
hefur þar nú allnauman meiri-
hluta, miðaö við sitt mikla
meirihlutafylgi áöur. Og i 7
sjálfstæöum rikjum af 16 beiö
hann ósigur.
Til marks um hve tæpt stóð
með að halda nokkum veginn
öruggum meirihluta í sambands
þinginu er það, að þegar kunn
ugt varð, að flokkurinn fengi
þar 261 þingsæti af 521 eða
m.ö.o. hefði fengið meirihluta
þingsætanna, var ekki eftir að
telja nema í 37 kjördæmum. Það
er mjög mikið áfall fyrir flokk-
inn að hafa misst þá traustu að
stöðu, sem hann hafði og að
margir ráðherra flokksins féllu
eða 7, en alvarlegast af öllu er
þó ef til vill að hafa beðið jafn
marga ósigra og raun ber vitni
í hinum einstöku ríkjum.
Hafa ber í huga að þetta eru
ekki nein smáríki. Nefna má
til dæmis Utter Pradesh, þar
sem Indira Gandhi forsætisráð-
herra var endurkjörin, þar búa
Morarji Desal
hvorki fleiri né færri en 80
milljónir manna.
Morarji Dessai
Verður Indira Gandhi forsæt-
isráðherra áfram eða leiðir fylg I
istapið til þess að stjómarfor-
ustan verði öörum falin? Og það
er lfka spurt: Verður hún for-
sætisráðherra áfram aðeins
vegna þess, aö flokkurinn gat
ekki komið sér saman um hverj
um skyldi falin stjórnarforust- j
an?
Stjórnin hefur verið að ræða I
horfurnar eftir kosningarnar
seinustu daga — og í þing-
flokknum er málið sem að lfk- j
um lætur einnig til meðferðar.
Staða Indiru Gandhi, er varð
fyrir valinu sem forsætisráð-
herra eftir lát Lai Bakadur
Shastris, vegna þess, að hún
— dóttir hins mikla Nehrus. var
talin hafa bezt skilyrði til bess
að varðveita flokkseininguna -
var sannast að segja orðin
næsta ótrygg fyrir kosningamar
og stjómin sætti vitanlega harð-
ari gagnrýni en ella vegna þess
að kosningar voru framundan.
Hér kom og til, að það voru j
^hörð átök um forsætisráðherra-
' embættið að Shastri látnum og I
var aðalkeppinautur hennar
Morarji Dessai fvrrverandi fjár-
málaráðherra, leiðtogi hægri
fylkingarinnar í flokknum.
Kongressfl okkurinn hefur nú
tæplega 280 þingsæti af 521.
Stjórnarandstöðuflokkamir hafa
samtals um 100 atkvæðum
fleiri en á seinasta þingi. Þótt
staða Kongressflokksins sé veik
ari á þingi en hún áður var er
hún nægileg til þess að hann
haldi velli, ef einingin bilar ekki
í flokknum. En það þarf Ifka að
hressa upp á álit flokksins og
gengi, það þarf að endurvekja
traust á honum sem hinum
stóra, sterka flokki landsins og
það verður stuðningur f þeirri
baráttu, að stjómarandstöðu-
Indira Gandhi
flokkamir em sundraðir.
Stjóma þarf af miklum hygg-
indum og gætni, vegna þess
hve vandmeðfarin era ýmis mál
sem ágreiningur er um milli
hinna einstöku ríkja og sam-
bandsstjómarinnar.
Stefnan mun í höfuöatriðum
verða óbreytt hvort sem Indira
Gandhi verður forsætisráðherra
áfram eða stjómartaumamir
verða fengnir öðrum í hendur.
Hver tekur viö, ef til þess
skyldi koma? Morarji Dessai?
Um það verður ekkert fullyrt á
þessu stigi, en hann vann mik-
inn persónulegan sigur f kosn-
ingunum. — a.
Kaupgjalds - og verðlagsmál Breta:
Wilson óbifanlegur þrátf fyrir
mótmæli verkalýðsleiðtoganna
Harold Wilson forsætisráðherra
Bretlands og leiðtogar Sambands
brezkra verkalýösfélaga (TUC)
ræddust við f gær um kaupgjalds-
og verðlagsmál.
Hann kvaðst þrátt fyrir mót-
mæli þeirra útvega sér varanlega
heimild til þess að halda verðlagi
og kaupgjaldi f skefjum, þegar við-
bótarheimild sú, sem stjómin hef-
ur, fellur úr gildi í sumar.
Þessi afstaða Wilsons kann að
leiða til alvarlegrar deilu milli
stjómarinnar og verkalýðssamtak-
anna, en hún getur einnig, að því
er segir í NTB-frétt frá London,
orðið grundvöllur að því, að endi
yerði bundinn á það ástand sem
rfkt hefur og leitt til vinnudeilna
æ ofan f æ og auk þess gæti hin
|ákveðna afstaða Wilsons orðið til <®>—
! þess, að tryggja hagstæðan greiöslu
jjöfnuð áfram.
Wilson gerði grein fyrir afstöðu
1 sinni á 2 klst. fundi með fulltrúum
TUC, en í þvf eru 8.5 millj. verka-
manna.
Stjóm TUC hafði fyrirfram ákveð
ið að hafna áformum ríkisstjórnar-
innar, sem framkvæma skyldi í
sumar, er núverandi heimild gengi
úr gildi — og fylgja sinni eigin
stefnu um kaupgjaldstakmarkanir
af frjálsum vilja. Wilson hvikaði
ekki frá því, að nauðsynlegt væri
aö framlengja heimildir um misser-
is- eða ársskeið eftir 31.7. — Lfk-
legast er, að leitað verði ársheim-
ildar um framlengingu og verði hún
svo endurnýjuð ár frá ári.
Nómskeið í
ísBenzku
Norræna félagið i Noregi og Norsk
Lektorlag halda námskeiö í ís-
lenzku fyrir norska lektora 2.-9.
júlí nk. á Gauldal lýöháskólanum
í Noregi. Forstööumaður námskeiðs
ins verður Ivar Orgland og kennir
hann ásamt Magnúsi Stefánssyni
sem er lektor í íslenzku við há-
skólann í Bergen.
Námskeiðið er einkum ætlaö Iekt
orum sem vilia kenna nútímaís-
lenzku með eöa í stað fomnorsku,
eins og segir í frétt um þetta.