Vísir - 02.03.1967, Blaðsíða 16
/
Fimmtudagur 2. marz 1967.
Fyllsta öryggis gætt / álhræðshi
Tilhögun verksmiöjunnar hefur verið breytt vegna hugsanlegrar lofthreinsunar
Samningar gera ráð fyrir, að verksmiðjan beri alla áhættu. Jóhann Hafstein
svarar fyrirspurn um eiturgufur og öryggisútbúnað i álbræðslunni
Á fundi í sameinuðu
þingi í gær svaraði Jó-
hann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, fyrir-
spum um eituráhrif og
öryggisútbúnað fyrir-
hugaðrar álverksmiðju í
Straumsvík. Benti hann
á, að það hefði verið á-
skilið af hálfu íslend-
inga; að verksmiðjufélag
ið bæri alla áhættu, og
væri fullkomlega skaða-
bótaskylt, af öllu tjóni af
útblásturslofti eða öðr-
um úrgangi frá verk-
smiðjunni, og að breytt
hefði verið byggingará-
ætlun ÍSALs þannig, að
setja mætti upp fullkom
inn hreinsunarútbúnað í
bræðslusalina.
Alfreð Gíslason bar fram fyr-
irspurn til iönaðarmálaráðherra
í gær í 3 liðum: a) Telja sér-
fræðingar íslenzku heilbrigðis-
þjón. nokkra hættu á flúoreitr-
un frá álverksmiöjunni í
Straumsvík b) Hvers konar
bræösluker verða þar notuð? c)
Verður þess krafizt, að reyk-
eyðingartækjum verði komið'
fyrirj verksmiðjunni og þau
hagnýtt frá byrjun?
Ráðherra svaraði fyrirspurn
Alfreðs með allítarlegri ræöu og
benti í upphafi hennar á þaö,
að ástæða væri til að ætla að
flúormengun mundi ekki skapa
vandamál í verksmiðjunni, þar
sem loftræstingin í bræðsluofn-
um hennar og vinnuskilyrði
yrðu mjög góö. Því hefðu athug
anir ríkisstjórnarinnar meira
beinzt að, hvers vænta mætti
um áhrif bræðslunnar á um-
hverfi hennar, þ. e. dýralíf og
gróöur í næsta nágrenni. Því
heföi það skipt miklu máli,
hvar bræðslunni væri valinn
staður. Það hefði frá upphafi
verið Ijóst, að hún væri vel
staösett í Straumsvík, á opnu
svæði, þar sem ríkjandi vindátt
er á haf út, og gróður í ná-
grenni mjög takmarkaður og
ekki viökvæmur fyrir mengun
flúors.
Ráðherrann gat þess einnig,
að það hefði verið áskilið af
hálfu íslendinga að verksmiðju
félagið bæri alla áhættu af tjóni
af útblásturslofti eða öðrum úr-
gangi frá verksmiðjunni. Yrði
það fullkomlega skaðabóta-
skylt og auk þess skuldbundið
til að grípa til nauðsynlegra
varúðarráðstafana, ef hætta yrði
\ talin á frekara tjóni.
Þá upplýsti ráðherra, að síð-
an samningsgerðinni lauk 1966
hefði athugun á málinu af hálfu
ríkisstjórnarinnar verið haldið
áfram og frekari upplýsingum
safnað um hinar ýmsu hliðar
þess.
Þá benti hann ennfremur á,
að i t. d. Þýzkal., Sviss og Nor-
egi væru engar almennar regl-
ur vegna mengunar nema þær,
að gera það, sem nauðsynlegt
telmst hverju sinni. Væri því að
þessu leyti, þar beitt nákvæm-
lega sömu aðferðum og sama
Framh. á bls. 10
ticiruVdur ríkisarfi
í vikuheimsókn hér
Haraldur ríkisarfi Noregs hefur
þegið boð ríkisstjórnarinnar um að
koma í opinbera heimsókn til ís-
lands í sumar. Er hann væntanleg-
ur hingað 10. ágúst og mun dvelj-
ast hér á landi til 18. ágúst. Meðan
hann dvelst í Reykjavlk mun hann
búa í ráðherrabústaðnum í Tjam-
argötu og á öðrum degi heimsókn-
arinnar mun hann ganga á fund
forseta, forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra. Mun rikisarfinn ferð-
ast um Borgarfjörð og heimsækja
Reykholt og ef til vill mun hann
fara á laxveiðar. Síðan er áætlað
að hann fari til Norðurlands og
komi m. a. að Akureyri og Mývatni.
Þá mun hann ferðast um Suður-
land og heimsækja sögustaði, skoöa
Gullfoss og Geysi o. s. frv. Ekki er
enn vitað hverjir verða í fylgd
með ríkisarfanum á heimsókn hans.
SAMIÐ UM SMÍDl 1878 SKAPA
Nýlega voru undirritaðir samn-
ingar um smíði skápa í hinar
nýju byggingar, áem rísa eiga
á vegum Framkvæmdanefndar
byggingaáætlunar í Breiðholti.
Fjöldi skápanna er 1878, þar
af 1566 fata- og línskánar og
312 kústaskápar.
Tekið var tilboði frá Tré-^
smiðjunni Akri h.f. á Akranesi
um smiði og uppsetningu, en
það tilboð nemur 8.354.208
krónur.
Skáparnir verða spónlagðir
með Oregon-pine að utan, en
brennispæni að innan. Lögð er
mikil áherzla á að öll vinna og
allt efni til skápanna veröi
fyrsta flokks. Afhending skáp
anna á að fara fram á tímabil-
inu 1. október 1967 til 1. júní
1968.
Innlendu tilboðin voru 10, frá
9 aðilum, en 18 tilboð frá 15
uðilum bárust erlendis frá. Til-
boðin voru frá kr. 6.013.176 og
upp í kr. 26.537.900 fyrir skáp-
ana óuppsetta. Uppsetning skáp
anna var ekki boðin af öllum
aðilum.
Tilboð Trésmiðjunnar Akurs
h.f. í skápana óuppsetta var kr.
7.131.000 en lægsta erl. tilboöið i
skápana óuppsetta var kr. 8.261.
000.
Yfirleitt voru- erlendu tilboð-
in ekki sambærileg við þau inn-
Iendu og er þá átt við gæöi
þess efnis sem boðið var.
Vísir rabbaði í gær við Stefán
Teitsson, framkvæmdastjóra
Trésmiðjunnar Akurs h.f.
— Ég er biartsýnn hvað verk-
efnið snertir og ánægður með
að íslenzkir aðilar skuli vera
samkeppnisfærir við þá erlendu.
Það er mikið gert að því að
Framh. á bls. 10
, • , . f, - • '
Engir beinir styrkir til dagblaða
í athugun aö létta af þeim ýmsum útgjöldum
Á fundi í sameinuðu þingi í gærj
bar Einar Olgeirsson fram fyrir-
spurn til ríkisstjórnarinnar um1
könnun á hag dagblaðanna. Bjami
Benediktsson, forsætisráðherra, |
svaraði þessari fvrirspurn Einars;
og sagði, að aldrei hefði verið á-;
kveðið að slík könnun yrði gerð.1
Hins vegar heföi ríkisstjómin látið
fara fram athuganir varöandi þau
úrræði, sem önnur lönd hefðu grip-
ið til í þessum efnum, og athugað
hvort þau ættu við hérlendis.
Varðandi þann lið fyrirspurnar
Einars, sem fjallaði um, hvort rík-
isstjórnin hygðist gera ráðstafanir
Sigursveit Búnaðarbankans
Skákþing stofnana:
Aldrei verið eins spennandi og nú
— segja sigurvegararnir, sveit Búnaðarbankans, sem vann mótiö í 3. sinn í röð
Fjölmennustu skákkeppni ársins
„firmakeppninni" lauk á þriðju-
dag með sigri skáksveitar Bún-
aðarba.nkans, sem vann keppn-
ina í þriðja sinn í röð og hlýtur
því Vísis-bikarinn, sem keppt
var um, til eignar.
1 þessari keppni, sem Skák-
samband íslands gengst fyrir
árlega, koma jafnan fram margir
kunnir skákmenn, sem lítið hafa
sig í frammi nú orðið, svo sem
Baldur Möller, Áki Pétursson,
Guðmundur Ágústsson og fleiri.
Það hefur margsinnis komið
fram á þessum mótum að bank-
amir hafa marga slynga skák-
menn innan sinna veggja, og
hafa þeir oft háö haröa baráttu
um efstu sætin.
Vísir ræddi lítillega við sigur
vegarana úr Búnaðarbankanum
í gær og sögðu þeir, að úrslita-
keppnin hefði aldrei verið eins
spennandi og núna, það heföi
ekki verið útséð um úrslitin
fyrr en í síðustu umfcröinni.
Annars töldu þeir félagar, að
sjaldan hefði veriö eins mikil
drift í skáklífinu og nú í vet-
ur. Sjaldan verið eins mikið um
utanferðir skákmanna til keppni.
Forustumenn skákhreyfingar-
innar ættu þakkir skildar fyrir
dugnað sinn, ekki sízt þeir Guð-
mundur Arason, formaöur Skák
sambands íslands og Hólmsteinn
Steingrímsson, formaöur Tafl-
félags Reykjavíkur, en þeir væru
aðaldriffjaðrirnar í félagsmálum
skákmanna.
Þeir félagar vildu sem minnst
um það segja, hvort bankamenn
væru ráðnir eftir því hversu
þeim væri sýnt um að tefla.
Kannski væri það svipaö og
með lögregluna, sem hefði á
sínum snærum vel flesta frjáls
íþróttamennina, sögðu þeir.
Hins vegar er starfandi skák-
klúbbur innan Búnaðarbankans,
að vísu hefur verið mesta deyfð
yfir honum að undanförnu,
sögðu þeir, en nú mun vera
meiningin aö bæta úr því fyrir
næsta mót.
Búnaðarbankinn var með tvær
Franih. á bls 10
til þess aö koma í veg blaðadauða
hér, svaraði forsætisráðherra því
til, að ríkisstjómin hefði að svo
komnu máli ekki ákveðið aö setja
neina löggjöf eða bera fram fmm-
varp þess efnis. En það væri til
athugunar, þó ekki væri búið að
ákveöa það enn, hvoft ekki væri
unnt að Iétta af blöðunum vissum
útgjöldum og gera þeim auðveld-
ari útgáfuna, en verið hefur, þó yrði
slíkt aö vera með sanngimi og án
þess að halla á aðra. Einnig væri
það til athugunar, hvort dagblöðin
fengju greiðslur af hálfu ríkisstofn-
ana fyrir þá þjónustu, sem bau
hafa hingað til innt fyrir þessa að-
ila ókeypis, en allt væri þetta til
athugunar og ekkert verið endan-
lega ákveðið enn. Varðandi þá full-
yrðingu Einars, að auglýsendur
híefðu í hendi sér velgengni
blaða, svaraði forsætisráðherra þvf
Framh. á bls. 10
Þyrla bjargar tólf
af Grænlandsjökli
í NTB-frétt frá Godthaab segir,
aö grænlenzk þyrla hafi bjargað 12
mönnum af Grænlandsjökli og
komið meö þá tíl Syöri-Straumfjarð
ar í nótt.
Ilér var um að ræða 11 manna
áhöfn flutningaflugvélar sem
flogið var í gær inn yfir jökulbreið
una til hjálpar bandaríska flug-
manninum sem nauðlenti þar á
mánudágskvöld, og flugmanninn
Við flugtak á jöklinum rakst annað
skíði flugvélarinnar niður í rifu og
varð flugvélin við það óflugtaksfær
og var tilkynnt frá henni hversu
komið væri og beðið um þyrlu.
Sérfræðingar hafa til athugunar
hvort gerð verður tilraun til þess
að bjarga flugvélinni.