Alþýðublaðið - 13.02.1966, Page 8
Löngum hefur það þótt nauð-
synleg menntun ungum stúlkum
að fara í húsmæðraskóla og búa
sig undir að geta sem bezt rækt
húsmóð-jrskyldur sínar. Mikil og
góð aðsókn er að öllum húsmæðra
skólunum hér á landi, og eru þeir
fullsetnir.
Við komum í heimsókn í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur á Sól-
vallagötu 12 einn dag í vikunni og
var okkur boðið að snæða með
námsmeyjum, forstöðukonu, kenn-
urum og nokkrum öðrum gestum.
Á borðum var Ijúffengur þorra-
matur, sem borinn var fram í
trogum, svið, hangikjöt, saltkjöt,
súrmatur og ýmislegt fleira góð-
gæti, að ógleymdum hákarli sem
borinn var, á borð í litlum
bitum. Einnig var borið fram
laufabrauð, rúgbrauð og flat-
kökur, sem stúlkurnar höfðu bak-
að. Óhætt er að segja, að matur-
inn bragðaðist sérstaklega vel, og
auðfundið var, að þar höfðu vanar
hendur um fjallað. Eftir matinn
var svo fram borið kaffi með rjóma
pönnukökum, sem voru hið mesta
lostæti.
Það vekur athygli, þegar geng-
ið er um hin vistlegu húsakynni
Húsmæðraskólans, að á veggjum
hans hanga málverk eftir suma
okkar kunnustu málara. Enn eiga
mörg eftir að bætast við, þar sem
í skólanum er sérstakur listaverka-
sjóður til minningar um frú Ragn-
hildi Pétursdóttur frá Háteigi,
en hún var fyrsti formaður skóla-
nefndar. Sjóvátryggingafélag ís-
lands gaf fyrsta féð í sjóðinn, en
síðan hafa gamlir nemendur eflt
hann með gjöfum. Sjóðnum er
varið tjl kaupa á listaverkum. Með-
al listaverka, sem þegar hafa verið
keypt :fyrir peninga úr sjóðnum,
sem sfofnaður var fyrir fjórum
árum, jer gömul vatnslitamynd frá
Þingvöllum eftir Ásgrím. Myndin
hefur Verið árum saman erlendis,
en hcfur nýlega verið keypt til
skólans. Eftir Jóhann Briem eru
tvö málverk, Hestar í grænni
brekku og Haustmynd.
Skólinn hefur líka eignazt mörg
listaverk, sem vinir og velunnarar
hafa geíið honum. Þar má nefna
málverk eftir Ásgrím Jónsson af
Guðbjörgu í Múlakoti, þar sem
hún situr í garðinum sínum. í bak-
sýn er Eyjafjallajökull í kvöld-
birtu. Málverkið var gefið skól-
anum á fyrstu árum hans. Gef-
endur voru Jónas Hvannberg og
frú í Reykjavík. Eftir Jóhann
Briem.er frummyndin af Reykja-
víkurteppinu, en það er gjöf frá
Halldóri Þorsteinssyni á Háteigi
og dætrum hans. Eftir Ásgeir
Bjarnþórsson er mynd af frú
Iiuldu Stefánsdóttur, sem var
f.vrsta iorstöðukona skólans, gjöf
frá gömlum nemendum.
Frú Hulda er nú forstöðukona
húsmæðraskólans á Blönduósi.
Núverandi forstöðukona Hús-
mæðraskólans í Reykjavík er Kat-
rín Helgadóttir og við spyrjum
hana um skólann:
— Hvað eru margir nemendur
í skólanum?
— Árlega eru um 180 nemend-
ur í skólanum.
— Og skiptast þeir í deildir inn-
an skólans?
Litið inn í Húsmæðra-
skólann i Reykjavík
Ein námsmeyjanna ber á borð
— Já, hér eru stúlkur í heima-
vist, það er níu mánaða nám og
svo eru tvö dagnámskeið og sex
kvöldnámskeið.
— Og er ekki mikil aðsókn að
skólanum?
— Jú, mjög mikil. Það er svo
í öllum húsmæðraskólum lands-
ins og er ánægjulegt til þess að
vita að ungu stúlkurnar hafa á-
huga á að búa sig vel undi.r; hús-
móðurstarfið.
— Er ekki mjög erfitt að komast
að á kvöldnámskeiðunum?
— Við auglýsum yfirleitt kvöld-
námskeiðin 1. september ár hvert,
og sama daginn er oftast upppant-
að á öll námskeiðin á tveimur til
þremur tímum. Og venjulega eru
HUSSTJORN OG HANDAVINNA
Þaff er gaman aff búa til góðan mat.
8 13. febrúar 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Úr eldhúsinu.