Alþýðublaðið - 13.02.1966, Blaðsíða 9
þorramatinn og leitar til þess affstoff^r foratöffukonu, sem gefur góS ráff og leiðbeining-ar.
tim 70 stúlkur á biðlista, ef eitt-
hvað skyldi falla úr.
— Hvernig skiptist kennslan í
dagdeildum og heimavistarskóla?
— Kennslan skiptist í hússtjórn
og handavinnu. Handavinnunámið
skiptist svo í vefnað og saum, 8
vikur vefnaðarkennsla og 8 vikur
saúmakennsla.
í dagskólanum er þó ekki kennd
ur vefnaður, en í báðum deildum
barnafatasaumur, útsaumur og
kjólasaumur.
— Hversu lengi hafið þér starf-
að við skólann?
— Ég varð kennari hérna 1949,
en frá haustinu 1953 hef ég verið
forstöðukona skólans.
Við hittum að máli frú Elísa-
beti Jónasdóttur, sem var fyrsti
matreiðslukennari í dagdeild skól-
ans. S
— Þér hófuð starf við skólann,
þegar hann byrjaði?
— Já, skólinn hóf starfsemi
7. febrúar 1942 og ég kenndi mat-
reiðslu við dagdeildina, eða heima11
göngudeildina eins og hún er stund
um kölluð. Það er vegna þess, að
stúlkurnar bjuggu heima hjá sér
og komu þaðan í skólann.
Frú Ingibjörg Júlíusdóttir
kenndi matreiðslu í heimavistinni
og frú Ólöf Blöndahl kenndi handa
vinnu. Vefnað kenndi frú Erna
Ryel.
— Þér voruð með stórt heimili
sjálf meðan þén stunduðuð
kennslu. Var það ekki erfitt?
— Ég var í undirbúningsnefnd
skólans og vildi gjarnan kenna
þarna, þar sem enginn gat tekið
kennsluna að sér. Ég hafði heimili,
en bjó nálægt skólanum, svo að
það var ekki svo erfitt.
— Höfðuð þér kennt eitthvað
áður?
— Já ég kenndi í Kvennaskól-
amim árin 1923—1933. Þar veitti
ég forstöðu hússtjórnardeild skól-
ans.
— Kennduð þér lengi hér við
Húsmæðraskólann?
— Nei, því miður hafði ég ekki
ástæður til þess að kenna þar nema
í tvö ár.
Texti: A.K.B. - Myndir J.V.
Viff útsaum.
KLIMALUX
Rakagjafi - Lofthreinsari
Klimalux Klimalux Super
fyrir heimili. . fyrir stór húsakynni.
Ákjósanlegt þar Sem mikil upphitun veldur þurru lo'fti.
Klimalux er með innbyggðri siu, en í Klimalux-Super fer
loftið gegnum vatnsúða. Hvorttveggja bætir raka í
loftið og hreinsar úr því óhreinindi og tóbaksreyk.
síur (filter) til endurnýjunar fyrh-liggjandi.
Rakagjafinn er með snúru og kló sem stungið er I
tengil. og gengur nálega hljóðlaust. Mjög lítil raf-
magnsneyðsla.
Hreinna og heilnæmara loft, aukin vellíffan.
Hinn þekkti danski læknir, Knud Lundberg, sem mikið
hefur ritað um heilbrigðismál segir svo (lítið eitt stytt
í þýðingu) :
„Gömlu ofnarnar eru nú að hverfa, enda lítil eftirsjá
að þeim, sérstakl'ega húsmæðrum. En einn kost höfðu
þeir umfram hitun sem nú tíðkast. Þeir endurnýjuðu loft
ið betur en miðstöðvarhitun, en miðstöðvarofnar valda
óþægindum að því er snertir rakastig loftsins. Inniloft
okkar er tíðum of þurrt, það veldur óþægindum í slím
himnum og þurrum hálsi, méð þeirri vanlíðan sem sliku
fylgir. Tilraunir hafa sannað að slímlagið á slímhimnum
i nefi veitir minni vörn þegar rakastig loftsins lækkar of
mikið, en þannig fer viða í nútíma húsakynnum mcð
upphitun frá miðstöð. Oft er rakastigið langt fyrir
neðan 50 — 70 sem talið er æskilegt. Jafnframt hefir
rakastigið áhrif á stöðurafmagnið í loftinu, en það er
mál sem við munum býátt heyra meira um.
Það er því auðskilið að rakagjafar eru vinsælir, enda
þótt misjafnir séu. Þær gerðir sem venjulega 'hafa verið
notaðar og komið fyrir á miðstöðvarofnum, eru yfir-
leitt of lítilvirkar. Rakagjafar tengdir við rafmagn eru
míklu kröftugri. Beztir þeirra eru liklega hinir nýju
rafmagnsrakagjafir með innbyggðri lofthreinsun, en
að hreinsisían hafi þýðingu, getur hver sem vill
'séð sjálfur. Hún verður fljótlega gulleit af tóbaksreyk.
Fram af þessu hefir reynzt erfitt að fá rakagjafa sem
fullnægðu stórum húsakynnum, en nú er það vandamál
ieyst. Nýr stórvirkari rafmagnsrakagjafi með lofthreins-
un fæst nú, án þess að rafmagnsnotkun aukist að mun.
Við erum smámsarrian að læra hvaða þýðingu rakastig
loftsins hefur fyrir velliðan okkar, og svo mun verða
hvað líður, að 'hæfilegt rakastig verður álitið jafn nauð
synlegt og hæfilegur stofuhiti, þegar fleiri kynnast
því hversu mikilvægt það er.“
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30.
Lyfjavetzlun ríkisins
ós'kar eftir að ráða 'aðstoðarstúlkur og að-
stoðarmann í lyfjagerð og einnig karlmann
til afgreiðslustarfa. Umsækjendur komi í
skrifstofuna, Borgartúni 7, kl. 10—12
mánudag 14. febrúar.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 13. febrúar 1966 ®