Alþýðublaðið - 13.02.1966, Qupperneq 16
Kallinum varS ekki um
sel í gær, þegar hann las Al-
þýðublaðið og sá þar getið
um leikkonuna URSULU
UNDRESS. . . .
Jú, jú, auðvitað eru sjón-
varpsdýrkendur komnir á
kreik og farnixt að safna und
irskriftum undir mótmæli
gegn hvers konan Kínamúr
umt eins og þeir orða það.
Mér finnst alltaf svolítið gam
an að því, þegan við hér á
baksíðunni erum teknir al
varlega — og ráðum okkar
fylgt. . .
Og til marks um, að ég hef
ekki á röngu að standa, er
það að enginn maður, sem
ég tek minnsta mark á, hef
ur haft neitt séristakt við
skrif mín að athuga. . .
Gúðrún Helgadóttir
í Mogganum.
■//■
f
f' >
OG ENN mótmæla þeir. Og enn |
er Jiafin ný undirskriftasöfnun til |
að mótmæla og nú á að mótmæla
mótmælum. Félag dátasjónvarps-
unnenda reis skyndilega upp úr
gröf sinni og hefur hafið undir-
skriftasöfnun til að mótmæla mót-
mælum háskólastúdenta þess efn-
is, að sjónvarpið á Keflavíkur-
flugvelli verði lagt niður, enda
ekki nema von, því fari svo, að
stöðin verði lögð niður hefur fé-
lagið engan starfsgrundvöll leng-
ur og er því þarna höggvið ó-
drengilega að rótum þess, því frá-
leitt má teljast að félagið breyti
markmiðj sínu og gerist áhuga-
samt um íslenzkt sjónvarp eða að
stofnaður verði félagsskapur á-
hugamanna því til verndar, þegar
að því kemur.
í ávarpi sexhundruðmenning-
anna er þess krafizt að Keflavik-
ursjónvarpið verði lagt niður ekki
síðar en þegar íslenzka sjónvarps-
stöðin tekur til starfa. Ef svo fer
er ekki ólíklegt að mótmæli fari
að berast úr fleiri áttum en hing.
að til. Hvað gera þá veslings Amer
ikanarnir á vellinum? Þeir verða
að gera sér að góðu íslenzka sjón-
varpið einhliða og tungu þeirra og
þjóðerni og menningu stefnt í
beinan voða. Áreiðanlega verður
það ekki látið viðgangast mótmæla
laust.
En menningin margumtöluð verð
ur að hafa sinn gang og varla
von að það gangi mótmælalaust
því skiptar skoðanir eru um það
livað fyrirbrigðið er. Það sem einn
telur menningarauka telur ann-
ar hreinustu ómenningu og svo
rífast menn um keisarans skegg
af sama ákafa og kerlingarnar, sem
ekki gátu komið sér saman um
hvort grasið var klippt eða skor-
ið, og líklega hefur grasinu staðið
nákvæmlega á sama um hvor að-
ferðin var notuð til að sarga það
frá rótunum.
Útvarpsfyrirlesari var fyrir
nokkru svo ósvífinn að skýra al-
þjóð frá þeirri skoðun sinni að
sér þætti tilteknar bækur sem út
komu hjá sama útgáfufyrirtækinu
fyrir jólin, heldur slæmar bók-
menntir og lítt til menningar-
auka. Þetta gat forleggjarinn ekki
sætt sig við og allt síðan liafa
þessir tveir menn verið að hnýta
hvor í annan í blöðunum, og jafn-
vel fleiri aðilar fundið sig knúna
til að leggja orð í belg, og það
merkilega er, að umræðurnar snú-
ast alls ekki um bækurnar, sem
komu þeim af stað eða höfunda
þeirra, heldur á hvaða menningar
stigi andstæðingarnir telja hvorn
annan vera. Og báðir verja þeir
náttúrlega góða málstaðinn og
menninguna og væna hvern annan
um ómenningu. Gengur svo langt
að annar aðilinn kallar menning-
arvörn liins peninga-ropa, en að
setja menningaráhuga undir sama
mæliker og lítilmótleg fjármál er
náttúrlega hámark allrar ósvifni.
Einhver harðvítugasta blaða-
deila sem háð hefur verið hér á
landi fjallaði um hvort Esjan væri
ljót eða falleg og í þeim gaura-
gangi öllum, lét einhver vitring-
anna sig ekki muna um það, að
sanna að framsóknarmönnum
þætti fjallið Ijótt, en sjálfstæðis-
menn og sannir vesturbæingar
teldu Esjuna mikið augnayndi og
bera af öðrum fjöllum, hvað út-
| línufegurð snerti. Er þetta kann-
í ski ekkert verri fagurfræði en
hver önnur. Og allt þetta spannst
út frá því, að ungur maður lét þá
skoðun 'sfna- í ljós á opinberum
vettvangi að Esjan væri eins og
mykjuhaugur í samanburði við
fjöllin fyrir norðan. En stand-
ist sú samlíking væri sönnu nær
að framsóknarmönnum þætti
Esjan falleg í samræmi við það, að
þeim finnst allt fagurt sem að
landbúnaði lýtur — og öfugt.
Menning eða ómenning. Það er
spurningin, og líklega verður
menningunni fyrst hætt, þegar
allir eru orðnir á einu máli um
hana — eða fara að láta hana í
friði.
„Þér hafið ekkert að óttast frá minni hendi ungfrú
Jensen. Ég er grænmetisæta!“