Alþýðublaðið - 20.09.1966, Page 9
\
:
& • A '
x,- •-.í- gíw<$j
■
** í ' v' % .V4i
' ' :
i’íki í Bandaríkjunum er talið eitt skítu gasta fljót í heimi og öll er mengfunin af mannavöldum,
-ív
reip er að draga, því eins og gef-
ur að skilja hefur það oftast ær-
inn kostnað í för með sér að
hreinsa mengað vatn, og iðju-
höldar og borgaryfirvöld, sem
mestar sakir bera í þessum efn-
um, hafa víst sjaldnast nægilegt
fé milli handa, að eigin dómi að
minnsta kosti.
Hvað ísland áhrærir fer áreið-
anlega að verða kominn tími til
að regíur verði settar í þessum
efnum, því það er oft of seint að'
hefjast handa, þegar einhver
gerlaverkSmiðjan er risin.
VATN ÚR SJÓ.
Coleridge lætur sinn aldna sæ-
fara kvarta yfir því, að í kring-
um hann sé ekkert nema vatn, en
ekki dropa að fá að drekka. Það
er einföld röksemd við þessum
vatnsmengunarhugleiðingum, að
segja, að þetta sé alit í iagi. Við
höfum úthöfin og það líði ekki
nema nokkur ár þar til kjarnorka
verði notuð í s-tórum stíl til að
eima vatn úr sjó. En staðreyndin
er sú, að vísindamenn greinir enn
mjög á um hvort eiming með
kjarnorku geti orðið raunhæf
lausn þessa vandamáls. Ýmislegt
mælir gegn því og víst er að alla
þætti vandans getur það aldrei
i leyst.
Við þurfum ekki aðeins vatn
til að drekka og til þess að þvo
okkur úr. Vatnið er undirstaða
lífsins. Við þurfum líka vatn til
að skemmta okkur við, veiða,
sigla, synda, fara á vatnsskíðum
og svo framvegis. Iðnaðurinn, sem
er undirstaða allrar velmegunar
nútímans þarf vatn, — mikið vatn
pg oft á tíðum rekast þessir hags-
munir á, en stundum er þó hægt
að samræma þá.
Það þóttu nokkur tíðindi hér í
sumar, er sást til fólks, sem var
að busla í vatnsbóli Hafnfirðinga.
í Englandi er um þessar mundjr
verið að berjast fyrir því, að al-
menningur fái aðgang að vatns-
uppistöðulónum þar sem neyzlu-
vatn er geymt. Þar vilja menn að
fólki verði leyft að sigla og jafn-
vel synda, en þess í stað verði
komið upp fui’jkomnum vatns-
lii'einsunarstöðvum. Þetta kann
að hljóma ótrúlega í eyrum okk-
ar íslendinga, en satt er það engu
að síður.
Þörf almennings fyrir vatn, ár
og strendur til iðkunar útilífs vex
geipiört, eftir því sem velmeg-
un og frístundir aukast. Það
þrengist æ meira um fólkið og
það ferðast æ meira. Talið er að
fjöldi ferðamanna í veröldinni
hafi verið 120 milljónir síðast-
liðið ár og sama ár er talið að
sjö milljónir Frakka og þrjár
milljónir Englendinga hafi lagt
stund á sportveiði í ám eða vötn-
um. Þessar tölur eiga eftir að
margfaldast, ef við höfum í huga
að talið er að íbúafjöldi verald-
ar muni að minnsta kosti hafá
tvöfaldast um næstu aldamót, eða
eftir aðeins 34 ár.
Þegar það enn er haft í huga,
að vatnið er ekki óþrjótandi lind
fremur en annað á jörðunni, þá
verður deginum Ijósara, að við
ekki getum haldið áfram á sömu
braut. Við verðum að fara að
taka tillit hvert til annars.
ÍSLAND.
Eins og drepið var á hér að
framan, eru þessi vandamál ef
til vill ekki raynhæf fyrir okkur
í dag, — og þó. Iðnvæðing er hér
ekki komin á sama stig og í ná-
grannalöndum okkar, en á áreið-
aniega eftir að vaxa og sér þess
þegar ýmis merki En það eru
fleiri hliðar á þessu vandamáli,
en þær, sem drepið hefur verið
á hér að framan.
Hvað til dæmis um olíumeng-
un sjávarins? Við erum aðilar að
alþjóðasamkomulagi um bann við
olíumengun sjávar, en ýmsir
telja þó, að þar sé hvergi nærri
nógu hart að gengið að settum
reglum sé framfylgt við strend-
ur landsins og í höfnum. Þús-
undir fugla verða olíunni að bráð
á hverju ári.
Einn af okkar ágætu jarðfræð-
ingum hefur bent á þá hættu, sem
stáfar af niðurgröfnum olíu-
geymum við sumarhús og önnur
hús í grennd við vatnsból Reyk-
víkinga. Þessir tankar tærast og
enginn sér, þegar þeir byrja að
mm
Framhald á 15. síðu.
PÍPULAGNINGARMENN
HÚSBYGGJENDUR
Dimplex ofnar eru enskir. — Ódýrir ný-
tízkulegir. Byggðir fyrir hitaveitu og önnur
kerfi. — Dimplex er framleiddur úr úrvals
stáli. - Sýnishorn á staðnum. - Leitið tilboða.
Einkaumboð:
T. HANNESSON & CO. H.F.
Brautarholti 20. . Sími 15935.
PRENTNÁM
Verklegt forskólanám í prentiðnum hefst
í Iðnskólanum í Reykjavík, að öllu forfalla-
lausu hinn 26. september n.k.
Forskóli þessi er ætlaður fyrir nemendur,
er hafa hugsað sér að hef ja prentnám á næst
unni, og einnig þeim nemendum sem eru
komnir að í prentsmiðjum, en hafa ekki haf
ið skólanám.
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skólans
eigi síðar en 23. september 1966. Umsóknar
eyðublöð og aðrar upplýsingar verða látn-
ar í té á sama stað.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Félag íslenzkra Prentsmiðjueigenda.
Ödýr sófasett — Verð kr. l@.700.oo
@óð greióslukjör.
Hnotan húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1. — Sími 20820.
\
20. september 1966 - ALÞYÐUBLAÐID 9