Bókasafnið - 01.12.1983, Síða 6

Bókasafnið - 01.12.1983, Síða 6
Skipst á skoðunum Kaup bokasama hafa ekki afgerandi áhrif á afkomu forlaga Viðtal við Oliver Stein bókaútgefanda í Skuggsjá Hilmar Jónsson bæjarbókavörður Keflavík Hvarertþúfceddur, Oliver? Ég er Snæfellingur, fæddur í Ólafs- vík 23. maí 1920, en fluttist með for- eldrum mínum til Hafnarijarðar þeg- ar ég var 13 ára gamall og hef átt þar heima lengst af síðan. Og hvað varð til þess að þú gerðist bókaútgefandi? Éghafði unnið í 13 árí Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju hf., og lengst af þeim tíma sem verzlunarstjóri, svo það var óhjákvæmilegt að bækur og bókagerð yrðu mér hugleikið um- hugsunarefni. Bókaverzlun ísafoldar var á þeim árum stærsta bókaverzlun landsins og eigendumir, ísafoldar- prentsmiðja hf., einn umsvifamesti bókaútgefandinn. Ég var á þeim tíma, sem ég hætti í ísafold, haldinn nokkurri þreytu og starfsleiða. Það höfðu orðið forstjóra- skipti við prentsmiðjuna og sam- skiptin við nýja forstjórann kannski ekki eins þjál og við þann eldri, svo ég axlaði mín skinn og vann eitt ár utan bókabransans. Svo var það fyrir hreina tilviljun, að ég keypti bóka- verzlun Valdimars Long í Hafnar- firði. En ég sá strax að velta þessarar litlu bókaverzlunar var engan veginn næg til að ég gæti framfleytt mér og fjölskyldunni á henni einni saman. Mér varð það þá á að stofna forlag, sem raunar hefur síðan tekið æ meira af starfstíma mínum, — og þá að sjálf- sögðu á kostnað umhugsunar um bókaverzlunina. Þetta hefur þó bless- 6 BÓKASAFNIÐ

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.