Bókasafnið - 01.12.1983, Blaðsíða 16
fasta stöðu í Háskólabókasafni og
eignaðist auk þess nýtt áhugamál,
sem skyggir á öll önnur, litla dóttur.
— Þá fékkstu stöðu bókavarðar
sem sér um notendafrœðslu og upp-
lýsingaþjónustu. Hvað er notenda-
frœðsla?
Notendafræðsla miðar að því að
kynna safnið og gera notendur þess
sem mest sjálfbjarga. Þessi starfsemi
hefur verið að þróast við Háskóla-
bókasafn á síðustu árum. Það erorðin
föst venja að þegar nýir nemendur
koma í skólann að hausti fá þeir
frumkynningu á starfsemi og skipu-
lagi Háskólabókasafns og þeirri þjón-
ustu sem það býður upp á. Frum-
kynningin felst í fyrirlestri og sýningu
á litskyggnum um háskólabókasöfn
yfirleitt og okkar safn sérstaklega, svo
og skoðunarferð um safnið. Síðastlið-
ið haust var safnið kynnt á þennan
hátt fyrir um það bil eitt þúsund
nemendum.
Auk þessa hef ég leitast við að leið-
beina nemendum sem eru komnir
lengra í námi og þurfa að afla heim-
ilda fyrir sjálfstæð rannsóknarverk-
efni. Það er gert með svokallaðri
framhaldskynningu, sem er smám
saman að öðlast þegnrétt sem skyldu-
nám í æ fleiri greinum en er valkostur
í öðrum. í framhaldskynningunum er
farið í helstu aðferðir heimildaleitar,
uppsláttar- og tilvísanarit viðkom-
andi greina eru kynnt og nemendur
þjálfaðir í notkun þeirra. Framhalds-
kynningamareru misjafnlega ítarleg-
ar og hef ég fengið allt frá tveimur upp
í tólf kennslustundir fyrir þær. í
tengslum við þessa kennslu hef ég gert
leiðarvísa og bæklinga um ritakost og
lilvísanarit einstakra greina.
í þessu starfi er ég nánast leiðsögu-
maður. Munurinn er aðeins sá að nú
er það bókasafnið sem ég er að leið-
beina fólki um, en sjálf ferðast ég frá
einni fræðigrein til annarrar.
— ílvað dró þig að leiðsögu-
mannsstarfinu?
Við eigum fallegt land sem gaman
er að ferðast um og sýna ókunnugum.
Það er sífellt hægt að uppgötva eitt-
hvað nýtt í landslaginu. Leiðsögu-
manni er nauðsynlegt að afla sér
heimilda um þau svæði sem hann
ferðast um, um sögu lands og þjóðar
og fylgjast með helstu hræringum í
þjóðfélagi nútímans. Mannleg sam-
skipti eru einnig ríkur þáttur í starf-
inu og kynni skapast við fólk víða að
úr heiminum. Þetta er fjölbreytt og
kreijandi starf og þess vegna
skemmtilegt.
— En hvernig verðu frítíma þin-
um?
A meðan ég var leiðsögumaður og
sá um bókasafnið í Jarðfræðahúsi
voru mörkin milli starfs og tómstunda
ekki alltaf glögg og viðfangsefnin árs-
tíðabundin. Á þessum árum var ég
reyndar virkur þátttakandi í Félagi
bókasafnsfræðinga og formaður þess
um skeið. Síðan ijölskyldan kom til
sögunnar er frístundum varið á ann-
an hátt, en við reynum eftir föngum
að komast út í náttúruna.
16
BÓKASAFNIÐ