Bókasafnið - 01.12.1983, Blaðsíða 37
(Jrýmsumáttum
Norræna
bók-
menntaár
Blindra-
bókasafn
íslands
Norrænt
þing um
bókasafns-
mál
Norrænt bókavarðamót verður
haldið á íslandi á næsta ári. Undir-
búningsvinna er geysimikil og eru
tvær nefndir starfandi. íslensk nefnd
sér um skipulagningu þingsins og
framkvæmd í samráði við Ferða-
skrifstofu ríkisins, og samnorræn
nefnd skipuleggur dagskrá. For-
maður beggja nefnda er Elfa-Björk
Gunnarsdóttir borgarbókavörður.
Þátttökueyðublöðum verður
dreift í desember. KHP
Norrænt bókmenntaár 1983 — 84
er haldið á vegum norrænu félag-
anna og eru skólar og almennings-
bókasöfn hvött til að leggja sitt af
mörkum til að gera þennan viðburð
eftirminnilegan.
Bókmenntaárið hófst í byrjun
október og var opnað með viðhöfn í
Norrænahúsinu.
Dagskrár verða í útvarpi og sjón-
varpi, norrænir rithöfundar koma í
heimsókn til íslands, geFið verður út
sérstakt veggspjald.
Ennfremur verður gefinn út sér-
stakur bókalisti yfir bækur sem
þýddar hafa verið á íslensku úr
Norðurlandamálum. Eintaki af
þessum lista verður dreift til safna,
en hægt verður að kaupa viðbótar-
eintök hjá Norræna félaginu í
Reykjavík.
Bókavörðum er bent á að leita
samvinnu við deildir norrænu félag-
anna, einnig leikfélög, kvenfélög og
önnur félagasamtök eða stofnanir
sem áhuga hafa á að standa fyrir
kynningu á norrænum bókmennt-
um.
Formaður norrænu bókmennta-
ársnefndarinnar er Hjálmar Ólafs-
son, formaður Norræna félagsins í
Reykjavík. KHP
Safnið tók formlega til starfa 1.
jan. 1983, en hefur verið á tveimur
stöðum fram að þessu. Verið er að
innrétta húsnæði í byggingu
Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17
og standa vonir til að safnið geti
flutt þangað fyrir árslok 1983.
KHP
BÓKASAFNIÐ
37