Bókasafnið - 01.12.1983, Qupperneq 10
skilað mestum hagnaði oggert kleift
að sinna frumsömdum bókum bet-
ur. Ungir höfundar og byrjendaverk
hafa líka sett svip sinn á útgáfuna.
Það er alltaf spennandi ef eygja má
skáldneista hjá höfundinum.
— Hefur bókaútgáfan tekið
miklum breytingum síðan þú byrj-
aðir?
Á þeim áratug, sem ég hef fengist
við útgáfuna af alvöru, hefur orðið
gjörbreyting á öllum verslunarhátt-
um í landinu, m.a. með tilkomu
stórmarkaða og aukinnar sam-
keppni, harðari markaðssjónar-
miða og stóraukinna auglýsinga- og
áróðursherferða. Þetta hefur vitan-
lega sett mark sitt á bókaútgáfu.
Annað mál er það, að meginþorri
bóka kemur út á tveim mánuðum
fyrir jól. Öll auglýsingaherferðin
stendur í einn mánuð. Hún hefur
orðið að yfirþyrmandi gauragangi.
Utgefendur reyna að öskra hærra en
hinir. Eg tel að bókaútgáfa sé komin
á mjög varhugaverða braut, og bók-
in skipi ekki sama sess í hugum
fólks og áður. Hún er komin á lægra
plan. Það verður að auglýsa og reka
áróður fyrir bókinni sem slíkri.
Bóksala byggist fyrst og fremst á
gjafasölu og á þar í samkeppni við
aðra vöru. Eg held þó, að almenn og
lifandi kynning á bókum sé skyn-
samlegri leið. Félög útgefenda og
bóksala gætu t.d. tekið höndum
saman i þessu skyni og einstakir
útgefendur því dregið úr sínum aug-
Iýsingum. Breytingar felast líka í
síauknum fjölda titla, sem hafa
komið út árlega, og þannig saxað á
upplög og sölu einstakra verka.
Handþækur og bækur sem fjalla um
tiltekin áhugmál, t.d. ljósmyndun,
skíðaiðkun o.fl., koma út í meira
mæli en áður.
— Telur þú að bókasöfn geti haft
áhrif á útgáfu ogsölu bóka?
Það er ekki spurning að bókasöfn
geta haft áhrif á útgáfu og sölu. Þýð-
ingarmest er að starfsemin stuðlar
að auknum bóklestri sem er grund-
vallaratriði. Hins vegar virðist
starfsemi margra safna tilviljunum
og duttlungum háð. Við höfum
reynt á síðustu árum að efla tengsl
við söfn um allt land með litlum
árangri. Fjárveitingar til bókakaupa
hafa bersýnilega verið skornar mjög
við nögl, þannig að kaup safnanna
breyta nánast engu í beinu Ijárhags-
legu tilliti og móta alls ekki val út-
gáfubóka. í nágrannalöndum okkar
er þessu öðru vísi farið, sérstaklega
varðandi barna- og unglingabækur.
Þar stendur ákvörðun útgefenda oft
og fellur með afstöðu og umsögnum
safnanna. Því hefur oft verið haldið
fram að sala til safna á bókum strax
við útkomu skaði sölu sömu bóka á
almennum markaði. Ég er annarrar
skoðunar nema í hlut eigi ómerki-
legar bækur, sem selja á í snatri á
fölskum forsendum. Slík útgáfa
safnar auðvitað glóðum elds að
höfði sér og á ekki að eiga sér stað.
Besta auglýsingin felst í jákvæðum
ummælum lesanda, sem miðlar
öðrum upplifun sinni af lestrinum.
Sala bóka hefur ekki aukist að und-
anförnu. Ef til vill geta bókasöfn
haft þar áhrif, ef þau fá skilyrði til
að auka bókakaup og gera starfsemi
sína ijölþættari, nútímalegri.
MIKIÐ
ÚRVAL
ÆTTFRÆÐI-
RITA
SÖGUSTEINN
Bókaforlag/bókaverslun
Týsgötu 8, 101 Reykjavík
Sími: 91-28179
10
BÓKASAFNIÐ