Bókasafnið - 01.12.1983, Page 31
Hópvinna í lesstofu bókasafnsfræöinema.
Sitt af hverju um Félag
bókasafnsfræðinema
Nemar í bókasafnsfræðum
við Háskóla íslands
/ tilefni af 10 ára afmœli Félags bókasafnsfrœðinga varfarið þess á leit
við nema í bókasafnsfræðum við Háskóla íslands að þeir gerðu grein fyrir
sögufélagssíns oghelstu starfsemi í gegnum árin ogfylgirsú samantekt hér
á eftir.
Félag bókasafnsfræðinema var
stofnað þann 12. mars 1976 en það
sama ár var þókasafnsfræðin færð úr
heimspekideild í nýstofnaða félags-
vísindadeild. Samkvæmt lögum fé-
lagsins geta félagar allir þeir orðið
sem skráðir eru til náms í bókasafns-
fræðum enda greiði þeir tilskilið fé-
lagsgjald. Hlutverk félagsins er að
hafa forgöngu í félagslífí, gæta hags-
muna félagsmanna í hvívetna og vera
fulltrúi þeirra innan Háskólans sem
utan. Einnig er starfsemi félagsins
fólgin í að halda sambandi við aðra
bókavarðaskóla á Norðurlöndum
með bréfaskriftum og þátttöku í ráð-
stefnum, efna til skoðunar- og kynn-
isferða í bókasöfn innanlands og efla
kynni og samstöðu nemenda eins vel
og kosturerá.
Árlega eru haldnar samnorrænar
ráðstefnur bókasafnsfræðinema á
Norðurlöndum. Hafa nú verið
haldnar 7 ráðstefnur og höfum við ís-
lensku nemarnir tekið þátt í ijórum
þeirra. Á þessum ráðstefnum eru tek-
in fyrir ýmis málefni sem tengjast
bókasafnsfræðum og bókasöfnum al-
mennt. Til að fullt gagn geti orðið af
ráðstefnum sem þessum er nauðsyn-
legt að sem flestir taki þátt í undir-
búningi og kynni sér niðurstöður.
Hver skóli velur sér aðalefni til að
fjalla um en ályktar einnig lauslega
um hin tvö. Undirbúningsvinna hjá
okkur hefur farið fram í umræðuhóp-
um þar sem málin hafa verið rædd og
hafa fulltrúar okkar síðan kynnt nið-
urstöðumar á ráðstefnunum. Sem
dæmi um þau margvíslegu málefni
sem tekin hafa verið fyrir má nefna:
hlutverk bókasafnsins í þjóðfélaginu,
námsskipulag, upplýsingamiðlun,
ókeypis reglan og margt fleira í þess-
umdúr.
Starfsemi félagsins hefur ekki ein-
göngu snúist um þessar ráðstefnur því
margt hefur verið gert hér heima.
BÓKASAFNIÐ
31