Bókasafnið - 01.12.1983, Page 32
Famar hafa verið skoðunarferðir á
söfn í nágrenni Reykjavíkur, upp á
Skaga og austur fyrir íjall. Mjög vin-
sælt er það meðal nema að fara og
skoða samsteypusafnið í Garðabæ,
vegna sérstöðu þess safns.
Ahugasamir félagsmenn hafa
fundið sér ýmislegt annað til upplyft-
ingar og yndisauka svo sem málfundi
og gönguferðir að ógleymdum
skemmtikvöldum sem oft hafa endað
á öldurhúsum bæjarins. Síðast en
ekki síst má nefna viku skoðunarferð
til London og Birmingham sem farin
var í febrúar 1978. Þegar heim kom
var haldið myndakvöld og lýstu
ferðalangar því sem fyrir augu bar
þarnaúti.
Tekið hefur verið upp á þeirri ný-
breytni að halda kynningarkvöld fyr-
ir nýnema í byrjun hvers haustmiss-
eris, þ.e. við upphaf náms. Á þessum
kynningarkvöldum er nemum skýrt
frá uppbyggingu greinarinnar og
Fláskólans í heild. Kynningferframá
hinum ýmsu námskeiðum sem í boði
eru og þá sérstaklega 1. árs námskeið-
um. Einnigernemumgerðgrein fyrir
starfsemi félagsins og þær nefndir sem
starfandi eru eru kynntar.
Umræður um námskeið eru alltaf í
gangi og snúast þær aðallega um
breytingar á eldri námskeiðum og til-
lögum um ný. Þessar umræður þykja
mjög nauðsynlegar og mikil þörf er á
að nemendur séu vakandi í þessum
málum. Námsnefnd hefur starfað
fremur vel á þessum vettvangi og m.a.
staðið fyrir mati á námskeiðum. Það
hefur farið þannig fram að útbúnir
hafaveriðsérstakirspurningalistarog
þeim dreift til nemenda. Eru nemar
beðnir um að segja álit sitt á ákveðn-
um námskeiðum t.d. gott/slæmt,
ábendingar um úrbætur, voru nemar
virkir/óvirkir, var vinnuálagið í
námskeiðinu í samræmi við eininga-
íjöldanno.s.frv.
011 aðstaða bókasafnsfræðinema
er mjög slæm, m.a. hefur félagið ekk-
ert afdrep til fundarhalda og nemar
enga aðstöðu til lestrar ef frá eru talin
nokkur borð á efri hæð Háskóla-
bókasafns sem nýtast mjög illa vegna
ónæðis frá safninu. Stendur þetta
störfum okkar mjög fyrir þrifum og
verða úrbætur í þeim efnum að teljast
helsta baráttumál okkar.
Málgagn okkar nemanna nefnum
við Blöðung og hafa 2 árgangar kom-
ið út af þessu margrómaða fréttabréfi.
Ætlunin er að reyna að halda uppi
reglulegri útgáfu, helst mánaðarlegri,
að undanskildum prófmánuðum.
Aðaltilgangurinn með útgáfu Blöð-
ungs er að hann verði vettvangur
nema í bókasafnsfræðum ti 1 skoðana-
skipta og umræðu jafnframt því sem
ýmislegt léttmeti fær að fljóta með
nemendum til uppörvunar og yndis-
auka. Einnig eru í Blöðungi birtar
fréttir frá stjóm félagsins og náms-
nefnd.
Félagið reynir að vera vakandi fyrir
því sem er að gerast í bókasafnsmál-
um á landinu, m.a. sendi það frá sér
fréttatilkynningu vegna þeirra hækk-
ana sem urðu á þjónustu almennings-
bókasafna og harmaði félagið mjög
þessa varhugaverðu þróun.
Ýmislegt fleira mætti tína til um
starfsemi félagsins en hér hyggjum
við nemar að nóg sé komið. Viljum
við að lokum óska Félagi bókasafns-
fræðinga til hamingju með tuginn
með ósk um enn betri tíð með blóm í
haga.
Þýska bókasafnið
Goethe Institut
Tryggvagötu 26
101 Reykjavík
Sími 91-16061
Stærsta safn þýskra bóka á íslandi
Menningarmiöstöð Sambandslýöveldisins Þýskalands
Fagurbókmenntir og fræðirit bæöi fyrir börn og fullorðna
Plötur, tónbönd, kennsluefni fyrir þýskukennslu
Dagblöö og tímarit
Safnið er öllum opiö og útlán endurgjaldslaus
Opiö þriöjudaga, miövikudaga og fimmtudaga frá 15.00—18.00
32
BÓKASAFNIÐ