Bókasafnið - 01.12.1983, Síða 38
CJr ýmsum áttum
Kynning á
starfsemi
bókasafna
Á vegum Bókavarðafélags ís-
lands, Félags almenningsbókavarða
og bókafulltrúa eru starfandi kynn-
ingarnefndir sem hafa það að mark-
miði að kynna starfsemi safna út á
við. Tilraun var gerð til að koma á
sérstakri Bókasafnaviku vorið 1982
og var m.a. gefið út sérstakt vegg-
spjald sem vakti verðskuldaða at-
hygli. Raddir hafa komið fram um,
að haustið sé heppilegri tími til
slíkra kynninga og eru bókaverðir
hvattir til að tjá sig um tímasetn-
ingu og koma fram með hugmyndir
um hvernig standa má að kynningu
safna til þess að hún nái til sem
flestra. Kynningarnefnd Félags al-
menningsbókavarða og bókafulltrúi
vinna nú að undirbúningi Bóka-
safnaviku 1984. Formaður nefndar-
innar er María Gunnarsdóttir bæjar-
bókavörðurí Vestmannaeyjum.
KHP
Nýir
forstöðu-
menn
miðsafna
Bókasafn Suður-Þingeyinga á
Húsavík: Elín Kristinsdóttir bóka-
safnsfræðingur hefur tekið við starfi
Þóris Friðgeirssonar sem stjórnað
hefursafninuallt fráárinu 1953.
Bœjar- og héraðsbókasafnið í
Neskaupstað: Helga Steinsson
kennari hefur tekið við starfi af Ingi-
björgu Magnúsdóttur, sem hefur ver-
ið forstöðumaður þess síðan árið
1963.
Bókasafn Vestmannaeyja: María
Gunnarsdóttir bókasafnsfræðingur
hefurtekið við starfi forstöðumanns
af Helga Bernódussyni. KHP
Sögu-
snældur
Lestrarnám verður barni bæði
auðveldara og skemmtilegra ef það
lærir ungt að hafa yndi af sögum og
ljóðum. Hlustun á vandað mál er
ein besta leiðin til að byggja upp
orðaforða barnsins.
Sögustokkur s.f. hefur sent frá sér
tvær snældur, Sögusnældu og Jóla-
snældu, ætlaðarbörnum á aldrinum
4—10 ára. Þar er að finna ýmsa
gamla kunningja. Á Sögusnœldunni
eru Gilitrutt, En hvað það var
skrýtið, Leggur og skel og Stúlkan í
turninum ásamt þulum og vísum.
Jólasnœldan hefst á jólaguðspjall-
inu en þar er einnig Litla stúlkan
með eldspýturnar, jólakvæði, þjóð-
sögur, þulur og vísur.
Börn hafa bæði gagn og gaman af
að hvíla sig frá önn dagsins og
hlusta á spennandi ævintýri og
þjóðsögur sem örva ímyndunarafl
þeirra og veita þeim innsýn í sam-
félag eldri kynslóðar.
Guðbjörg Þórisdóttir og Björg
Árnadóttir lesa. Kolbeinn Bjarna-
son leikur á flautu milli lestra.
Hólmfríður Árnadóttir sá urn útlit.
Lltgefendur
38
BÓKASAFNIÐ