Bókasafnið - 01.04.1995, Side 5
Dr. Laurel A. Clyde dósent, Háskóla íslands
Internetið
Internecið er orðið eitt umtalaðasta fyrirbrigði þessa áratug-
ar. í desember 1994 voru notendur þess fleiri en 38 millj-
ónir um allan heim og þeim fer daglega fjölgandi. Samt hef-
ur Internetið ekki sömu merkingu fyrir alla. Fyrir suma er
það upplýsingabrunnur, fyrir aðra er það tæki til að eiga sam-
skipti við fólk, það er hægt að nota í fjáröflunarskyni, til að
stunda rannsóknir, fyrir sjálfsnám, til að fá útrás fyrir sköpun-
argáfuna, sem útgáfukerfi, tæki til að hafa áhrif á fólk, sem
tómstundagaman og leikfang.
Bókaverðir voru meðal fyrstu notenda Internetsins og
þessi tækni er orðin viðtekin í mörgum bókasöfnum. Sumir
bókaverðir telja að Internetið bjóði upp á hina endanlegu
lausn allra bókavarða, þ.e. fullkomnun hugsjónarinnar um
„bókasafn án veggja“ sem er öllum aðgengilegt hvenær sem
er. En þeir bókaverðir eru einnig til sem líta svo á að þetta sé
hin endanlega ógnun - og rök beggja eru mestmegnis þau
sömu.
Hvað er Internet?
Internetið er umfangsmikið net sem tengir saman önnur
tölvunet - staðbundin, svæðisbundin eða á landsmælikvarða.
Nánari skilgreining á Internetinu er varla möguleg. Tölvur
sem tengdar eru Internednu eru venjulega þannig úr garði
gerðar að þær geta átt samskipti sín á milli með því að notað-
ur er nokkurs konar staðall eða samskiptareglur sem kallaðar
eru TCP/IP. Þetta er oft skilgreint sem grundvöllur Internets-
ins. Samt sem áður eru tölvur tengdar við Internetið sem ekki
uppfylla þennan staðal. I reynd skiptir ekki máli hvaða skil-
greiningar eru notaðar um Internetið. Alltaf er hægt að finna
undantekningar og tölvur tengdar við netið sem ekki falla
undir neina skilgreiningu. I raun veldur þetta því að fólk á í
erfiðleikum með að skilja Internetið og þar eru blaðamenn
sem skrifa um það engin undantekning. Sem betur fer er
hægt að læra að nota það og hafa gagn af því án þess að vita
hvernig tæknin bak við það virkar.
Upphaf Internetsins má rekja til síðari hluta árs 1969 þeg-
ar tölvur í nokkrum stórum stofnunum á vegum bandaríska
ríkisins, aðallega rannsóknastofnunum og háskólum, voru
tengdar saman með þar til settum gagnaflutningslínum í
þeim tilgangi að samnýta upplýsingar meðal vísindamanna
sem unnu að verkefnum á sviði varnarmála. Árangur þessar-
ar samvinnu var rannsóknanetkerfi sem kallað var ARPA-
NET (sem síðan hefur verið aflagt enda þótt margar tenging-
arnar séu enn til staðar). I tengslum við þetta net voru settar
ýmis konar samskiptareglur, þ.e. reglur um aðferðir við að
senda og taka á móti skilaboðum og gögnum svo og reglur
um samskipti milli einstakra tölva. Aukin notkun alls kyns
tölva sem bættust við þetta tölvunet á níunda áratugnum
leiddi til ennþá afkastameiri og hraðvirkari neta. Fimm ofur-
tölvumiðstöðvar voru settar upp í Bandaríkjunum á vegum
Vísindaráðs Bandaríkjanna (National Science Foundation)
árið 1985 og ýmis konar tölvunet, sem sett höfðu verið upp
til að þjóna staðbundnum og svæðisbundnum þörfum,
tengdust inn á tölvurnar fimm sem mynduðu uppistöður
netkerfisins. Er tímar liðu tengdust fleiri og fleiri tölvur inn á
netið og þar sem hver þessara tölva var einnig tengd við aðr-
ar tölvur jókst umfang nettenginganna hröðum skrefum.
Netkerfi á landsvísu og alþjóðleg net í Evrópu, Kanada, Ástr-
alíu, á Norðurlöndunum og annars staðar urðu hluti af þessu
sívaxandi neti. Nú til dags eru tölvukerfi á landsvísu eða
svæðisbundin í meira en eitt hundrað löndum samtengd á
einhvern hátt til að skapa hið umtalaða Internet. Aætlanir um
fjölda tengdra tölva gera ráð fyrir að tvær, þrjár eða fleiri
milljónir tölva séu tengdar inn á Internetið.
ISnet er samheiti yfir íslenska hluta Internetsins. I gegnum
ISnet geta menntastofnanir, rannsóknastofnanir, ríkisstjórn
og viðskiptastofnanir hér á landi komist í samband við Inter-
netið. ISnet er starfrækt af Reiknistofnun Háskóla Islands fyr-
ir SURIS, Samtök um upplýsinganet rannsóknaraðila á Is-
landi. Tengingar við útlönd eru í gegnum tölvu- og gervi-
hnattartengingu ISgate til NORDUnet-miðstöðvarinnar í
Stokkhólmi í Svíþjóð. NORDUnet, norræna uppistöðunetið,
er samvinnuverkefni rannsókna- og menntaneta Danmerkur
(DENet), Finnlands (FUNET), íslands (ISnet/SURIS), Nor-
egs (UNINETT) og Svíþjóðar (SUNET). Frá NORDUnet
eru tengingar við Evrópsk net og yfir til Norður Ameríku.
Samt sem áður eru þessar tengingar „ósýnilegar“ Internet-
notendum. Notendur slá inn póstföng einstaklinga eða upp-
lýsingastofnana eða einhverrar tölvu einhvers staðar og hug-
búnaðurinn kemur á sambandi án þess að notandinn sé endi-
lega meðvitaður um hvaða leiðir eru farnar frá einni tölvu til
annarrar.
Einstök net eins og ISnet sem sameiginlega mynda Inter-
netið geta haft netstjórn fyrir sig en Internetið sem slíkt hef-
ur enga yfirstjórn og er því fremur hugtak en að hægt sé að
skilgreina það sem stofnun. Bak við það er engin miðstöð á
alþjóðlegum vettvangi þó til séu stofnanir og nefndir sem
geta haft áhrif á staðla og vinnuaðferðir. í framkvæmd eru
notaðir staðlar sem mótast hafa með tímanum og við þá er
notast að meira eða minna leyti. Internetið varð til vegna þess
að tæknin gerði það kleift fremur en að til hafi komið ein-
hvers konar áætlanagerð um framkvæmdina. Það nær út fyr-
ir öll landamæri, allar reglur og fyrirskipanir.
Það er nokkuð einkennilegt að einmitt góður árangur
Internetsins sem mjög óformlegs fyrirbrigðis skuli ef til vill
leiða til stífara eftirlits með því. Hugmyndin um eftirlit kem-
ur til afýmsu: Milljónir manna notfæra sér Internetið í mis-
munandi tilgangi á degi hverjum og jafnframt á sér stað þró-
un nýrra leitarforrita sem kalla á meiri „bandbreidd" á sam-
skiptatengingunum. Stíflur myndast í netunum, þau verða
hæggengari og svartíminn lengist.
Þar að auki hefur komið fram þrýstingur í einstaka lönd-
um í þá átt að Internetið verði opnað viðskiptaheiminum í
ýmsum tilgangi. Þrýstingur er líka á öðrum stöðum í þá veru
að fá meira pólitískt vald yfir netunum. Þannig er líklegt að
breytingar verði í framtíðinni þó að ekki sé fullljóst í hvaða
átt þessar breytingar muni verða.
Hjálpartæki ogpjónusta á Internetinu
Þrátt fyrir það að uppbygging Internetsins sé fremur ó-
skipulögð eru þó til hjálpartæki og þjónusta sem hjálpa fólki
við að „sigla" um netið, senda tölvupóst á réttan stað, koma
Bókasafiiið 19. árg. 1995 5