Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 85

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 85
Útskriftaraldur var á bilinu 31-69 ár. Tæp 80% eru yfir fer- tugu við innritun í námið og tæp 93% eru yfir fertugu við útskrift, reyndar eru rúm 58% yfir fimmtugu við útskrift. Frá árinu 1991 hefur dregið úr aðsókn í bókavarðanám Bókafulltrúa ríkisins og Bréfaskólans. Arið 1992 innrituðust 17 manns, 11 innrituðust árið 1993 og árið 1994 innrituðust 7. Skipting á milli kynja er sú að meðal 35 innritaðra eru 7 karlar eða 20%. (Upplýsingar fengnar á Skrifstofu bókafull- trúa ríkisins 1995 og á Skrifstofu Bréfaskólans í mars og júní 1994). Ætla má að uppsafnaðri þörf á menntun ófaglærðra bóka- varða almenningsbókasafna hafi verið mætt og að nú innritist aðallega þeir ófaglærðu bókaverðir á almenningsbókasöfnum sem bætast við í mannafla þeirra. Tafla 4 A: Aldur fólks við innritun í bókavarðanám bókafúlltrúa ríkisins og Bréfaskólans til sumarsins 1991. Aldur fólks við innritun Fjöldi Hlutfall af heild 20-30 ára 4 3.7% 31-40 ára 18 16.7% 41—50 ára 29 26.9% 51-60 ára 42 38.9% 61—70 ára 13 12.0% 71-80 ára 2 1.9% Alls: 108 100.1% Ekki fengust upplýsingar um aldur allra við innritun. Tafla 4 B: Aldur fólks við útskrift í desember 1993 Aldur fólks við útskrift Fjöldi Hlutfall af heild 31—40 ára: 4 7.3% 41-50 ára: 19 34.5% 51-60 ára: 27 49.1% 61—70 ára: 5 9.1% Alls: 55 100% Endurmenntunarnámskeið Að jafnaði eru haldin milli 5 og 10 endurmenntunarnám- skeið árlega á vegum ofannefndra endurmenntunaraðila. Þau sækja árlega um 50 manns af íslenskum bókasöfnum. Nám- skeið haldin á vegum íslenskra aðila eru yfirleitt vel sótt. Sam- norræn námskeið og hringborðsfundir, á vegum NORDBOK og Nordinfo, eru haldnir til skiptis á Norður- löndunum. Þegar þau eru haldin hér á landi eru þau vel sótt af Islendingum og sömuleiðis þau námskeið, sem haldin eru á hinum Norðurlöndunum og styrkir fást til að sækja. Auk þess eru haldnar ráðstefnur, námstefnur og hring- borðsfundir á vegum þeirra og annarra aðila (Upplýsingar fengnar frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands og gögnum frá NORDBOK og Nordinfo). Onnur menntun starfsfólks bókasafna en bókasafnsog upplýsingafrœði og bókavarðanám bókafulltrúa ríkisins og Bréfaskólans Starfsfólki var skipt í 6 starfshópa eftir menntun, sjá töflu 1 og 2 auk sjálfboðaliða. Jafnframt var beðið um upplýsingar um aðra menntun starfsfólks, og var þá jafnt átt við sjálfboða- liða sem aðra starfsmenn. I svörum kemur fram að þeir sem hafa háskólapróf í öðru en bókasafns- og upplýsingafræði eru flestir með próf frá heimspekideild 36 manns, næstflestir eru útskrifaðir frá fé- lagsvísindadeild 26, í raunvísindum 7, lögfræði 2, guðfræði 1, viðskiptafræði 1, hjúkrun 1, myndlist 1, 1 fóstra og 2 íþróttakennarar. Margs konar önnur menntun var tilgreind af öllum skólastigum. Endurskoðun á námi í bókasafns- og upplýsinga- fraði Umræða um endurskoðun á námi í bókasafns- og upplýs- ingafræði hefur staðið yfir hátt í áratug. Arið 1989 hélt Félag bókasafnsfræðinga málþing um menntun og störf bókasafns- fræðinga. Tillögur, sem þar voru settar fram, um endurskipu- lag námsins og framtíðarstefnu í bókasafns- og upplýsinga- fræði við Háskóla íslands komust ekki til framkvæmda (Mál- þing Félags bókasafnsfræðinga 1989). Vettvangsnámið var endurskoðað 1992-1993 og endurskoðun á skyldunámskeið- um í BA-námi í bókasafns- og upplýsingafræði var gerð vet- urinn 1993 til 1994 hvort tveggja í samræmi við tillögur frá nemendum, starfandi bókasafnsfræðingum og kennurum á þann hátt sem fram kemur í Kennsluskrám íyrir háskólaárin 1993-1994 og 1994—1995. Sem fyrr greinir hefur MA nám verið tekið upp við félagsvísindadeild. (Kennsluskrá Háskóla íslands háskólaárið 1994-1995). Enda þótt hefðbundin bókasafnsstörf séu það sem flestir bókasafnsfræðingar munu sinna, a.m.k. í náinni framtíð, verður að miða námsframboð í bókasafns- og upplýsingafræði við breiðari starfsvettvang en bókasöfn eingöngu, til þess að búa fólk undir störf í upplýsingaþjóðfélagi okkar tíma og framtíðarinnar. Við frekari endurskoðun á námi í bókasafns- og upplýs- ingafræði verður að taka mið af því að víða í þjóðfélaginu er æ meiri þörf á fólki með þekkingu og reynslu við að skipu- leggja upplýsingakerfi fyrir söfn margs konar gagna og jafn- framt við að flokka, skrá og Iykla þau gögn. Upplýsingaleitir og miðlun upplýsinga verður einnig mjög mikilvæg en með framþróun tækninnar verða upplýsingaleitir og miðlun æ auðveldari og við það munu fleiri fást en bókasafnsfræðingar. Jafnframt verður að huga að því að æ meiri krafa verður gerð um að fólk við upplýsingaþjónustu hafi sérþekkingu á því sviði sem það miðlar upplýsingum á. Því er tímabært að skipuleggja sérstaka námsleið ætlaða fólki sem lokið hefur há- skólaprófi í annarri grein og kýs að starfa við upplýsingastörf á því sviði. Æskilegt er að kanna nauðsyn þess að bjóða upp á fjöl- breyttara fjarnám en nú er í boði, bæði með tilliti til náms- stigs og námsefnis. Þannig þyrfti að kanna nauðsyn þess að bjóða upp á slíkt nám í bókasafns- og upplýsingafræði til BA- prófs, fjarnám sambærilegt við bókavarðanám Bókafulltrúa ríkisins og Bréfaskólans fyrir starfsfólk allra bókasafnategunda og einnig fjarnám fyrir upplýsingatækna (aðstoðarfólk) á bókasöfnum. Tilvalið er að nýta að einhverju leyti nýjustu fjarskipta- og miðlunartækni í þessu skyni og æskilegt væri að fjarnámið væri að einhverju Ieyti í tengslum við Lands- bókasafn Islands - Háskólabókasafn. Þar sem það safn er nú best búið margmiðlunartækjum, auk þess sem þar starfa margir sérfræðingar sem gætu tekið að sér hluta kennslu. Einnig er tímabært að kanna nauðsyn þess að byggja upp upplýsingatækninám í fjölbrautaskólum. Til greina kemur að bjóða þar upp á sérstaka upplýsingabraut eða upplýsinga- námsleið sambærilega við t.d. náttúrufræðibraut. Nemar sem útskrifast af upplýsingatæknibraut myndu geta unnið aðstoð- arstörf við bókasafns- og upplýsingaþjónustu eða haldið á- fram námi í háskóla á þessu sviði. 3. Ritakostur Ætla má að á könnunartíma hafi fjöldi bókasafna verið á Bókasafiiið 19. árg. 1995 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.