Bókasafnið - 01.04.1995, Qupperneq 51
Sögustundarteppi.
Einnig geta bútar gerðir af samstarfsfólki reynst skemmti-
leg skilnaðargjöf þegar einhver hættir að starfa á safninu. Sig-
rún Hauksdóttir, aðstoðarkerfisbókavörður á Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni varð fyrir þessari skemmtilegu
reynslu þegar hún hætti á Braile Institute Library Services í
Los Angeles þar sem hún hafði starfað í rúm fjögur ár og
flutti til íslands. Vinnufélagarnir gáfu henni sinn bútinn hver
sem teiknaður var með upphleyptum fatalitum. Sigrún saum-
aði bútana svo saman þegar til íslands kom og vakti sauma-
skapurinn þá aftur upp minningar um starfið og félagana.
Minningin mun lifa a.m.k. svo lengi sem teppið er til. Alveg
eins og hver bók er ómetanleg heimild svo lengi sem hún er
til.
Eftir að lífi bókar lýkur eru bókfræðilegar skrár oft einu
heimildirnar um að bókin hafi einhvern tímann verið til. Um
bútasaumsbækur er til bókfræðileg skrá, Quilting 1915-1983
sem er heimild um útgáfu rita um bútasaum á þessum tíma.
Auk þess er hún ómetanleg heimild um mynstur, efni, liti,
snið og síðast en ekki síst sögu þeirra kvenna sem saumuðu
teppin.
Að þessu rabbi mínu Ioknu um bækur og búta tel ég mig
hafa sýnt fram á að mikill skyldleiki er með þessu tvennu.
Lestur bóka er skentmtileg, en off einmanaleg dægradvöl og
því gaman að geta talað um bækur. Oll tómstundaiðja hvort
sem hún er iðkuð í einrúmi, með vinahópi, starfsfélögum eða
á bókasafninu með
hinu fólkinu úr
hverfinu hlýtur að
vera af hinu góða.
Opnum því bóka-
söfnin og hleypum
tómstundunum inn.
Hvetjum notendur
safnanna til að staldra
við í bókasafninu og
hitta aðra hvort sem
er í leshring eða við
saumaskap.
HEIMILDIR:
Makowski, Colleen Lahan. 1985. Quilting 1915—1983 : an annotated
bibliography. Metuchen, New York, London : The Scarecrow Press.
New York Library Club celebrates centennial with a quilt. 1985. Quilters
Newsletter Magazine 173 (June): 6—8.
Your name in thread. 1983. American Libraries. April: 5.
SUMMARY
Books and Quilts
The author points out that it is very common that librarians enjoy quilt-
ing and the reasons for this are taken under consideration. It is stated that
quilting takes the same patience as writing a book, both is a puzzle, with
words and pieces respectively. Collecting books, library science and quilting
have the urge to collect beautiful things in common. The similarities
between library classification and quilting are shown. In 1885 Melvil Dewey
founded the New York Library Club, which was even commemorated 100
years later by making a quilt, which was exhibited in public libraries in the
United States. Five of the members of the editorial board of the journal
Bókasafnidixc. interested in quilting, which explains the choice of the photo
on the front page of this issue. This quilt is made by colleagues in Gerdu-
berg, a public library and a cultural center in Reykjavik. Since 1989 the
group meets regularly during the winter. The author suggests that libraries
should open their doors to groups working together on their hobbies, which
would in turn promote the library use.
Sigrún með vina-bútasaumsteppið góða.
Bókasafnið 19. árg 1995 51