Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 53

Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 53
sig. Því var ekki hægt að miða við ákveðna prósentutölu af heildarfjölda bókasafnsfræðinga en til þess að úrtakið yrði marktækt var ákveðið að það þyrfti að vera nokkuð stórt og ná til flestra svæða í hverju landi. Að samkomulagi varð að hvert land skyldi hafa jafnstórt úrtak enda þótt fjöldi bóka- safnsfræðinga í hverju landi væri mismunandi. Akveðið var að hvert land skyldi velja 120 aðila í úrtak. Þetta reyndist erfitt fyrir Island þar sem ekki eru svo margir bókasafnsfræð- ingar starfandi í almenningsbókasöfnum. Því var brugðið á það ráð að hafa þrjá hópa, bókasafnsfræðinga í almennings- bókasöfnum, ófaglærða bókaverði í almenningsbókasöfnum og bókasafnsfræðinga sem störfuðu á öðrum vettvangi en í almenningsbókasöfnum. Á þann hátt voru valdir 158 aðilar og er íslenska könnunin því nokkuð öðruvísi en hinar. Þegar upp var staðið var þó hægt að nota fyrsta hópinn á Islandi, þ.e. bókasafnsfræðinga í almenningsbókasöfnum, þar sem svörunin var nægileg til þess að gera íslensku þátttökuna marktæka. Svör hinna hópanna tveggja eru í nokkrum tilvik- um notuð í norrænu könnuninni en endanlega úrvinnsla og samanburður á viðhorfum þessara þriggja hópa er eingöngu unnin hér á landi. Svörun efitir hóp um Utsendir Iistar Svör Hópur 1 (Bókasafnsfræðingar i alm. söfnum) 51 39 (76.47%) Hópur 2 (BókasafnsfræSingar í öðrum söfnum) 53 33 (62.26%) Hópur 3 (Ófaglærðir bókaverðir í alm. söfnum) 54 31 (57.41%) í íslensku könnuninni var, eins og áður er sagt, 158 manna úrtak sem helgaðist af því að bókasafnsfræðingar í al- menningsbókasöfnum á íslandi töldust vera alls 51 og því var leitast við að fá viðmiðunarhópana álíka stóra. í Hópi 2 voru 53 bókasafnsfræðingar sem starfa utan almenningsbókasafna og í Hópi 3 voru 54 ófaglærðir bókaverðir. Við úrtak í Hópa 1 og 2 var notuð útprentun úr lista Fé- lags bókasafnsfræðinga en einnig var skoðaður listi yfir út- skrifaða bókasafnsfræðinga frá Háskóla íslands sem undirrit- uð hefur endurnýjað reglulega. Við val í Hóp 2 var miðað við að fá bókasafnsfræðinga úr öllum tegundum bókasafna til þess að svörin gætu ekki talist einskorðuð við eina tegund safna, t.d. skólasöfn. Við val í Hóp 3 var notuð skrá frá Bóka- fulltrúa ríkisins, Almenningsbókasöfh, þar sem finna má nöfn allra bókavarða sem starfa við almenningsbókasöfn um allt land. Leitast var við að velja bókaverði alls staðar að af land- inu og í öllum stærðum safna. Svörun Heildarsvörun úr íslensku könnuninni var aðeins 105 svör eða 66.45%, þar af var tveimur könnunum skilað óútfyllt- um. Innan hópanna var talsverður mismunur á svörun. A þessu sést að besta svörunin var hjá þeim hópi bóka- safnsfræðinga sem vinnur í almenningsbókasöfnum enda má segja að könnunin hafi verið einna best sniðin að þeirra veruleika. Góð svörun innan þessa hóps gerði það að verk- um, eins og áður sagði, að þeirra svör dugðu til að gera fram- lag Islands marktækt án þess að hinir hóparnir væru teknir með. I því sem hér fer á eftir er aðeins getið um svör við örfáum spurningum til þess að gefa lesendum ofurlitla innsýn í við- fangsefnið. Fyrst er gerð grein fyrir viðkomandi spurningu, síðan eru gefnar niðurstöður, þær túlkaðar og loks getið um svör og athugasemdir sem svarendur gáfu við hverri spurn- ingu sérstaklega. 1. Spurningar um ábyrgð Fyrstu spurningarnar í könnuninni tengdust hugmyndum um hvert sé aðalhlutverk bókavarðarins og hvernig hann sinni því. Hér togast á tvær meginstefnur, annars vegar for- sjárhyggja þar sem bókavörður lítur á það sem skyldu sína að hafa vit fyrir notendum sínum og hins vegar hugsjónin um óheft upplýsingaflæði þar sem aðalatriðið liggur í þjón- ustunni sjálfri. Hér vildu menn kanna hvort bókavörðurinn líri svo á að hann beri ábyrgð gagnvart notandanum á því safnefni sem hann lætur af hendi. Þetta er spurning um hliðstæðu við heil- brigðisstéttirnar eða lækninn sem ber ábyrgð á því að gefa réttu lyfin við sjúkdómnum - og í beinu framhaldi af því var verið að kanna hvert er hlutverk bókavarðar og bókasafns gagnvart notandanum. Ef bókasafnsfræðingurinn er sérfræð- ingur sem á tilkall til þess heitis ætti að vera hægt að gera kröfu um að hann geti séð fyrir afleiðingar þess að láta fólki í té skaðlegar upplýsingar. I þessum fyrsta kafla siðfræðikönnunarinnar var gefin upp dæmisaga sem hér segir: Dag nokkurn þegarþú ert d vakt í bókasafhinu tekurþú eft- ir unglingi sem reikar um bókasafnið. Loks herðir hann upp hugann og biður þig um hjálp. Þessi ungi maður segir þér að hann sé í menntaskóla og eigi að skrifa ritgerð um sjálfsvíg. Hann hefiir heyrt að nýlega sé komin út handbók einmitt um þetta efhi og vill gjarnan fá hana lánaða og biður þig að finna hana fyrir sig. Þú ert mjög í vafa um að hann segi satt. Hann virðist vera í ójafhvtegi og lítur þunglyndislega út. Hann gátti vel verið sjálfur í sjálfsvígshugleiðingum. Mundir þú hjálpa honum að finna bók sem bœri heitið „Handbók um sjálfsvíg‘? Ef þessi ungi maður í raun fremur sjálfsvíg, fyndist þér þú bera einhverja ábyrgð á því? í þessari töflu eru saman komin öll svör íslenskra þátttak- enda. Eins og sjá má á þessari töflu svara flesdr á þann veg að þeir mundu hjálpa viðkomandi við að fmna þessa bók. Hér eru það fleiri sem líta svo á að þeim beri skylda til að hjálpa notanda að fmna upplýsingar án tillits til þess hvernig viðkomandi ætlar að nota þær þótt sumir séu ekki alveg viss- ir. Nokkuð margir eru þó í vafa og eru jafnvel algerlega mót- fallnir því að hjálpa til við upplýsingaleitina. Miðgildi er rúmlega 3, þ.e. að þeir sem eru jákvæðir gagn- vart upplýsingamiðlun án tillits til væntanlegs notagildis eru fleiri en hinir en hins vegar er það eftirtektarvert hver margir eru ekki vissir. I Töflu 2 eru bornar saman skoðanir þeirra þriggja mis- munandi hópa sem tóku þátt í könnuninni á íslandi. Þar er Bókasafhið 19. árg. 1995 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.