Bókasafnið - 01.04.1995, Qupperneq 80
hafa nokkur skráningarkerfi verið skoðuð, m. a. Cartonet,
sem þróað var við háskólann í Edinborg. f því kerfi eru skráð
hnit kortanna og er leitað samkvæmt því, þ. e. eftir hnatt-
stöðu staða. (Heimildarmaður: Anna Stefánsdóttir bóka-
vörður).
Náttúrufræðistofnun íslands var einnig heimsótt og skoð-
að hvernig kort eru geymd og skráð þar. A stofnuninni er til
mikið af jarðfræðikortum, sem unnin hafa verið af starfs-
mönnum, og einnig berst fjöldi korta víða að úr heiminum.
Kortunum er skipt í tvo flokka, A og B, eftir því hvort þau
eru heil eða brotin. Kort B, heil, eru geymd í stórum kistum
með grunnum skúffum. Til er gömul viðarkista og önnur ný-
leg úr málmi. Hvert kort fær númer (aðfanganúmer), sem
skráð er á það, og þeim er síðan raðað í númeraröð í skúff-
urnar og þær merktar. Brotin kort, A, eru geymd í pappabox-
um í hillum. Þeim eru gefin númer eftir aðfangaröð á sama
hátt og hinum og raðað í boxin og þeim aftur í hillur eftir
númeraröðinni.
Skráning er með þeim hætti að kortin eru skráð í ACCESS
í stafrófsröð eftir löndum; þar er tilgreint númer (A eða B),
mælikvarði, útgefandi og útgáfuár, og kortin lykluð nokkuð
nákvæmlega eftir efni og svæðum. Hvert kort má svo finna í
hirslu eftir númerinu. Skrárnar eru prentaðar út hvor fyrir sig
(A og B) og liggja frammi til afnota. Einn af starfsmönnum
jarðfræðideildar sér um skráninguna. Til er á stofnuninni
skráningargagnagrunnurinn PROCITE, þar sem gert er ráð
fyrir kortaskráningu, en það hefur enn ekki verið tekið í notk-
un. (Heimildarmaður: Pálína Héðinsdóttir bókavörður).
Lokaorð
Samantekt þessa pistils reyndist sérlega skemmtilegt verk-
efni og margt kom á óvart. Séu meginatriði dregin saman í
örfá orð er niðurstaðan sú, að skráning, frágangur og varð-
veisla korta í söfnum er efni sem safnverðir þyrftu áreiðan-
lega að gefa meiri gaum en víða er gert nú. I kortum eru fólg-
in verðmæti sérstakrar gerðar, sem leggja þarf áherslu á að
varðveita. Gömul kort búa yfir miklum upplýsingum, sem
varpað geta ljósi á ýmsa þætti í sögu landa og þjóða. En það
nægir ekki að starfsmenn safna hafi vilja og áhuga á að bæta
úr. Þörf er fyrir mikið húsrými, sérhannaðar hirslur og annan
búnað og síðast en ekki síst starfsfólk, sem kann til verka. Allt
þetta kostar fé, sem einungis er á valdi stjórnvalda á hverjum
stað að útvega.
HEIMILDIR:
Capps, MarieT. 1972. Preservation and Maintenance of Maps. Special libr-
aries 63(10): 457-462.
Cernajsek, Tillfried 1990. Probleme der Aufbewahrung und Konservierung
von Karten an einer kleinen Fachbibliothek am Beispiel der Bibliothek
der Geologischen Bundesanstalt. LIBER Bulletin 37: 53-56.
Danckaert, Lisette 1987. Map curatorship in Belgium 1984-1986. Liber
News Sheet 19/20: 34-35.
Fairclough, R. H. 1972. Original or facsimile. New Library World73(863):
291-294.
Garnes, Kari 1990. The Norwegian National Progress Report for the Per-
iod 1984-1986. Liber News Sheet 19/20: 42.
Hebig, Christel 1987. Zur ErschlieBung der Kartenbestánde in der Bibliot-
hek des Staatlichen Museums fíir Mineralogie und Geologie zu Dres-
den. Zentralblatt jur Bibliothekswesen 101(3): 124-126.
Hill, Janet Swan 1977. Developments in Map Cataloging at the Library of
Congress. Special libraries 68(4): 149-154.
Hyde, Ralph 1972. What future for carto-bibliography? New Library World
73(863): 288-290.
Kidd, Betty 1980. Preventative Conservation for Map Collections. Special
libraries 71(12): 529-538.
Map cataloging manual. 1991. Prepared by Geography and Map Division.
Wasington : Cataloging Distribution Service, Library of Congress. [laus-
blaðamappa: viðbætur og breytingar berast þegar þær koma út].
Nichols, Harold 1982. Map librarianship. 2nd ed. London : Bingley.
Pelletier, Monique 1990. Map microfiches in the French National Library :
A new programme. LIBER Bulletin 37: 83-87.
Stevens, Stanley D. 1972. Planning a Map Library? Create a Master Plan!
Special libraries 63(4): 172-176.
Vejlsgaard, Susan 1990. Our attempts to solve storage and conservation
problems at the Royal Library map room despite limited space and lack
of economic means. LIBER Bulletin 37: 27-32.
Vick, Nancy J. og Romero, Nancy L. 1990. Cataloging Rare Maps. Catalog-
ingand Classification Quarterly. 10(4): 3-15.
Munnlegar heimildir:
Anna Stefánsdóttir bókavörður, Landmælingum íslands. Viðtal 8. nóvem-
ber 1993. Anna endurskoðaði kaflann um Landmælingar íslands ásamt
Sólveigu Arngrímsdóttur bókaverði í janúar 1995.
Pálína Héðinsdóttir bókavörður, Náttúrufræðistofnun íslands. Viðtal 10.
nóvember 1993. Pálína endurskoðaði kaflann um Náttúrufræðistofnun
íslands ásamt Hauki Jóhannessyni jarðfræðingi í janúar 1995.
SUMMARY
Maps in Libraries
Originally written as a thesis in the course Special libraries in Library and
Information Science at the University of Iceland. The different kinds of
maps are described various kinds of collections housing the maps and the
diverse equipment used for their storage. A brief outline of the history of
charto-bibliography is given. Further the preservation and maintenance of
maps are discussed. The importance of special training for map librarians is
stressed. The main rules and the different levels of descriptive cataloging of
maps are portrayed and the choice of the main heading and other access
points as well. The cataloging methods in two map collections are discus-
sed, i.e. in the Museum for Mineralogy and Geology in Dresden and in the
Geography and Map Division of the Library of Congress. The map divisions
of a few institutions are described, i.e. of the Royal Library in Copenhagen,
the Geological Institute in Wienna and the French National Library in Paris.
Finally two domestic map collections were visited, the one of the Icelandic
Geodetic Institute (Landmaelingar Islands) and the Icelandic Institute for
Natural History (Natturufraedistofnun Islands). Points out that maps,
especially rare maps, are commonly kept on microfiches. States that more
emphasis should be put on cataloging and preservation of maps, because
maps, particulary ancient ones, keep valuable information on countries and
nations. Concludes by pointing out that map collections need spacious
housing, specially designed storages and equipments, which can only be
provided by the authorities in each location.
lJ'f'cmcli fókvlisf
(yrir alla
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíó v/Hagatorg Pósthólf 7052 127 Reykjavík
Sími 562 2255 Símbréf 562 4475
9 9 9 9 9
80 Bókasafnið 19. árg. 1995