Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 84
fræðingur og hafa að öðru jöfnu kennsluréttindi á framhalds-
skólastigi".
I Lögum um almenningsbókasöfh nr. 50/1976, 10. gr. segir
að í embætti bókafulltrúa ríkisins skuli að öðru jöfnu ráða
eða skipa bókasafnsfræðing með reynslu í starfi. I 12 gr. sömu
laga segir að við bæjarbókasöfn (Borgarbókasafn Reykjavíkur)
og bæjar- og héraðsbókasöfn skuli forstöðumaður (yfirbóka-
vörður) að jafnaði vera bókasafnsfræðingur og að bókasafns-
fræðingar skuli að jafnaði hafa forgangsrétt til bókavarða-
starfa. I Reglugerð um almenningsbókasöfn nr. 138/1978, gr.
22 er fjallað um bókavörð (yfirbókavörð) almenningsbóka-
safns. Þar segir að bókasafnsfræðingur skuli að öðru jöfnu
gagna fyrir. Orðin: „að öðru jöfnu" og „að jafnaði" veikja á-
kvæði þessara laga og reglugerða.
I Lögum um Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafh, nr.
71/1994 eru engin ákvæði um menntun starfsmanna.
Menntunarleiðir
Þeir sem hyggjast starfa á sviði bókasafns- og upplýsinga-
fræði eiga þess kost að sækja nám í Háskóla íslands í bóka-
safns- og upplýsingafræði til BA og MA prófs. Framhalds-
nám í bókasafns- og upplýsingafræði þurfti að sækja til út-
landa fram til haustsins 1993, þegar MA nám var tekið upp
við félagsvísindadeild Háskóla Islands. I Kennsluskrá Há-
skóla íslands 1993-1994 og 1994—1995 er sá fyrirvari hafð-
ur á kynningu MA náms í félagsvísindadeild að nauðsynleg-
ar fjárveitingar fáist.
Eingöngu er um að ræða svokallað rannsóknatengt fram-
haldsnám þar sem kennari og nemandi sækja saman um til
rannsóknaverkefnis. A síðasta kennsluári voru aðeins 25
nemendur í slíku MA námi við Háskóla Islands. Aðgangur
að því er því mjög takmarkaður, þegar þetta er ritað og full-
nægir engan veginn þörfmni á MA námi.
Við erlenda háskóla færist í vöxt að hægt sé að taka MA-
nám í bókasafns- og upplýsingafræði í fjarnámi. Nokkrir ís-
lenskir bókasafnsfræðingar hafa eða eru að nýta sér það.
Flestir bókasafnsfræðingar með framhaldsmenntun hafa þó
stundað námið með hefðbundnum hætti við erlenda há-
skóla, aðallega í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlönd-
unum.
Almenningsbókaverðir eiga auk þess kost á að taka bóka-
varðanám bókafúlltrúa ríkisins og Bréfaskólans. Skólasafn-
verðir hafa einnig tekið það nám og sum ár stendur þeim
einnig til boða að taka skólasafnsnámskeið í Kennaraháskóla
Islands.
Endurmenntunarnámskeið eru haldin á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskólans, á vegum samnorrænu
nefndanna: Norrænu upplýsingamálanefndarinnar (Nordin-
fo — Nordiska samarbetsorganet för vetenskaplig inform-
ation) og Vinnuhóps um samstarf norrænna almennings-
bókasafna innan Norrænu bókmennta- og bókasafnsnefnd-
arinnar (NORDBOK - Nordiska literatur- och biblioteks-
komitéens arbeitsgrupp för nordisitt folkeblioteksamarbeite
NORDFOLK).
Þá heldur Samband norrænna rannsóknarbókavarða
(NVBF - Nordiska vetenskapliga bibliotekarförbundet) svo-
kallaðan Norrænan sumarháskóla og hringborðsfundi um
málefni sem brýn eru hverju sinni.
Nýting Bókasafns- og upplýsingafrœðináms
Hér á landi útskrifaðist fyrsti bókasafnsfræðingurinn árið
1964. í desember 1994 höfðu 239 bókasafnsfræðingar út-
skrifast, 87.9% þeirra voru konur. Það hlutfall hefur heldur
hækkað frá febrúar 1991 þegar um 86% útskrifaðra voru
konur. Hlutfall kvenna meðal bókasafnsfræðinga er mun
hærra en meðal starfsmanna bókasafna í heild þar sem það er
77%. Að auki höfðu 17 bókasafnsfræðingar útskrifast með
BA próf eða sambærilega menntun erlendis árið 1983 sam-
kvæmt Bókavarðatali (Guðrún Karlsdóttir 1987), við þá tölu
hefur eitthvað bæst síðan það kom út. Milli tuttugu og þrjá-
tíu hafa tekið MA próf og einn doktorspróf.
I töflu 2 kemur fram að fjöldi bókasafnsfræðinga í starfi á
bókasöfnum er 145, í rúmum 113 stöðum. Það segir aðeins
til um nýtingu hluta bókasafnsfræðinga því þeir sem starfa
við kennslu, rannsóknir og ýmis konar upplýsingastörf, t.d. á
Upplýsingastofu Háskólans um nám erlendis, eru ekki taldir
hér með. Og að sjálfsögðu hafa orðið afföll á bókasafnsfræð-
ingum vegna aldurs, fráfalls og brottflutnings úr landi, auk
þess sem upplýsingar fengust aðeins um starfsfólk um 65%
bókasafna.
Aldursdreifing bókasafnsfræðinga
Flestir bókasafnsfræðingar útskrifast á aldrinum 24—28 ára
(sjá töflu 3) en útskriftaraldur þeirra, sem útskrifast höfðu
fram til desember 1994 var á bilinu 22-59 ár. Meðalaldur
bókasafnsfræðinga við útskrift var um 31 ár í febrúar 1991
en rúm 32 ár í desember 1994. Meðalútskriftaraldur karla
var um 28 ár í febrúar 1991 tæp 30 ár í desember 1994.
Meðalútskriftaraldur kvenna var um 32 ár í febrúar 1991,
hann hafði hækkaði í 32,5 í desember 1994. Fjöldi bóka-
safnsfræðinga sem útskrifast árlega er það lítill að örfáir ó-
venju ungir eða gamlir einstaklingar geta breytt meðalaldri
útskrifaðra töluvert.
Meðalútskriftaraldurinn 32 ár þýðir að meðallengd
starfsævi miðað við starfslok við 67 ára aldur er um 35 ár. Ef
nemar í bókasafns- og upplýsingafræði innrituðust strax að
loknu stúdentsprófi tvítugir að aldri og lykju námi á þremur
árum yrði lengd starfsævi 44 ár í stað 35 ára nú, sem þýddi að
um 20% færri þyrfti að mennta til að sinna sömu störfum á
sama tímabili en nú þarf, en þá er ekki tekið tillit til margs
konar affalla sem óhjákvæmilega verða í öllum starfsstéttum.
Ekki hafa fengist upplýsingar urn hvernig þessu er háttað í
öðrum greinum, e.t.v. er það svipað. Rétt er að taka fram í
þessu sambandi að ennþá hefja margir nemar í bókasafns- og
upplýsingafræði störf á þessu sviði þannig að nýting mennt-
unarinnar í starfi er tiltölulega meiri en útskriftaraldur gefur
til kynna.
Tafla 3: Dreifing útskriftaraldurs bókasafnsfræðinga á
aldurstímabil til desember 1993:
Aldur fólks við útskrift Fjöldi Hlutfall afheild
22-30 ára 140 58.6%
31—40 ára 57 23.9%
41-50 ára 28 11.7%
51-60 ára 14 5.9%
Alls: 231 100%
Nýting Bókavarðanáms bókafulltrúa ríkisins
og Bréfaskólans
Bókavarðanám bókafulltrúa ríkisins og Bréfaskólans hófst
1986, eftir margra ára undirbúning. Fyrstu nemendurnir út-
skrifuðust 6. október 1989. Sumarið 1991 höfðu 114 manns
innritast. Konur voru í miklum meirihluta eða 106 innrit-
aðra og 42 af 44 sem útskrifast hafði. Frá sumrinu 1991 til
desember 1994 höfðu 11 útskrifast til viðbótar, allt konur.
84 Bókasafnið 19. árg. 1995