Dagur - 21.02.1998, Side 6
22 - LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998
Tkyptr
LÍFIÐ í LANDINU
Draumur eða della?
Lítið sjálfs-
öryggi,
skert
sjálfsímynd
og engin
sjálfsvirð-
ing eru megin þættir
ótmmingju og vanlíð-
unarbamaogung-
linga.Hvað ertil
bragðs? Er lausnin sú
að senda krakkana á
námskeið sem eiga að
bæta sjálfstraustið?
Em þessi námskeið
fjáifesting til framtíð-
ar?
Skiptar skoðanir eru um gildi
slíkra námskeiða og margir ekki
sáttir við að þau séu kölluð
sjálfsstyrkingarnámskeið, þau
ættu frekar að kallast módel-
námskeið.
„Námskeiðið hjá mér er ætlað
öllum. Ekld bara þeim sem lang-
ar í módelbransann," segir Kol-
brún Aðalsteinsdóttir sem á og
rekur skóla John Casablancas. í
janúar auglýsti Kolbrún nám-
skeið, s.k. sjálfsstyrkingarnám-
skeið, fyrir börn á aldrinum 10
til 12 ára, þar sem farið er í
þætti allt frá augnsambandi og
feimni upp í sjálfsvörn og fíkni-
efnafræðslu. „Þessir krakkar
sem koma til mín ætla sér ekki
endilega út í módelheiminn. Við
erum ekki að kenna hér eitthvað
sem örfáir ná árangri í. Hvernig
dettur fólki það í hug. Ekki lýg
ég að börnunum. Það er ekki
mín taktík. Ég vil að krakkarnir
læri til að geta unnið fyrir sér.“
Það sem krakkar þnrfa á að
halda út í þjóðfélagið
En hvað hefur ýtt Kolhrúnu af
stað með þessi sjálfsstyrkingar-
námskeið?
„Þörf,“ segir hún. „Það sem ég
kenni krökkunum mínum er
eitthvað sem þau þurfa á að
halda út í þjóðfélagið í dag og
það sýnir sig. Svona námskeið
eiga fullan rétt á sér. Sjáum, við
erum að missa börnin okkar út í
reykingar 11 ára og 12 ára göm-
ul börn eru farin að drekka
áfengi. Það þarf að uppfræða
börnin. Það þýðir ekki að missa
þau út á götu því fólk nennir
ekki að tala. Það er hræðilegt
hvað samskipti eru orðin lítil og
það að fólk kann ekki sam-
skipti."
Hún byggir námskeiðin á
þekkingu sem hún hefur viðað
að sér í gegnum árin eftir starf
sitt með börnum og unglingum.
En þó ekki síður á reynslu sinni
úr módelheiminum. „Eg hef far-
ið út um allan heim en sæki
þekkingu mína aðallega til
Bandaríkjanna og Evrópu. Eg
áhersla til að
hyggja upp ungling
með lítið sjálfsálit ?
„Það er þannig að
þeir sem koma á
námskeiðin taka
alltaf með sér alla þá
reynslu sem við viðum
að þeim. Það sem \áð
t.d. meinum með göngu
er að það er verið að
kenna fólki að bera sig
rétt. Ganga og líkamsstaða
eru tvö atriði sem geta
skipt máli í lífinu hvort sem
um er að ræða fyrirsætustörf
eða hið daglega líf. Rétt
staða stuðlar að betri heilsu,
líðan, ánægju og velgengni."
Og tímarnir eru fjölbreyttir.
Farið er í augnsamband og
feimni, það að Iáta ekki traðka á
sér, leikræna tjáningu, hvernig á
að standa upp og tala frammi
fyrir fjölda fólks, það að vera
maður sjálfur, að finna sig.
„Krakkamir hafa opnað sig vel
og það er þess vegna sem
námskeiðin hafa spurst út.“
Krakkarnir taka mikliun
hreytingum
Kolbrún er farin að teygja sig
lengra því núna er hún farin
að vinna með nokkrum af skól-
um borgarinnar. „Eg hef hjálp-
að mörgum ungmennum að
breyta rétt og taka öðruvísi á
málunum. Smám saman hafa
þessir krakkar mínir farið að
standa upp úr í því sem þau
eru að gera og því tekið mikl-
um breytingum."
Þegar hún er farin að
teygja sig þetta mikið inn á
hraut sjálfsstyrkingar ogfarin að
miðla þekkingu sinni markvisst
innan skólakerfisins er þá ekki
nauðsynlegt að vinna með sálfræð-
ingurn að slíkri up-pbyggingu?
leita uppi bestu kennarana til að
og sjá hvað þeir eru að
gera, sæki námskeið og tíni
það besta úr. Þannig skilar
árangurinn sér.“
Krakkamir opna sig og
námskeiðin spyrjast út
í auglýsingunni frá skóla
John Casablancas, sem
áður var nefnd, segir að
meðal þeirra þátta sem
kenndir eru á námskeiðinu
séu módel og ganga,
kynningar og
snyrting, og allt
eigi þetta að
stuðla að
betra sjálfs-
trausti og
sjálfsmati.
Er
þetta
ekki
skrítin
„Ég hef gert það. Unnið með
þeim í ráðgjöf og öðru þannig að
allt sem við erum að gera er
mjög rétt.“
Hver er með þér?
„Það er fólk frá hverjum skóla
fyrir sig. Ég hef mikið setið á
fundum með þessu ágæta fólki
og byggt tímana upp með þeirra
hjálp. Það hafa allir starfað
saman. Annars vil ég ekki tala
um þetta því að ég held að það
sé viðkvæmt fyrir krakkana, það
er ekki út af neinu öðru. Þeim
finnst orðið sálfræðingur mjög
neikvætt."
Hún bætir því við að í skólan-
um hjá sér þá komi það fyrir að
krakkarnir séu sálfræðimatur og
þegar slíkt komi upp þá vísi hún
þeim tafarlaust á frekari hjálp.
„Ég get ekki tekið við hverjum
sem er. Sumir þurfa meiri hjálp
en ég get veitt. En það sem ég
segi við alla er „þú skalt gleðjast
yfir lífinu því það gefur þér tæki-
færi til að elska, vinna og leika
þér og til þess að horfa upp til
stjarnanna."
Kotbrún Aðaisteinsdóttir.
Námskeiðm svala ákveðinni
þörf
Þva er ekki að neita að Kolbrún
byggir á reynslu sinni úr módel-
heiminum og sjálfsstyrkingar-
námskeiðin eru hluti af þeim
módelnámskeiðum sem hún
hefur haldið. En það eru fleiri
námskeið í gangi fyrir börn og
unglinga en hjá Kolbrúnu sem
að hluta til má segja að byggi
upp sjálfstraustið. Eitt slíkt er
módelnámskeið á vegum Eski-
mó módels en þar sameinast 20
ára reynsla Módel 79.
Þórey Vilhjálmsdóttir er einn
af eigendum Eskimó og meðal
þeirra sem kennir á námskeið-
inu en hún, ásamt Astu Krist-
jánsdóttur einum eigendanna,
vann sem fyrirsæta í 10 ár. Hún
segir þessi módelnámskeið mjög
vinsæl. „Krökkum finnst módel-
heimurinn spennandi og langar
til að prófa. Námskeiðin eru
samt alls ekki eingöngu fyrir þá
krakka og það er ekki verið að
lofa neinum starfi eftir slíkt
námskeið."
Hugmyndin hjá Eskimó er að
krakkarnir fái að prófa allt sem
viðkemur módelstarfinu, og
kemur þar sterkast inn tísku-
myndataka sambærileg þeim
sem tíðkast í möppum fyrisæta.
Einnig er verið að veita þeim
innsýn og svala almennri þörf.“
En hvað hafa krakkarnir upp
úr sltku námskeiði?
„Námskeiðin eiga að efla
sjálfstraust og þau gera það und-
antekningarlaust. Krökkunum
líður betur á eftir og þau eru ör-
uggari með sig. Þau eru á nám-
skeiðunum búin að sanna sig
fyrir sjálfum sér.“
Hentar þetta virkilega öllu
krökkum?
„Já, það gerir það. Við setjum
engin skilyrði og allir eru vel-
komnir. Tilgangurinn er að
krakkarnir hafi gaman af þessu
og þetta er því jafnt fyrir þá sem
ekkert erindi eiga í starf fyrir-
sætunnar og fy’rir þá sem ein-
hverja möguleika eiga.“
Hún segir að eina loforðið
sem gefið sé með árangur af
námskeiðinu sé að allir hafi
gaman af. „Við göngum ekki f
störf sálfræðinga en þetta eflir
sjálfstraust krakkanna."
Peningaplokk út í gegn
En það eru ekki allir á eitt sáttir
um gildi námskeiða fyrir börn og
unglinga sem byggja á módel-
heiminum og eru sögð efla
sjálfstraust og sjálfsímynd. Unn-
ur Arngrímsdóttir, eigandi Mód-
elsamtakanna, er ein þeirra en
Unnur hefur um árabil starfað
með börnum og unglingum að
sýningarstörfum.
„Ég er algerlega á móti því að
taka börn á námskeið sem heitir
módelnámskeið eða eitthvað
slíkt. Mín skoðun er sú að barn
á að koma fram sem það sjálft
annars verður það kjánalegt og
tilgerðarlegt."
Hún er heldur ekki sammála
því að slík námskeið veiti krökk-
um einhverja innsýn í fyrirsætu-
starfíð því það taki tíma að búa
til gott módel, það þurfi að hafa
rétt útlit og gerðar séu ákveðnar
grunnkröfur um grunnhreyfing-
ar sem unnið sé út frá. Þannig
dragi módelið fram sinn per-
sónuleika út frá grunninum sem
það hefur. Það túlki út frá eigin
hæfileikum. „Þau námskeið sem
eru í gangi gera þetta ekki og
þau veita heldur ekki rétta inn-
sýn. Hjá mér þá hef ég sérstök
námskeið fyrir stúlkur sem vilja
verða fyrirsætur að aðalstarfi. Ég
gef þeim þennan grunn sem
stenst hvar sem er í heiminum
en síðan er ég einnig með al-
menn námskeið í framkomu,
göngu og því sem fylgir.“
Hún segist aldrei myndu kalla
sín námskeið sjálfsstyrkingar-
námskeið þrátt fyrir að það
styrki manneskjuna á allan hátt
að fara í gegnum slíka þætti.
„Það sem Kolla er að gera er að
gera allt brjálað. Það var móðir
sem að hringdi í mig því að
Kolla vill að dóttir hennar fari í
einhveija hæfileikakeppni til
Unnur Arngrímsdóttir.