Dagur - 21.02.1998, Blaðsíða 18

Dagur - 21.02.1998, Blaðsíða 18
34-LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1998 Það er margsegin saga, að það er erfitt að vera frægur, mjög erfitt að vera frægari en frægur og að verða ofurstjarna er bein- Iínis hættulegt lífi og limum og hefur kostað margan manninn heilsuna. Fylgifiskar frægðarinn- ar eru svo ótal aðrir smáhlutir, sem viðkomandi stjörnur verða að láta sér lynda, sem þeir þó ella vildu vera lausir við. Metall- Alveg aS koma Eins og fram hefur komið hér fyrir allnokkru, hefur nýrrar plötu frá rokksveitinni Garbage, með söngkonuna skosku Shirley Manson í fararbroddi ásamt trommaranum og upptökustjór- anum fræga Butch Vig, verið beðið með töluverðri óþreyju um hríð. Gar- bageflokk- urinn sló rældlega í gegn með fyrstu sam- nefndu plötunni sinni 1995 og hefur hún nú selst í mörgum milljónum eintaka um heim allan. Mikil leynd hefur hvílt yfir nýju plöt- unni sem Garbage hefur verið að vinna síðustu mánuði, en nú þykir sýnt að platan komi út seinni hluta mars. Er gert ráð fyrir að smáskífa með Iíklega laginu Push it komi út nú í Iok febrúar eða byrjun mars og stóra platan fylgi svo í kjölfarið nokkrum vikum síðar. Allar Iíkur eru svo sömuleiðis á því að um nokkra stefnubreytingu verði um að ræða á nýju ónefndu plötunni. „Dökkt poþp“ kölluðu margir poppsérfræðingar efnið á fyrstu plötunni, en nú verður semsagt annað upp á teningn- um, e.t.v. meiri tæknivæðing í flutningi og tónlistin almennt með léttari blæ. Þetta skýrist allt innan tíðar og ættu fjölmargir aðdáendur bara að vera í start- holunum er glaðningurinn loks birtist. ica, langvinsælasta og kröftug- asta kraftrokksveit seinni ára, hefur t.d. fyrir sína ofurfrægð (sem m.a. staðfestist í því að sveitin hefur selt um og yfir 40 milljónir af plötum sínum) greitt þann toll að missa einn meðlima sinna, bassaleikarann Cliff Burton, í skelfilegu rútuslysi fýæ- ir rúmum áratug, auk þess sem ýmisleg persónuleg vandræði hafa hrellt hana. Þetta hefur þó ekki haft mikil áhrif á viðgang hennar til langframa og það er kaldhæðnislegt, að eftir lát Burtons og tilkomu eftirmanns hans, Jason Newsted, byrjaði frægðarsólin fyrst fyrir alvöru að rísa hjá Metallica. A síðustu árum hefur svo flest gengið í haginn og vinsældirnar og virð- ingin, langt út fyrir hinn hefð- bunda rokkgeira, hefur orðið nánast varanleg. Metallica er m.ö.o. orðið ein allravinsælasta hljómsveit heims og það verð- skuldað. En þótt svo hafi orðið og einstaklingarnir fjórir, Hettfi- eld, Ulrich, Hammett og New- sted, höndli allt saman vel og raunar betur en flestir aðrir rokkarar sem náð hafa svo langt, (enginn eiturlyfjavandi eða sjálfseyðingarböl í spilinu) er það bara annað sem ónáðar í staðinn. Þar er einkanlega átt við kjaftagang og eilíft neikvætt raus um HVERS VEGNA þeir eru svona happasælir og hvort það sé ekki t.d. vegna þess að þeir hafi „poppast", „linast" og „mýkst". Það gerðist vissulega með tilkomu upptökustjórans Bob Rock á „svörtu samnefndu plötunni" 1991, að áherslurnar breyttust nokkuð og beislun að nokkru átti sér stað. En slíkt var hreinlega nauðsynlegt og með tveimur síðustu verkunum, systraplötunum Load og Re-load frá 1996 og síðasta ári hefur það undirstrikast frekar. Það er svo líka skýrt og því verða bæði að- dáendur, sérstaklega þeir eldri, og aðrir sem gagnrýnt hafa, að kyngja, að fjórmenningarnir eru að gera hlutina eins og þeir \dlja hafa þá og hafa vel efni á því. Upphaflega var hugmyndin að þessar tvær síðustu plötur yrðu aðeins ein tvöföld. Hefði i ljósi reynslunnar kannski farið betur á því og gagnrýnin eflaust orðið minni. En svona varð samt út- koman og Re-load, sem kom út seinni hluta liðins árs er í heild litlu síðri en fyrri kaflinn. Low man's lyric, The memory rema- ins, Fuel, Prince charming og Better than you, eru allt rokk- smíðar í betri kantinum og sanna að skapararnir eru enn kraftmiklir og drífandi, ekki dauðir úr öllum æðum. Þá leyfir Hettfield sér m.a.s. ,að gera eins og gömlu sígildu tónskáldin fyrr á öldum, að semja tilbrigði við eigin stef og tekst það bara nokkuð vel með the unforgiven 2. (Hið fyrra var á svörtu plöt- unni). Og vel að merkja, þrátt fyrir nöldrið í ýmsum, fór Re- load á toppinn víða t.d. í Banda- ríkjunum og hefur nú selst í ein- hverjum milljónum eintaka um heim allan. Svo látum við bara tímann leiða það í ljós hvort breyting verður niður á við þannig að gagnrýnin reynist hafa rétt fyrir sér. En þangað til bíðum við og njótum þess sem kemur frá einni bestu rokksveit allra tíma. Hróssins viröi Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, er danstónlistin í öllu sínu margbreytilega veldi orðin ein af mest áberandi fyrir- bærum tónlistarinnar á ofan- verðri 20 öld. Deila má hversu merkileg hún er, en staðreynd- irnar tala bara sínu máli. Propellerheads er eitt af athygli- verðari nöfnunum i dansheimin- um um þessar mundir og félag- arnir tveir sem dúettinn skipa, mikils metnir af mörgum. Nýja platan þeirra, Alex og WiII, Deckanddrumsandrockandroll er 13 laga gripur sem eins og fram hefur komið, hefur verið lofaður í bak og fyrir og nefnd sem ein af þeim plötum sem standa muni upp úr þegar árið er liðið. Víst er að þessi hrósyrði eiga a.m.k. að einhverju leyti rétt á sér, því frísk og hressileg er hún svo sannarlega. Með allri nútímatækni blanda félagarnir saman hipp hopp, djassi, rokki og sálarpoppsáhrifum saman í heina kraftmikla kássu svo úr verður sannkölluð veisla og það á köflum mjög svo grípandi. Flestir kannast nú orðið við hið bráðskemmtilega History repeating þar sem hin dásam- Iega Shirley Bassey syngur með og er þar tvímælalaust um einn af snjallari smellum ársins hing- að til að ræða. Onnur lög og þá sérstaklega þau sem á eftir Hi- story koma eru svo mörg í glæst- ari kantinum. Winning style, Spybreak og þrælfín útgáfa af James Bond slagaranum On her majesty secret service (sem upp- haflega var gert fyrir sérstaka Bondlagaplötu er David nokkur Arnold stóð að, en hann átti t.d. heiðurinn með Björku að bíó- myndarlaginu frábæra Play dead fyrir nokkrum árum) eru lög sem tína má út úr sem dæmi um frískleikann og skemmtilegheit- in og sanna auk fleiri að það er engin tilviljun að þessir piltar, sem hafa heimsótt okkur Islend- inga í tvígang a.m.k. eru svo hróssverðir sem raun ber vitni. Magnús Geir Guðmundsson skrifar Popp- Frejnir *Landsmenn hafa vænt- anlega orðið varir við að búið er að frumsýna framhald hins vinsæla leikrits Olafs Hauks Símonarsonar, Gaura- gangs og nefnist framhaldið Meiri gauragangur. Eins og í fyrra skiptið er mikil tónlist í verkinu og er hún eftir Jón Olafsson píanóleikara með meiru og Olaf Hauk einnig að hluta. Þessa skemmtilegu tónlist sem Helgi Björns, Jón o.fl. flytja er nú að finna á nýrri geislaplötu sem Þjóð- Ieikhúsið og Skífan standa að. *Þegar endanlega varð ljóst fyrir rúmu ári að Stone roses, rokksveitin margfræga frá Manchester, sem að stór- um hluta ber ábyrgð á Brit- poppinu svonefnda, ætti sér ekki framtíð, en þá hafði henni misheppnast að halda áfram að marki eftir að gítar- leikarinn John Suire hætti, tók söngv- arinn Ian Brown þá ákvörðun að hætta í tónlist. Sú ákvörðun stóð hins vegar ekki nema stutt, þvf fáum mánuð- um síðar var hann kominn á samning við Polydor ris- ann og var platan hans fyrsta undir eigin nafni nú að koma út. Unfinished monkey bus- iness lcallast hún og verður ekki annað sagt en að henni hafi verið vel tekið því hún fór rakleiðis í fjórða sæti breska sölulistans fyrir viku. Brown ætlar því að verða lít- ill eftirbátur Squire, sem gengið hefur mjög vel með hljómsveitina sína Seahorses og fyrstu plötu hennar. *Að undanförnu hafa sögur gengið fjöllunum hærra um að reynt sé að fá rokkrisana í Rolling stones hingað til lands á næstu Listahátíð. Hvort það muni bera árangur skal varlega far- ið í að segja um, en ljóst er að menn hafa lengi haft hug á slíku. En vegna þess hversu mikið fyrirtæi það er, tug ef ekki hundruða milljóna kr. dæmi, hefur ekkert orðið úr því hingað til a.m.k. Ekki fyr- ir svo mjög löngu var talað um könnun á netinu um áhuga almennings og fleiri að leggja fram fé í framtakið, en hverning það tókst hefur litlum sögum farið af. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.