Dagur - 21.02.1998, Blaðsíða 8
24 -LAUGARDAGUR 2 1. FEBRÚAR 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Þau hjón Heimir og Dóra Þórhallsdóttir búa i Þingvallabænum, þremur burstum af fimm. I hinum tveimur er sumarbústaður forsætisráðherra. myndir: e.ól
Sr. Heimir
Steinsson
hæfirÞing-
völlum vel
Hann er
fræði-
mannslegur í útliti og
fasiogbermeð sér
rósemi og virðuleika
þess erhefurséð margt
og skilurað sumu er
ekkihægtað breyta.
Sr. Heimir Steinsson gegndi
starfi útvarpsstjóra í fimm ár.
Hann er nú kominn aftur á
Þingvelli og gegnir þar starfi
staðarhaldara og sóknarprests á
þessum kyngimagnaða stað, sem
er svo samofinn þjóðarsögunni.
Hann tekur á móti okkur á fal-
legum vetrardegi, er við komum
til að forvitnast um hagi hans.
Þingvellir eru eins og póstkort
þennan dag, þar sem vatnið skín
spegilbjart, gamli bærinn með
burstunum stendur virðulegur
og bíður þess sem koma skal og
birtan, þessi sérstaka íslenska
vetrarbirta, leiðir hugann að æv-
intýrum.
Við komum fyrst inn í skrif-
stofuna í fyrstu burstinni og
þaðan er gengið í stofu sem er í
næstu burst við. Inn af stofunni
er eldhús og fyrir ofan eru
svefnherbergin. Húsið er hlýlegt
og í því friður og notalegt and-
rúmsloft.
Talsverð viðbrigði
„Það eru viðbrigði að koma aftur
hingað til Þingvalla úr erilsömu
starfi útvarpsstjóra,“ segir Heim-
ir. „Mér fannst reyndar fjarska-
Iega gaman að vinna við Ríkisút-
varpið, þessa mildu menningar-
stofnun sem það er. Þar var ég í
fimm ár og að þeim fimm árum
liðnum stóð svo á að hér losn-
aði embætti. Mér fannst hitt
orðið ágætt og ákvað að koma
hingað aftur. Auðvitað eru þetta
gjörólík störf. Hjá útvarpinu
vinna um 400 manns og mikið
um að vera, en hérna er ég mik-
ið til einn.“
Þau hjón Heimir og Dóra Þór-
hallsdóttir búa í Þingvallabæn-
um, þremur burstum af fimm. I
hinum tveimur er sumarbústað-
ur forsætisráðherra. Húsið hefur
verið gert upp, en það var orðið
ákaflega illa farið þegar þau
hjón komu á staðinn fyrst til að
vera, árið 1981. „Bærinn var
orðinn ósköp hrörlegur, enda Iít-
ið haldið við áratugum saman
en hann var byggður árið 1930.
Konan mín átti veg og vanda af
breytingum sem hér voru gerðar
ásamt húsameistara ríkisins sem
teiknaði þær,“ segir Heimir.
Hluti breytinganna eru þær,
að stofan sem er falleg og sér-
lega rúmgóð, var steypt saman
úr fimm vistarverum. Eldhúsið
var endurnýjað, en stiginn sem
liggur upp á loftið er uppruna-
legur.
Þau hjón tóku með sér tals-
vert af húsgögnum sínum, eiga
sjálf þægilega Ieðursófasettið í
stofunni, en borðið og skenkur-
inn, sem eru f gamaldags út-
skornum stíl, eru eign Þingvalla.
Elísabet drottning í
heimsókn
„Það er nú kannski svolítið gam-
an að segja frá því, að hér eru af
og til haldnar opinberar heim-
sóknir," segir Heimir brosandi.
„í þessari stofu borðaði Elísabet
Englandsdrotting þegar hún
kom hingað í heimsókn árið
1990 og þá sátu hér um 30
manns. Fyrir þá komu voru öll
húsgögn rifin hér út og sett í
geymslu í eina viku, en annað
sett inn í staðinn, þannig að
þessi ágæta stofa nýtist til ým-
issa hluta."
Heimir er ekki bara staðar-
haldari á Þingvöllum, heldur
sinnir því starfi að vera prestur í
Þingvallaprestakalli líka.
„Söfnuðurinn er ekki mjög
stór, alls telur hann um 50 sál-
ir,“ segir Heimir. „En hann er
duglegur að sækja messu hér á
Þingvöllum," bætir hann við. „Á
sumrin er messað hér um hveija
helgi og þá sækir fjöldi aðkomu-
manna kirkjuna. Eg kann ákaf-
lega vel við mig hérna," segir
hann svo. „Hér er mjög góður