Alþýðublaðið - 03.02.1967, Page 3
Kínverjar sleppa
frönskum diplómat
PEKING og HONGKONG,
2 febrúar (NTB-Reuter).
Mótmælaaffgerðir fyrir utan
sendiráff Frakka og Rússa í Pe-
king héldu áfram í dag, en sam
tímis' leystist deila stjórnanna í
París og Peking um franska dipló
matinn og konu hans, sem rauffir
varöliffar gerffu affsúg aff í gær.
HAGNÝTING FISKIMIÐA:
Nokkrir af þingmönnum Fram-
sóknarflokksins ihafa flutt
þingsályktunartillögu, sem ger
ir ráð fyrir kosningu 9 manna
nefndar til að undirbúa setn-
ingu heildarlöggjafar um hag-
nýtingu fiskimiðanna umhverf-
is landið. Á að greiða kostnað
við störf nefndarinnar úr rík-
issjóði.
TÆKNIFRÆÐI
Gí§li Guðmundsson (F) og
fleiri hafa flutt þingsályktun-
artillögu um fullnaðarpróf í
tæknifræði. Gerir tillagan ráð
fyrir að hafinn verði undirbún-
ingur þess svo fljótt, sem unnt
er að menn igeti lokið hér
heima fullnaðarprófi í tækni-
fræðum, í Reykjavík eigi síð-
ar en 1970 og á Akureyri eigi
síðar en 1972.
FISKIRÆKT .
Sigurður Bjarnason (S) hefur
flutt þings'ilyktunartillögu um
að athugaðir verði möguleikar
á vísindalegu tilraunastarfi
með fiskirækt og uppeldi nytja
fiska í einstökum fjörðum, er
hentugir kynnu að þykja til
slíkrar starfsemi.
SKATTAMÁL
Alfreð Gíslason (K) hefur flutt
frumvarp um breytingu á lög-
um um tekju- og eignaskatt á
þann veg, að bætur almanna-
trygginga aðrar en fjölskyldu-
bætur skuli frádráttarbærar
frá skatti og komi þetta til
framkvæmda strax.
Einnig hefur Alfreð flutt
frumvarp um brcytingu á lög-
um úm tekjustofna sveitarfé-
laga um að bætur trygging-
anna aðrar en fjölskyldubætur
skulu vera undanþegnar útsvari
og heimilt sé að lækka útsvör
gjaldenda, sem orðnir eru 65
ára.
Mál þetta leiddi hins vegar til
þess, aff stjórnirnar skiptust á
mótmælaorffsendingum.
Kínverska lögreglan handtók
Frakkann, Robert Richard verzlun
arfulltrúa, og konu hans til að
yfirheyra þau um atburðinn, en
sleppti þeim úr haldi eftir þrjá
klukkutíma, Æstur múgur um-
kringdi bifreið Richards er hann
var á leið til sendiráðsins í gær,
neyddi hjónin til að fara út úr
bílnum og urðu þau að standa úti
í átta stiga frosti meðan múgur
inn lét öllum illum látum.
Kínverjar segja, að Richard
hafi ekið á mann og konu er bæði
hafi meiðzt. Sjálfur kveðst hann
hafa ekið á einn af hátalarabílum
rauðu varðiiðanna á litilíi ferð.
Að undanförnu hefur daglega ver
ið efnt til mótmælaaðgerða fyrir
utan franska sendjráðið í mót-
mælaskyni við handtökur kín-
verskra stúdenta, sem fóru mót-
mælagöngu til sovézka sendiráðs-
ins í Pafís í síðustu viku.
Þegar franski sendiherrann, Lu
cien Paye, kom í utanríkisráðu-
neytið í kvöld til að mótmæla at
burðinum svaraði Lo Kuei-po að_
stoðarutanríkisi’áðherra með mót
mælum gegn mótmælum Frakka
og tók fram, að nema þvi aðeins
að Frakkar bæðust afsökunar
yrðu þeir að bera ábyrgð á hugs
anlegum afleiðingum atburðarins.
Kínverjarnir tveir, sem sagt er
að Richard hefði ekið á, skutu
upp kollinum í ráðuneytinu og
báru fram mótmæli við sendiherr
ann
Á meðan þessu fór fram héldu
rauðir ' varðliðar áfram mótmæla
aðgerðum utan við sovézka sendi
ráðið, áttunda daginn í röð, en
sovétstjórnin hefur ákveðið að
flytja konur og börn úr sendiráð
Framhald á 15. síðu.
Landgrunnsdeila
fyrir Haagdómstól
KAUPMANNAHÖFN, 2. febrúar
(NTB-RB) — Undirritaffur var í
da;í samningur milli Danmerkur
og Vestur-Þýzkalands þess efnis,
aff deilu landanna um landgrunn-
iff á Norðursjó verði vísaff til Al-
þjóffadómstólsins í Haag. Vestur-
þýzkaland og Holland munu gera
meff sér svipaðan samning.
Stjórnir Danmerkur og Vestur-
Þýzkalands hafa í nokkur ár stað-
ið í samningum um landgrunnið
og 1965 var gerður samningur um
möhk landgrunnsins á ,'svæflinu
næst ströndinni. En ekki tókst að
komast að frekara samkomulagi.
Sömu sögu er að segja um samn-
ingaviöræður Vestur-Þjóðverja og
Hollendinga.
';i.x
;
f, ■
Múrarar minntust í gær 50 :
ára afmælis Múrarafélagsins.
Tekið var á móti gestum í fé-
iagsheimili múrara að Freyju-
götu 26 og var þar margt gesta,
m. a. borgarstjórinn í Reykja
vík, Geir Haligrímsson, iðna'ðar
málaráðherra Jóhann Hafstein
Dg sjávarútvegsmálaráðherra,
Eggert G. Þorsteinsson, en
hann er heiðursfélagi Múrara-
télagsins.
Þeim 11 stofnendum félags-
ins sem á lífi eru, var í til-
efni dagsins veitt gullmerki
félagsins, og sjást fjórir þeirra
hér á myndinni að ofan þeir
Guðmundur II. Bjarnason, Fil
ippus Guðmundsson, Sveinn O.
Framhald á 15. síðu.
3. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ