Alþýðublaðið - 03.02.1967, Blaðsíða 9
UPPSKRIFTIR
ð börnin
fggðina?
til. Og svo halda þeir, að þeir
hafi gert skyldu sína gagnvart
börnunum. En börn eru ekki
heimskari en hundar. Hundur veit
alltaf, hvenær hann á að draga
sig í hlé og skríða ofan í körfuna
sína og hann finnur alltaf á sér
hvernig skap eiganda síns er. Og
börn finna ýmislegt líka. jÞau
finna strax, ef eitthvað er að á
milli foreldranna. Margir full-
orðnir misreikna þennan hæfi-
leika barnanna. En börnin á því
heimili, þar sem óánægja ríkir,
verða hrædd, óörugg og van-
máttug. Það er ekki hægt að
kenna fólki að elska, og það á
ekki að segja börnum of snemma
um kyníerðislífið. Þegar barn
spyr móður sína ýmissa spurn-
inga um litlu börnin, hvaðan þau
koma o. s. frv. gerir það sig yfir-
leitt ánægt með einfalt svar. Það
skilur ekkí flóknar útskýringar
og staðreyndir, sem það ekki hef-
ur þroska til að skilja. Ef ó-
tryggð eða iilindi eru á heimili,
segja sumar mæður við börnin:
Nei, pabbi kemur ekki heim aft-
ur, honum finnst ekkert vænt um
okkur lengur. En þetta er það
versta, sem hægt er að segja.
Börnin þarfnast kærleika og
öryggis. Og það er betra fyrir
barnið, að vera aðeins hjá öðru
foreldri sínu og líði þar vel, held-
ur en að vera á heimili foreldra,
þar sem andrúmsloftið er þrung-
ið spennu og jafnvel hatri. Það
mikilvægasta fyrir barnið er að
vita, að það er einhver, sem elsk-
ar það og lætur sér annt um það,
hvort sem það er ein persóna eða
tvær.
(Stytt þýðing).
HNETUTERTA.
1 'egg,
1 dl. sykur,
75 gr. smjör,
1 dl. hveiti,
1 dl. hnetukjarnar.
Eggið og sykurinn þeytt saman,
bræddu smjörlíki bætt saman við
síðan hveitinu og söxuðum hnetu
kjörnum. Tertan er bökuð í vel
smurðu formi í 20 mínútur. Skreytt
með súkkulaðiglerjungi eða sigt
uðum flórsykri, valhnetum ieða
hnetukjörnum.
SNJÓKREM:
6 eggjahvítur,
200 gr. sykur, ,
90 gr. saxaðar möndlur,
2 tsk. vanillusykur.
Egjahvíturnar eru stífþeýctar,
og sykur og vanillusykur síðan
þeytt varlega saman við. Sett í
smurt form, einnig sáldrað yfir
það örlitlum sykri. Formið er síð
an sett í vatn (ca. upp að miðju
formi) og látið sjóða við lítinn
hita, þar til deigið er þétt. Sett
á fat meðan það er heitt og dreift
yfir ristuðum möndlum og einnig
skreytt með ávöxtum eða berjum.
HÚSRÁÐ:
Ef brún húð kemur undir
straujárnið, er hægt að ná því af
með klút, sem vættur hefur verið
í ediki. Á eftir er járnið nuddað
með blautum kiút og siðan þurrk
að vel. J
Prjónakjólar
'nýkomnir.
Verð frá kr. 690.00
Lækjargötu.
Húsmæður
Sendum heim alla daga, mjólk brauð,
fisk og kjöt og allar nýlenduvörur.
Grensáskjör
Grensásvegi 46. — Sími 36740.
Mjög ódýr frímerki frá Austurríki
2800 vel með farin frímerki og minningarmerki að sannvirði
320 mörk fást af sérstökum ástæðum fyrir aðeins 300 mörk.
Hægt er að greiða með íslenzkum krónum meðan birgðir
endast. Utanáskriftin er: MARKENZENTRALE, Dempscher-
gasse 20, 1180 Wien_
Húsbyggjendur
Smíðum eldhúsinnréttingar, fataskápa og
fleira.
Utvegum teikningar ef óskað er, leitið tilboða.
Trésmiðjan Grein sf.
Auðbrekku 49, Kópavogi — Sími 40255.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS,
REYKJAVÍKURDEILD.
Hinn árlegi
Öskudagsfagnaður
verður haldinn í súlnasal Hótel Sögu að kvöldi
öskudags þann 8. febrúar nk. Borðhald hefst
kl. 19.30.
Glæsileg skemmtiaíriði:
Hinn nýi óperuflokkur, ný erlend söngstjarna
og fleira. Dansað fram eftir nóttu.
Vinsamlegast tryggið yður aðgöngumiða hjá
skrifstofu R.K.Í Öldugötu 4, sími 14658. Hús-
inu lokað kl. 20.30. Hátíðarbúningur. Ágóða
varið til Rauða kross starfsins.
ATH: Boðskort til þátttöku ekki send út. Öll
um er heimill aðgangur.
3. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9