Alþýðublaðið - 03.02.1967, Side 11
»
Borgarkeppni Reykjavikur og
Kaupmannahafnar á morgun
Eins og kunnugt er varð HancL-
knattleiksráð Reykjavíkur 25 ára
sl. sunnudag. í því tilefni verður
háð borgarkeppni niilli Reykjavík
ur og Kaupmannahafnar á morg
un, en leikurinn hefst kl. 5. í liði
Kaupmannahafnar eru m.a. sex lið
menn úr silfurliði Dana á HM, sem
lauk nýlega í Sviþjóð. HKRR gef
ur út vandaða leikskrá og meðal
fjölmargra fróðlegra greina og upp
lýsinga er grein sú, sem hér birt
ist og nefnist „Upphaf handknatt
leiks á íslandi og.stofnun HKRR.“:
Handknattleikur er tiltölulega
ung íþrótt. Er hún talin eiga rætur
sínar að rekja til Danmerkur og
Þýzkalands um síðustu aldamót
Var leikurinn í upphafi eingöngu
sem 11-manna handknattleikur ó
knattspyrnuvöllum og er það álit
margra að hann sé runninn frá
enska ,,rugby“-leiknum. Hins veg
ar er talið að Svíar og Danir hafi
orðið einna fyrstir til að leika
þann liandknattleik (7 manna lið)
sem útbreidur er hérlendis og á
stöðugt vaxandi fylgi að fagna
erlendis. Svíar og Danir byrjuðu
að leika innanhúss á árunum 1911-
12. Innanhúsfeleikurinn er talinn
á margan hátt skyldur körfuknatt
leiknum bandaríska, sem fyrst var
leikinn árið 1891.
Fyrstu alþjóðareglurnar í hand
knattleik 11 manna voru gefnar
úr árið 1934. Á Olympíuleikunum
í Berlín 1936 var keppt í hand
knattleik (11 manna). í ráði var
Aðalfundur Skíða-
deildar Vals
Skíðadeild knattstpyrnufélagsins
Vals hélt aðalfund sinn sl. Mið-
vikudagskvöld í félagsheimilinu að
Hlíðarenda. Stjórn deildarinnar
næsta starfsár er þannig skipuð:
Formaður Matthías Steingríms-
son, Meðstjórnendur Guðmundur
Frímannsson Helgi Loftsson, Krist
ín Sigurðardóttir og Salvör Þor-
móðsdóttir. Varam.enn: Stefán Hall
grímsson og Páll Jörundsson.
(að keppa í innanhússknattleik (7
■ manna), en horfið var frá því sök
um þess að alþjóðareglur voru þá
: ekki til um 7 manna handknattleik.
i Var Svíum og Dönum þá falið að
j FH-INGAR
Ifóru í gær
Lið FH fór áleiðis til Búda)
| pest á fimmtudagsmorgun með (
) Pan Am þotu frá Keflavíkur (
* flugvelli. Myndin er tekin við
'orottförina. Liðið er væntanlegt}
>aftur heim með Pan Am 9. febr <
>úar. Leikurinn við Honvéd fer(
»fram á sunnudag og við mun
. um skýra frá úrslitum hans (
)eftir hélgina.
semja reglurnar og var endanlega
frá þeim gengið árið 1939.
Hingað til lands mun leikurinn
hafa borizt með Valdimar Sveins
björnssyni, íþróttakennara. Hafði
hann kynnzt leikum, þegar hann
var við nám í Danmörku. Taldi
Valdimar leikinn mundu falla ís
lendingum vel í geð. Reyndi hann
leikinn fyrst í Barnaskólanum í
Reykjavík haustið 1921. Valdimar
kenndi leikinn á næstu árum í
Barnaskóla Reykjavíkur og Hafnar
firði, svo og & námskeiðum ÍSÍ
uti um land (m.a. á Laugum í
Þingeyjarsýslu, Akureyri og Siglu
firði.)
Fyrsti opinberi kappleikurinn í
handknattleik hérlendis fór fram
1928 milli kvennaflokka úr íþrótta
félaga Hafnarfjarðar og Ung
mennafélagi Reykjavíkur og milli
drengja úr Barnaskólanum í
Reykjavík og Barnaskóla Hafnar
fjarðar. Fóru leikir þessi fram ut
anhúss.
Vorið 1928 byrjaði Valdimar leik
fimiskennslu við Menntaskólann
í Reykjavík. Kenndi hann nemend
um leikinn og fékk hann brátt
byr undir báða vængi. Má með
sanni segja, að Menntaskólinn í
Reykjavík sé vagga handknatt-
leiksins hér á landi og hefur liann
þar löngum átt miklum vinsældum
að fagna. Utan Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar mun leikurinn fyrst
hafa verið iðkaður að Laugum
í Reykjadal og í Vestmannaeyjum,
þar sem stúlkur hafa iðkað leik
inn frá 1927.
íþróttafélögin í Reykjavík gáfu
leiknum illt auga í fyrstu, hugðu
að hann mundi draga úr áhuga
fyrir leikfimi, sem. þá var efst
á baugi. Hinsvegar tók íþróttafélag
Hafnarf jarðar leiknum fegins
hendi og varð það fyrst allra í-
þróttafélaga til að taka upp leik
inn. Einnig hafa Haukar í Hafnar
firði lagt stund á leikinn allt frá
stofnun félagsins 1931, fyrst í
karlafiokki og seinna í kvennafl.
Reykjavíkurfélögin sáu brótt að
við leiknum og viðgangi hans varð
ei spornað. Tók Valur að iðka leik
inn 1931 óg um svipað leyti stúlk
ur í KR. Kepptu KR-stúlkurnar m.
a. við Akureyrar-stúlkur í norður
Frambald á bls 14
stjórnar liði V»Is.
<r
Valsmótinu
lýkur i kvöld
Afmælismóti Vals í knattspyrnu
innanhúss lýkur í íþróttahöllinni
í Laugardal í kvöld, cn keppnin
hefst kl. 20,15. Þó að mikill spenn
inigur sé meðal íþróttaunnenda um
úrslit mótsins er jafnvel enn meiri
spenna um „aukaleikinn“, sem verð
ur milli Úrvals íþróttafréttamanna
og frægustu knattspyrnumanna
Vals fyrr og síðar. Spurningin er,
tekst gömlu Valsstjörnunum að
veita liði íþróttafréttamanna ein
hverja keppni?
Jafntefli Tyrkja
og Spánverja
Tyrkland og Spánn gerðu jafn
tefli í undankeppni EM i knatt
spyrnu á miðvikudag 0:0. Löndin
leika í 1. riðli, en auk þeirra leika
Eire og Tékkóslóvakia. Spánn hef
ur 4 stig eftir þrjái leiki í riðlinum
Eire 3 stig í þrem leikjum og Tyrk
land 1 stig í tveim leikjum. Tékkó
slóvakía hefur engan leik leikið.
SMURSTÖÐIN
Ssðfúni 4 — Sími 18-2-27
BÐlbm er smurtfúí' fljðtl vg YiiL
Stíjmn alliir tegubSÍr ðf stnurolftf
Upphaf handknattleiks á
íslandi og stofnun HKRR
BORGARKEPPNI í HANDKNATTLEIK
FORSALA aðgöngumiða að leik REYKJAVÍK — KAUPMANNAHÖFN verður í dag í bókaverzlun
Lárusar Blöndal Vesturveri.
Verð miða kr. 125.- og fyrir börn kr. 50.-. H. K. R. R.
3. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ H