Alþýðublaðið - 03.02.1967, Side 13
iÆHf<§
Q“" — Slml K0184.
Ormur rauði
íTlie Long Ships)
Afar spennandi og viðburðarík
ný amerísk stórmynd í litum og
CinemaScope um harðfengnar
hetjur á víkingaöld. Sagan hef.
ur komiij út á íslenzku.
Richard Widmark,
Sidney Poitier
Russ Tamblyn.
Sýnd kl. 9.
Leöurblakan
Blaðaummæli:
Leðurblakan í Bæjarbíó er kvik-
mynd sem óhætt er að mæla
með.
Mbl. Ó. Sigurðsson.
Sýnd kl. 7.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
DrMabuse’s
D0BSMLBEJ
LEX BARKER
KARIN DOR
WERNER PEIERS
DJÆVELSK 5
UHVGGE. K
F.F.B. i
Ákaflega spennandi og hroll-
vekjandi ný mynd.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl 9.
— IIJÁLP —
Nýjasta Bítlamyndin.
Sýnd kl. 7.
SHEILA MURRAY
HANDAN KLAUSTURSINS
það, Gilly! Þér hefur sjáifsagt
ekki komið til hugar að senda
hann heim,
Russell hafði roðnað út að eyr-
um, en nú náfölnaði hann. Hann
gekk til bróður síns, en Gilly
tók um handlegg hans.
— Nei, Russell, sagði Gilly
ákveðin. Gerðu það ekki verra en
það er.
— Hvernig gæti það orðið
verra? spurði Duncan Hurst og
leit aftur á Gilly. — Ég ætti svo
sem ekki að undrast það, sem
Russell tekur upp á, en ....
— Ég hef víst ekki rétt til að
reiðast yfdr þessum orðum þín-
um, skaut Russell Hurst inn í,
— en málin eru ekki eins og þú
heldur. Ég var að kveðja Gilly,
því hún sagði mér að fara heim.
— Ég ráðlegg þér að fara að
ráðum Giily! hvæsti Duncan, —
jafnvel þó það sé nokkuð seint!
Síðan gekk hann til dyra, en
hún hrópaði:
— Dunean, — það var eins og
hræðsluleg rödd hennar bryti
harða brynju hans og hann
kreppti hnefana, samt var and-
lit hans líkast grímu, þegar hann
leit aftur á hana. — Hvað var
það, Gilly?
— Ég verð að segja þér dálít-
ið hvíslaði hún. — Það er ekl.i
eins og þú heldur! Russ var að
kveðja mig, en ....
Hún þagnaði og báðir bræð-
urnir störðu á hana. Gilly fannst
einhvern veginn tveir aðrir í
herberginu — Eve og barnið,
sem hún hafði tekið að sér.
Hún varð að verja þau! Upp
um þau mátti hún ekki korna.
— Þú vissir, að við Russell
kynntumst meðan hann var í
Skotlandi.
Að hann sendi mig til London?
— Já, svaraði hann stuttur í
spuna. Mér kom það á óvart að
Russell skyldi loks hafa hitt
stúlku, sem bæði var góð og elsku
leg og ég elskaði þig, Gilly.
— Við Russell giftum okkur í
Skotlandi áður en ég fór til
London, sagði hún rólega, — en
hjónabandið var ekki löglegt, þó
svo að við tryðum því.
Með þessum orðum sagði Gil-
ly sína síðustu lygi! Lygi, sem
átti að vernda þann mann, sem
aldrei hafði reynt að vernda hana!
Lygi, til að bræðurnir tveir höt-
uðu ekki hvor annan.
En lygin mistókst. Duncan
Hurst sá í gegn um hana!
— Það má vel vera, að þú haf-
ir álitið, að þú værir gift Russ-
e!l, sagði hann hörkúlega, — en
Russell kom beint frá Skotlandi
og giftist mánuði síðar og fór í
brúðkaupsferð með stúlkunni,
sem hann kallar nú eiginkonu
sína. Ertu að reyna að telja mér
trú um að hann sé tvíkvænis-
maður? Eða að hann hafi álitið
sig vera það?
— Nei, hvíslaði Giily, — nei,
það gerði hann ekki. Duncan ..
þú mátt ekki fyrirlíta Russell.
Þetta var allt saman mín sök!
Ég var svo barnaleg og heimsk!
.... Rödd hennar brast, en hún
hélt aftur af tárunum. — Skil-
urðu það ekki? Ég vissi aðeins,
að ég hélt að ég elskaði Russ-
ell og vildi verða konan hans.
Lengra hugsaði ég ekki — og
ég vissi, að það var rangt að
vera ekki giftur, — svo við gift-
um okkur.
— Heldur þú að Russell sé
minni óþverri fyrir það? spurði
Duncan, en Gilly leit á hann og
18
í fyrsta skipti skein biturleiki
úr augum hennar.
— Engin stúlka í heiminum
ætti að vera svo heimsk, að
spyrja einskis og trúa öllu, sagði
hún. — Ég var daufdumb!
— Þú ert það ekki lengur,
Gilly, sagði Duncan jafn bitur
og hún.
— Jæja, ef þetta er allt. ..
— Nei, það er ekki allt! ....
skaut Russell inn í. — Gilly
sagði þér allt — og þú kallaðir
mig óþverra. Ég átti það auðvitað
skilið!
ÁTJÁNDI KAFLI.
— Það gleður mig að heyra
þig viðurkenna það. Duncan var
gráhvítur í framan. — Mér kom
það að vísu ekki á óvart, en ..
— Bíddu við, Duncan, sagði
yngri bróður hans, mitt á milli
reiði og feimni. — Að vissu
marki var það rétt, sem Gilly
sagði áðan......þó ég viti, að
það er engin afsökun fyrir mig,
.... ég vissi ekki, hvernig allt
myndi fara, að hún færi til þín
og svoleiðis. Ég vissi ekki einu
sinni — satt að segja — hve
yndisleg stúlka hún er eða að
ég myndi nokkru sinni hugsa til
hennar aftur!
— Þú kemur fremur skemmti-
lega fram við þá ungu og sak-
lausu.
— Já, ég geri það víst, sagði
Russell og leit á bróður sinn,
en Gilly kom mér á aðra skoð-
un rétt áðan, — og ég verð að
segja þér, að ég hef fengið
þunga refsingu fyrir það, sem
ég gerði Gilly. A1 Rentford var
með mér og hann sá um „hjóna
vígsluna” og hefur beitt mig
fjárkúgun frá því löngu áður
en drengurinn fæddist. — Þess
vegna stakk ég af og gat ekki
farið til Eve.
Duncan leit á hann og kulda-
legur hlátur kom fram yfir var-
ir hans, en augu hans brostu
ekki.
— Eve hefur svo sannarlega
náð sér í yndislegan mann, sagði
hann hæðnislega. — Ég óska
þér til hamingju með að þú
slappst, Giily, bætti hann við
og hneigði sig fyrir henni.
— Talaðu ekki svona til Gil-
ly! lirópaði Russell ákafur....
Ertu alveg viss um að það sitji
á þér að kasta fyrsta steininum?
Duncan leit aftur á hann. Ég
held að ég ætti að fara, sagði
hann. — Við höfum ekki um
meira að tala.
Russell gekk til hans til að
stöðva hann, en Gilly hristi
höfuðið og tók um handlegg
hans. Þá lét Russell undan og
Duncan Hurst gekk til dyra og
fór út.
Nú leit Russell Hurst á ungu
stúlkuna, sem stóð kyrr og hljóð-
lát við hlið hans.
— Hann er afbrýðisamur,
sagði hann áhyggjufullur.
— Já, það er hann víst. Gilly
brosti til hans, en hún var svo
þreytuleg, að hann varð á-
byggjufullur.
Hins vegar hafði hann losnað
við svo margar áhyggjur eftir
að hann kom inn í herbergið
og talaði við Gilly, að allt var
bjartara og skemmtilegra á-
sýndum og hann fann að hann
þráði það eitt, að komast til Eng-
lands — til konu sinnar — og
sonar !
— Gilly .... sagði hann
skyndilega. — Get ég eitthvað
gert,
— Gert?
— Ég á við með tilliti til Dun-
cans — ykkar Duncans. Þú ert
svo yndisleg, Gilly, og ég sé
enga ástæðu til að refsa þér
fyrir þetta, ég vil heldur ekki
hafa það á samvizkunni allt mitt
líf, að það var ég, sem dró þig
inn í þetta.
Gilly brosti.
— Þú getur ekkert gert, Rus-
sell, nema farið til Eve og —
verið henni góður. Hún leit í
augu honum. — Eve elskar þig,
Russ.
— Ég véit það — svo er það
líka drengurinn. En hann var
enn áhyggjufullur og nú stakk
hann höndunum í vasann. Held-
ur þú að Duncan komi aftur?
Hún hristi höfuðið, án þess
að segja orð.
— Af hverju ekki? flýtti hann
sér að spyrja. — Þú sagðir ein-
mitt áðan, að Eve elskaði mig,
Gilly. Ég veit, að það er satt,
en jafnsatt er það, að Duncan
elskar þig. Heldurðu ekki, að þú
ættir að fara á eftir honum og
segja honum, að þú elskir hann
og þú takir þér þetta nærri —
biðja hann um að koma aftur
til þín. . . Russel þagnaði og
Gilly leit á hann með tárin í
augunum. Elskar þú hann ekki,
Gilly?
— Jú, en þessu er lokið. Ég
giftist Duncan aldrei, sagði hún
ákveðin.
— Aldrei — ? Því ekki ?
— Ég held, að þú myndir
ekki skilja það, þó að ég segði
þér það. Hún hugsaði aftur um
barnið, sem hún hafði gefið og
biturleikinn fyllti enn sál henn-
ar.
— Ég vil gjarnan fara heim
aftur, Gilly, vil það meira en
nokkru sinni fyrr, sagði Rus-
sell ringlaður. — Ég get bara
ekki skilið þig eftir svona. Ert
þú ekki bráðum búin með söng-
námið í Milano? Hvað gerir þú
eftir það?
— Ég sé um mig, Russ, svar-
aði hún blíðlega. Þú þarft ekkl
að óttast um mig!
NÍTJÁNDI KAFLI.
Það fyrsta, sem Russell gerði
eftir heimkomu sína, — var að
heimsækja A1 Rentford og segja
honum skoðun sína á honum. —
Feitlagni maðurinn brotnaði
niður, þegar Russell sagði hon-
um, að bæði bróðir hans, eigin-
kona hans og Gilly vissu allt um
framferði hans og að vissara
væri fyrir hann að láta sem
minnst til sín heyra í framtíð-
lnnl, annars biði hans tíu ára
fangelsisvist.
Þegar þessu var lokið og hann
kom aftur út á götuna fannst
honum hann frjáls og glaður. í
fyrsta skipti í marga mánuði var
enginn AI Rentford sem ógnaði
honum eins og stór og gráðugur
Massey
Ferguson
DRÁTTARVÉLA
og GRÖFUEIGENDUR
Nú er rétti tíminn til að
láta yfirfara og gera við
vélarmar fyrir vorið.
Massey Ferguson-við-
gerðaþjónustu annast
Vélsmiðja
Eysteins Leifssonar
hf.
Síðumúla 17. ^
sími 30662.
3. febrúar 1967 -- ALÞÝÐUBLAOffi |,3