Alþýðublaðið - 03.02.1967, Side 14
ÚTSALA-ÚTSALA-ÚTSALA
Á KARLMANNAFÖTUM
rSTÓRLÆKKAÐ VERÐ
SEINASTI DAGUR
ANDERSEN ILAUTH H.F.
'&ÆF Vesturgata 17 Laugaveg 39
Byggingarfélag verkamanna, Reykjavík.
i iÉ S- m
þriggja herbergja íbúð í II. byggingarflokki.
Þeir félagsmenn, sem neyta vilja forkaupsrétt
ar, sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagsins
Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi laugardag-
inn 11. febrúar nk.
STJÓRNIN.
FUNDUR í FULLTRÚARÁÐI
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Fulltrúaráð Alþýðuflokksins í Reykjav'ík held-
ur fund laugardaginn 4. febrúar kl. 3 e. h. í Al-
þýðuhúsinu, niðri.
Funderefns:
Tillaga stjórnar um atkvæðisrétt hverf
isstjóra í Fulltrúaráðinu.
Benedikt Gröndal alþingismaður mæt-
ir á fundinum og svarar fyrirspurnum.
Fulltrúar eru hvattir til að mæta vel og stund-
víslega.
STJÓRNIN'
Auglýsið í Alþýðublaðinu
Sþréttir
Framhald af bls. 11
för KR 1931 og enfremur sumarið
eftir þegar Akureyringar komu til
Reykjavíkur. Valsmenn höfðu mik
il samskipti við Hauka og ýmsa
skóla. Kvennaflokur KR dagaði
uppi og það er ekki fyrr en eftir
1940, að KR eignaðist reglulegan
kvennaflokk í'handknattlik. Um og
eftir 1936 æfðu piltar í KR hand
knattleik, léku þeir nokkra æfinga
leiki, en ekki komst verulegur
skriður á þetta fyrr en eftir 1940
Um 1938 byrjaði áhugasamur
drengjaflokur úr úr ÍR a'ð æfa
handknattleik og lék m.a. nokkra
æfingaleiki, einkum við Samvinnu
skólann. Kvennaflokkur ÍR varð
þó ekki til fyrr en rétt fyrir lands
mótið 1940. Árið 1937 hefjast
reglulegar æfingar hjá kvennafl.
Ármanns, en áður höfðu verið
gerðar nokkrar árangurslausar til
raunir í þá átt. Hafði kvennaflokk
ur Ármanns náið samstarf við
kvennaflokk Hauka. Kralaflokkur
Ármanns. kemur hins vegar seinna
til sögunnar, eða um 1940 og þá að
eins í yngri flokkum. Víkingar
munu ekki hafa haft neinar fast
ar æfingar innan félags síns en
héldu samt vel saman í mennta
skólanum og Háskólanum og áttu
þar mjög sterk lið. Fram kemur
ekki við sögu handknattleiksins
fyrr en á landsmótinu 1940 -meist
ara og annar flokkur karla.)
Auk þessara félaga höl'ðu bæði
Ægir og íþróttafélag kvenna æft
handknattleik, en án þess að hafa
\ keppni fyrir augum.
Fyrstu handknattleiksreglurnar
] eru gefnar út af ÍSÍ árið 1934. Sá
I Benedikt Jakobsson íþróttakennari
um þá útgáfu. Sama ár komu einn
ig út reglur um' leikinn bæði úti
og inni, i bókinni „Leikir fyrir
heimili og skóla”, Eftir Aðalstein
Hallsson, íþróttakennara. Áttu þeir
Benedikt og Aðalsteinn ásamt
Baldri Kristjónssyni og Hallsteini
HinrikSsyni mikinn þátt í út-
breiðslu íþróttarinnar á árunum
1930*—40. Voru þeir allir íþrótta
kennarar í skólum. Næst voru hand
knattleiksreglur ÍSÍ gefnar út ár
ið 1940, skömmu fyrir fyrsta ís-
Lííi'.i
landsmótið innanhúss. Var þar um
að ræða bæði reglur fyrir 7 manna
leik og 11 manna leik. Var stuðzt
við danskar reglur að því er snerti
7 manna leikinn, en sænskar regl
ur og alþjóðareglur að því er
snertir 11 manna leikin.n Aðal
steinn Hallsson sá um útgáfuna.
Á áratugnum 1930—40 vex í-
þróttinni mjög fiskur um hrygg
hérlendis. Hinsvegar var ekki tal
ið mögulegt að hefja reglulega
keppni innanhúss í því húsnæði
sem þá var völ á. Við byggingu
íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu breytast allar aðstæð
ur hvað húsnæði snertir. Um ára
mótin 1940 og 1941 ákveður stjórn
ÍSÍ því, að fram skuli fara íslands
mót í handkattleik innanhúss og
fólu Val og Víking að annast fram
kvæmd mótsins. Sjö félög sendu
lið til mótsins. Ármann (kvenna
flokkur), Fram (meistarafl. og
annar flokkur karla), íþróttafélag
Háskólans (meistarafl. karla)
Haukar (meistaraflokkur karla og
kvennaflokkur), ÍR (meistarar og
annar flokur karla.) og Víking
ur (meistara- og annar flokkur
karla). Dómarar mótsins voru Að
alsteinn Hallsson, Baldur Kristjóns
son og Benedikt Jakobsson. Mótið
þótti takast vql og árið eftir er
aftur haldið íslandsmót innanhúss.
Árið 1942 er þannig komið að 6 fé
lög iðka handknattleik í Reykjavík
Af þeim eru 4, sem jafnframt
leggja stund á knattspyrnu og hafa
því átt aðild að Knattspyrnuráði
Reykjavíkur allt frá stofnun þess
árið 1919. Það er því eðlilegt að
þeirri hugmynd sé hreyft að sam
starf félaganna í Reykjavík í hand
knattleik verði skipulagt á sama
hátt og reynzt hefur vel í öðrum
þróttagreinum. í ársbyrjun 1942,
þegar fyrir hendi er að framkvæma
þriðja íslandsmótið innanhúss er
því ákveðið að stofna HKRR. Var
það gert 29. janúar 1942. Skipu
lag þess varð, hið sama og var
hjá KRR. Formaður var tilnefnd
ur af ÍSÍ, en fulltrúar félaganna
skyldu kosnir á ársþingit síðar að
alfundi) ráðsins. Hélzt sú skipan
þar til ÍBR kom til sögunnar 19
44 og árið 1944 var formaðurinn
einnig kjörinn af ársþingi ráðsins
Frá 1951 hefur þetta verið með
þeim hætti að félögin, sem aðild
eiga að HKRR tilnefna fulltrúa
í ráðið og úr þeirra hópi er for
maður síðan kjörinn á aðalfundi.
Aðalverkefni HKRR hefur verið
að annast framkvæmd handknatt
leiksmóta og hefur sú starfsemi
aukizt mjög á þessum 25 árum.
Þar að auki var HKRR aðalmál
svari íþróttarinnar, þar til HSÍ var
stofnað árið 1957. Átti HKRR mik
inn þátt í að koma á fyrstu lands
leikjum í handknattleik, svo og í
stofnun HSÍ.
Fyrsti formaður HKRR var Bald
ur Kristjónsson íþróttakennari. Að
ildarfélög HKRR eru nú 7, Glímu
félagið Ármann. Knattspyrnufélag
ið Fram, íþróttafélag Reykjavík-
ur.Knattspyrnufél. Reykjavíkur
Knattspyrnufélagið Valur, Knatt
spyrnuféjagið Víkingur, sem öll
hafa átt aðlid að HKRR frá upp
hafi og Knattspyrnufélagið Þrótt
ur, er gerðist aðili að ráðinu haust
ið 1951. Núverandi formaður HK
RR er Jón Magnússon.
Útför móður okkar
ÞÓRU JÚLÍUSDÓTTUR BJÖRNSSON,
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 10.30.
Athöfninni verður útvarpað.
SYSTKININ.
Útför
JÓHANNS KRISTJÁNSSONAR,
frá Ólafsvík,
sem andaðist 29. janúar sl fer fram frá Fossvogskirkju föstu
daginn 3. febrúar kl. 3. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim
sem vildu minnast Iiins látna er bent á slysavarnardeildina
Sumargjöf í Ólafsvík.
VANDAMENN.
Okkar beztu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðar
för móður okkar, tcngdamóður og ömmu
JÓNÍNU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Iláteigsvegi 25.
Sérstakíega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Hvíta-
bandsins, fyrir veitta lijálp í sjúklcika liennar.
SYNIR,'TENGDADÆTUR OG BARNABÖRN.
14 3. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ