Alþýðublaðið - 03.02.1967, Side 15
Kínverjar sleppa
Framhald af 3. síðu.
inu, þar sem óttast er að þau sé
ekki óhult þar.
+ FORDÆMINGUM hætt.
Samtímis þessu hefur verið
dregið úr öðrum tegundum mót
mælaaðgerða er flokkast undir
„menningarbyltinguna“. í fyrra
helmingi janúarmánuðar var al
vanalegt að andstæðingar Maos
væru dregnir um göturnar, en
þessu virðist hafa verið hætt,
sennilega vegna opinberrar til-
skipunar um — aukinn agá í
menningarbyltingunni. Hins veg-
ar eru Maoandstæðingar enn auð-
mýktir ó alla lund á almannafæri
úti á landsbyggðinni, að sögn
blaða er borizt hafa til Peking.
Útvarpið hermdi í dag, að stuðn
ingsmenn Maos hefðu tekið
völdin í Heilungikanghéraði í
Mansjúríu í sínar hendur. Varað
var við tilraunum „stéttarfjenda“
til verkfalla.
Rájiðir varðliðar halda því fram
að fylkisstjórnin og flokkurinn í
Heilungkiangr hafi reynt að gera
héraðið að sjálfstæðn konungrs-
ríki og hafi það leitt til blóðugra
átaka og „endurskoðunarstefnu“.
Varðliðarnir segja, að Maoand-
stæðingar hafi fengið aöstoð frá
sovézkum, bandarískum og jap-
önskum „afturhaldssinnum".
Umferðiti
Framnaiíl aí 1. síðu.
13 milljónir og stóðst sú tala, sagði
hann. Á tímabilinu ágúst—sept-
ember 1966 fóru 1540 Íbílar um
Reykjanesbrautina á dag, en árið
áður á sama tíma fóru þar dag-
lega 1350 bílar. Yfirleitt var um-
ferðaraukningin á 'helztu vegum
frá 1965 — 1966 10-20%, sagði
Ingólfur Jónsson.
Halldór E. Sigurðsson (F) sagði,
að toilamir væru alltaf að stækka,
en tekjur vegasjóðs yxu ekki að
sama' skapi. Hann sagði, að nú
væri víða <svo komið að gjörsam-
lega útilokað væri að halda fjol-
förnustu malarvegunum við, þVí
umferðarþunginn á þeim væri nú
orðinn slíkur. Kvað Halldór úr-
bætur í vegamálum alls ekki mega
dragast lengur.
Nokkrar umræður urðu síðán
um málið og tók þátt í þeim Sig-
urvin Einarsson auk fyrrgreindra.
Óspektir
Framhald af 2. síðu.
það. Gerðu unglingarnir sér
lítið fyrir og ,,marséruðu“
niður Laugaveiginn og stað-
næmdust loks fyrir framan
Logreglustöðina í mótmæla-
skyni. Lögreglumenn reyndu
að friða krakkana, en þeir
tóku þá það til toragðs að
henda mjólkurhyrnum í
veggi Lögreglustöðvarinn-
ar. Gréip þá lögreglan tii
sinna ráða og tók nokkra
unglinga í sína vörzlu. Eftir
þetta minnkuðu ólætin oig
komst brátt kyrrð lá.
— Mynd: Bj. Bj.
Stúdentar
Framhald af 2. síðu.
bókum væri hinsvegar ekki staf
að finna um náttúruvemd.
Dr. Sigurður Þórarinsson deildi
hart iá Þingvallanefnd, og sagðist
ekki tala þarna af hálfu Náttúru-
verndarráðs, heldur sem einn af
tæplega tvö hundruð þúsund eig-
éndum Þingvalla. Vitnaði Sigurð-
ur í bláðaskrif um lóðaúthlutun
Kug^allanefnda^, sem í sumar
urðu, einkum í greinar Sigurðar
Magnússonar og Emils Jónssonar
ráðherra, formanns Þinigvalla-
nefndar. Lét Sigurður svo um
mælt, að eina skipulagið, aem
þyrfti í landi Gjábakka, væri það
að segja nei við öllum umsóknum
um lóðir þar. „Það þarf ekki krónu
iheldur karakter", til að búa þarna
sómasamlega um . hnúta, sagði
hann.
Umræðurnar á fundinum sner-
ust að mestu leyti um Þingvöll,
þótt nokkuð væri rætt um nátt-
úruvernd almennt. Auk fyrr-
greindra töluðu: Hákon Bjarna-
son, skógræktarstjóri, Gils Guð-
mundsson, alþingismaður, Sigurð-
ur Jóhannsson vegamálastjóri,
Björn Teitsson, stud. mag., Pétur
Pétursson forstjöri, Dr. Gunnlaug-
ur Þórðarson, Kjartan Sveinsson,
Þorleifur Einarsson jarðfræðing-
ur og Bingir Kjaran hagfræðing-
ur, formaður Náttúruverndarráðs.
menn hefðu tekið fram, að þeir
mundu biðja Kínverja að sker-
ast í leikinn ef Bandaríkjamenn
sæktu inn í Norður-Vietnam.
Salisbury asgði, að leynilegar
viðræður við norður-vietnamska
fulltrúa yrði bezta leiðin til að
koma á friði í Vietnam.
□ í járnþríhyrningnum í Suður-
Vietnam gerðu skæruliðar klædd-
ir svörtum náttfötum árás á flokk
bandarískra fótgönguliða í dag.
Mikið mannfall varð 1 liði Banda-
ríkjamanna, en tíu menn voru í
varðflokknum.
Kíiiverjar telja
Framhald af 2. siðu.
eldsneyti í trássi við alþjóðaregl-
ur. Þá frestuðu Kínversk yfirvöld
brottförinni hvað eftir annað.
Loksins þegar hreyflar vélanna
höfðu verið settir í gang höfðu
kínversk yfirvöld krafizt þess að
enn fleiri skýrslur yrðu útfylltar
svo að vélarnar gætu farið leiðar
sinnar, jafnframt því sem þau
höfðu móðgað fulltrúa sovézka
flugfélagsins Aeroflot.
LOFTBRÚ.
Frá því hefur verið skýrt opin-
berlega, að sovétstjórnin hyggist
koma á loftbrú milli Peking og
Moskvu til að flytja burtu konur
og börn starfsmanna sovézka
sendiráðsins, sem er í umsátri.
En bornar eru til baka fréttir um
að flestir starfsmenn sendiráðs-
ins verði kvaddir heim og Kín-
verjum verði skipað að fækka í
starfsliði í sendiráði sínu í Mosk_
vu.
„Izvestia“ sagði í dag, að kín-
verskir stúdentar, sem komnir
til Peking frá Moskvu, haldi
fram á fjöldafundum án þess
að roðna, að sovézka þjóðin til-
Mao og að hvarvetna í Sov
hvísli fólk: „Lengi
Mao Tse-tung“ Blaðið segir,
stúdentarnir haldi þessu
af ótta við að verða grunað
ir um svik við Maoklíkuna.
Fréttaritari NTB hermir, að
mikill fjöldi rússneskra borgara
hafi safnazt saman á járnbraut-
arstöðinni í Moskvu í dag þegar
117 kínyerskir stúdentar héldu
heimleiðis. Kínverjarnir stóðu í
smáhópum á brautarpailinum,
lásu úr ritum Maos og sungu al-
þjóðasöng verkalýðsins, en allt
fór friðsamlega fram, kannski
vegna þess að mjög kalt var í
veðri Lögreglumenn og her-
menn voru þó við öllu búnir.
Stöðugt koma fleiri og fleiri
kínverskir stúdentar til Moskvu
á leið sinni til Kína, þar sem
beir munu taka þátt í „rnenn-
ingarbyltingunni". 200 stúdentar
munu bíða eftir fari heim í kín-
verska sendiráðinu í Moskvu.
AfmæSi múrara
Framhald af bls. 3
Guðmundsson og Jón Vigfús-
son Á tveggja dálka myndinni
er Eggert G. Þorsteinsson, ráð
herra, og tveir stofnendanna,
þeir Guðmundur Bjarnason og
Jón Vigfússon Þriðja myndin
sýnir hluta gestanna.
í gærkvöldi var svo haldið
afmælishóf að Hótel Sögu og
var það mjög fjölsótt.
Flugvél
Framhald af 1. síðu.
frá landamærunum. Allar tilraun
ir til að fá flugmanninn til að
lenda hafi mistekizt og hann hafi
reynt að flýja. Þetta er alverleg
asti atburðurinn sem átt hefur sér
stað á landamærum Indlands og
Pakistans síðan stjórnir landanna
undirrituðu Tasjkentyfirlýsinguna
í janúar í fyrra eftir hina þriggja
vikna löngu styrjöld landanna í
september 1965.
Árekstur
Framhald af 1. síðu.
ásvegi og lenti á vinstri hlið leigu
bifreiðarinnar og kastaði hennl
til. Við áreksturinn slasaðist far-
þegi í öðrum bílnum eins og fyrr
greinir og hlaut hann áverka á
höfði og var fluttur á slysavarð-
stofuna, en meiðsli eru ekki tal
in aJvarleg.
Bifreiðastjóri Ieigubifreiðarinn-
ar kvaðst ekki hafa séð til hinn
ar bifreiðarinnar, en hinn öku-
maðurinn sagðist ekki hafa verið
á mikilli fcrð, þó áreksturinn hafi
liins vegar verið all harðnr^
Skemmdust báðar bifreiðarnar
töluvert.
eykst bílaumferöin í Reykjavik. Her sést yfir Bankastræti og hluta Austurstrætis.
Hanc&i ‘
Framhald af 1. síðu.
hefði sífellt meiri áhuga Ó frið-
samlegri lausn.
Hann sagði, að Norður-Vietnam-
Áfmælismót Vals
hófst í gærkvöldi
í gær hófst afmælismót Vals í
knattspyrnu innanhúss í íþrótta
höllinni í Laugardal. Úrslit urðu
sem hér segir:
Þróttur (a) — Breiðablik 5:4
KR (a) — Þróttur (b) 7:1
Fram (b) — Haukar 5:1
ÍBK (b) — Valur (b) 4:3
ÍA (a) — ÍBK (a) 2:4
KR (b) - Valur (a) 3:4
Víkingur (a) — Fram (a) 1:7
Víkingur (b) - ÍA (b) 2:3
Áhorfendur voru um 600 í gær
kvöldi og mikið fjör t áhorfenda
pöllunum.
t
f
j
3. febrúar 1967 ™ ALÞÝÐUBLAÐSÐ ],5 -