Dagur - 27.03.1999, Page 2
78
LAUGARDAGUR 27. MARS 1999
HELGARPOTTURINN
Á annað hundrað Vopnfirðingar komu og
samglöddust með menningarfrömuði staðar-
ins, Sigríði Dóru Sverrisdóttur, þegar
hún hélt uppá fertugsafmæli sitt á Hótel
Tanga á Vopnafirði um síðustu helgi, Afmælið
var veglegt og til þess fékk Sigríður Dóra að
sunnan félagana í Súkkat og meistara
Megas, sem hefur verið hennar mesta upp-
áhald alveg frá unglingsárum. Vissulega kost-
aði það Sigríði Dóru nokkuð að fá þessa snillinga í afmælið, en hún seg-
ist hafa gefið sér það í afmælisgjöf að fá þá til sín. Gestir í afmælinu léttu
þó nokkuð undir, því aðgangseyrir í afmælisveisluna var 800 kr. en á móti
kom að engar máttu afmælisgjafir gestanna vera.
Útvarpsþátturinn hennar Önnu Kristine
Magnúsdóttur á sunnudagsmorgnum á
Bylgjunni hefur faríð vel af stað þó að það
hafi vakið -úndrun útvarpshlustenda þegar
auglýsing rásar 2, „engin væmni. engi.n til-
gerð, betri þáttur" heyrðist í þætti Önnu
Kristine á Bylgjunni. Samkeppnin lætur ekki.
að sér hæða, jafnvel ekki hjá rfkinu. Hvað um
það. Anna Kristine er á ágætis flugi með
Kristínu Guðbrandsdóttur Jezorski gullsmið í þættinum á morgun.
Á páskadagsmorgun er hún svo með Ágústu Guðmundsdóttur
Harting, fegurðardrottningu íslands 1956. Hún hefur verið búsett í
Bandaríkjunum f 40 ár og ýmislegt á daga hennar drifið, verið mormóni
í 15 ár og vinnur nú gegn sértrúarsöfnuðum.
Þrfr tékkneskir organistar sem starfa í kirkjum Reykjavíkur verða í aðal-
hlutverkum á tónleikum, sem haldnir verða í Seltjarnaneskirkju á sunnu-
dagskvöldið. Viera Manasek organisti kirkjunnar stjórnar kórnum. Á
tónleikunum verður flutt messa fyrir kór og tvö orgel eftir franska tón-
skáldið Louise Vierne. Eiginmaður Vieru Pavel Manasek sem er nú í
ársleyfi frá störfum sem organisti Háteigskirkju spilar á annað orgelið, en
Lenka Matéova organisti Fella- og Hólakirkju leikur á hitt. Kirkjan hef-
ur nýlega eignast nýtt orgel sem var vígt um síðustu helgi og kom Pavel,
sem nú dvelst í Tékklandi, til íslands af því tilefni. Viera er að fara í frí frá
kirkjunni 30. mars til þess að stunda framhaldsnám við Tónlistarháskól-
ann í Brno en hún kemur aftur tll starfa 1. janúar árið 2000.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýndi My fair
lady, eftir Alan J. Lerner & Frederick Loewe í
Valaskjálf á Egilsstöðum um helgina. Mun
þessi uppfærsla vera sú fyrsta þar sem
áhugaleikhús tekur hinn vinsæla söngleik á
fjalirnar en áður hefur það verið sýnt hjá Þjóð-
leikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar. Einar
Rafn Haraldsson leikur hlutverk prófessors
Henry Higgins og Agnes Vogler leikur El-
ízu. Leikstjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson
en hann lék meðal annarra í barnasýningu Leikfélags Akureyrar í haust,
Rummungi ræningja. Leikfélagið heldur áfram sýningum verksins á mið-
vikudag, laugardag, annan í páskum og svo framvegis.
Nú ku vera í smíðum norðan heiða - og skiptir þó í sjálfu sér ekki máli
hvar sú smíði fer fram - heimasíða á Netinu þar sem fram eiga að koma
upplýsingar um skemmtistaði landsins, uppákomur, hljómsveitir, dans-
leiki og allt sem í boði er á skemmtistöðunum. Þá er bara að skella sér á
Netið áður en maður ákveður hvert maður ætlar og hvenær... slóðin er
www.djamm.is
Sú skemmtilega tilviljun átti sér stað í starfi
blaðamanns Dags um daginn að í frásögninni
sem systurnar Iðunn og Kristín Steins-
dætur höfðu til fyrirmyndar þegar þær
sömdu leikrit sitt, Systur í syndinni, kemur við
sögu langömmusystir blaðamannsins sem
fjallaði um uppfærslu Leikfélags Akureyrar.
Sú var þó ekki ein af hinum ógæfusömu kon-
um sem gerðust systur i syndinni.
Kanntu meinlaust slúður og skemmtisögur úr félags-
lífinu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkurfréttir og
áhendingar til hirtingar í Helgarpottinum.
Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja-
vik eða á netfangið: ritstjori@dagur.
Frá Wfesí End i London koma úrvalssöngvarar til að taka þátt í einni stórbrotnustu tcmleikasýningu sem Sinfóníuhljómsveit íslands
hefur sett á svið. mynd: e.ól.
%
Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt átján söngvurum frá West End í London, sex
manna rokkhljómsveit og áttatíu manna kór. Einstakur viðburður í Laugardalshöll-
inni.
Söngleikurinn Jesus Christ
Superstar eftir Andrew Lloyd
Webber er einn vinsælasti söngleik-
ur allra tíma og nú gefst íslenskum
aðdáendum tækifæri til einstakrar
upplifunar í LaugardalshöIIinni.
Fyrri tónleikarnir voru í Höllinni í
gærkvöld en þeir síðari verða í dag
klukkan 17.00.
Tónleikasýning
Helga Hauksdóttir, tónleikastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Islands, segir
mikið fyrirtæki að setja þessa sýn-
ingu upp og fá söngvarana frá
London til að syngja í uppfærsl-
unni. Hér er á ferðinni meira en
bara tónlistarflutningur þótt ekki sé
um fulla sviðsuppsetningu verksins
að ræða.
„Þetta fyrirtæki, West End in
Concert, tekur að sér að setja á
laggirnar svona sérstök verkefni og
safnar þá að sér fólki úr West End
leikhúsunum og st, sem syngur
hlutverk Maríu Magdalenu var til
dæmis i mörg ár í titilhlutverkinu í
Evitu í London."
- Hér ekki á ferðinni dæmigert
verk fyrir efnisskrá Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands.
„Nei en við vílum ekkert fyrir
okkur að taka alls konar verkefni á
dagskrá. Þessi tónlist er mjög góð
og alveg þess virði að flytja hana á
tónleikum okkar. Þetta er náttúr-
lega allt önnur uppfærsla sem fólk
heyrir hér í Laugardalshöll heldur
en það myndi heyra hvar sem er í
heiminum í leikhúsi," segir Helga.
„Það má eiginlega segja að þetta sé
tónleikasýning. Þetta er sviðsupp-
færsla þó sviðsbúnaður sé ekki
þannig að við höfum mikið af leik-
tjöldum eða slíku en við þurfum að
hafa sviðsmynd og höfum þurft að
hafa dálítið fyrir því. Þetta er meira
en bara tónlistarflutningur."
Átta sinnum í viku í átta ár
Þegar söngleikurinn var frumsýnd-
ur í West End f London 1971 og sló
hann öll aðsóknarmet. Jesus Christ
Superstar var sýndur átta sinnum í
viku f átta ár, samtals 3358 sýning-
ar.
Flutningurinn í Laugardalshöll-
inni nú er með stórbrotnari útsetn-
ingu en áður hefur heyrst hér á
landi og sennilega langt þangað til
annað eins tækifæri býðst. Ein-
söngvarar koma frá West End
International í Englandi en allir eru
þeir þekktir söngvarar í West End
leikhúsunum. Auk einsöngvaranna
kemur fram kór sem sérstaklega er
settur saman vegna þessarar upp-
færslu, „Jónsbörn'1, sem að megin-
uppistöðu eru fyrrverandi nemend-
ur Jóns Kristins Cortez kórstjóra
ásamt félögum úr Karlakórnum
Þröstum og sönghópnum Brooklyn
5. í Sinfóníuhljómsveitinni eru um
sjötíu manns og að auki kemur
fram rokkhljómsveit skipuð úrvals-
hljóðfæraleikurunum Friðriki
Karlssyni, Guðmundi Péturssyni,
Eyþóri Gunnarssyni, Kjartani Valdi-
marssyni og Gunnlaugi Briem. - HI
Ólafur G. Einarsson er einn ellefu alþingismanna sem
kvaddi þinghúsið við Austurvöll í fýrradag - sagði trega-
blandið bless eftir langa þingsetu. Undanfarin ár hefur
hann verið fremstur meðal jafninga þar á bæ sem forseti
Alþingis - og því sjálfkjörinn maður vikunnar bæði fýrir
sína hönd og félaga sinna, þeirra Egils, Friðríks, Guð-
mundar, Gunnlaugs, Hjörleifs, Krístínar, Ragnars, Stef-
áns, Svavars og Þorsteins. Bless, bless!
Ólaíur G. Einarsson.