Dagur - 27.03.1999, Blaðsíða 16

Dagur - 27.03.1999, Blaðsíða 16
32 - LAUGARDAGUR 27. MARS 1999 PD^mr Fluguveiðar að vetri (110) Þingvallavatn Það var ein- hvern tímann í upphafi ferils míns sem „al- vöru“ flugu- veiðimaður að ég kannaði slóð- ir Þingvalla- vatns. Við höfð- um heyrt strák- arnir að bleikj- an kæmi að landi á nótt- unni, börðum linnulaust á held- ur dauðum tíma, því það er víst undir Qögur eða fimm að morgni sem maður á að standa klár. En aðallega þegar sól verm- ir vatnið, síðdegis og á kvöldin. Þetta sögðu leiðbeinendur sem héldu Þingvallakynningu hjá Ar- mönnum, og kemur heim og saman við gamlar minningar. Vatnið Vatnið er djúpt og kalt og allt í kringum það ægifagurt. Við fengum Ieyfi hjá bændum utan þjóðgarðsins, strákarnir á næt- urvöktum okkar. Og þarna veiddi ég sæmilega fiska, einmitt um klukkan fjögur eða fimm að morgni: Flugan var Teal and red, og það fór um mig sælu- hrollur þegar ég sá hana nálgast langt undan landi þegar svo lygnt var að maður sá þráðbeint ofan í djúpið. A eftir henni var fín bleikja. Og sú kom syndandi í hægðum sínum á eftir og tók. Ekki komu fleiri á sama stað, svo ég tók hina fluguna mína, Cardinal, sem eins og gagn- kunnugir vita er hárauð; á hana fékk ég aðra bleikju þessa nótt. Við vorum svo syfjaðir þegar við ókum heim að við Iá bílveltu í Grafningi og aftur við Skíðaskál- ann í Hveradölum, hvað sem við vorum nú að vilja með að aka þá leið til balta. Þá var morgunsólin komin vel upp og við hefðum átt að vera að veiðum áfram. Sem sagt: skortur á veiðileiðsögn kom í veg fyrir frekari kynni af vatninu þar til á dögunum. Gott veiðivatn Þingvallavatn er fullt af alls kon- ar goðsögnum veiðimanna. Þessi sem villti okkur sýn var að ekki dygði að veiða þar nema á nóttunni. Onnur er sú að ekki þýði að veiða þar á sumrin fyrir smámurtu. Og sú þriðja er að ekki sé hægt að veiða fisk á flugu þarna nema á miklu dýpi, veiða með botni og vera alltaf að festa. Þeir Garðar Scheving og Daní- el Pálsson voru fengnir á fund Ármanna til að eyða þessum og öðrum misskilningi. Fyrir byrjendur virðist nokkuð einboðið að keyra framhjá Val- höll og halda út í Vatnskot, leggja bílnum þar og rölta áleið- is út í Leirutá, en þar munu vera veiðislóðir. Fleiri fræg ör- nefni eru Öfugsnáði og Vatns- vik, þetta kynna menn sér á kortum og leita uppi staði. Það sem gleðilegast er fyrir byrjendur er sú staðhæfing Garðars að maður geti víða átt von á fiski. Maður þarf sem sagt ekki að þekkja einhverja tiltekna gjá eða gjótu til að eiga von. Hann sagði sögu af náunga sem hann hitti á þökkum vatnsins, og átti víst ekki nógu mörg orð um það skaðræði sem vatnið væri metnaðarfullum veiði- manni, í því fengist ekkert nema murta. Heilræði Garðars ætti að vera öllum hvatning: Fara með strönd, leita, kasta bæði inní víkur og út frá töngum, gefa sér tíma, spá. Náunginn umræddi mun víst hafa nálgast viðfangs- efnið af meiri áhuga, eftir skamma hríð hafði hann náð fínum bleikjum, hjálparlaust, og þar af einni fimm punda. Góðar stundir Til eru þeir sem fullyrða að Þingvallavatn sé besta veiðivatn í nágrenni Reykjavíkur. Náttúru- fegurðin er með fádæmum, og fiskarnir eru víst fínir þegar vel gengur. Góðar stundir bíða, nú ætla ég að láta verða af því að kynnast Þingvallavatni. Aðferðir Af alkunnum höfðingsskap þess- ara pistla leyfi ég mér að miðla því sem kom fram á kynningu Armanna. Flugurnar sem þeir félagar nefndu eru Peacock, Watson Fancy púpan, og KiIIer, harðlökkuð. Mælt er með að hafa þær stórar, upp í númer átta, enda segja fræðimenn að stór fluga Iaði að stóran fisk. Daníel segist veiða mest með hægtsökkvandi línu með sökk- enda, og stuttum taumi, tveggja feta. Þetta síðasta ber að árétta, því flugan verður að vera í stutt- um taumi svo hún fari jafn djúpt og línuendinn sjálfur. Dýpi er misjafnt. Menn verða að vera meðvitaðir um hvað þeir eru að gera: láta fluguna sökkva vel og telja til að áætla dýpt, draga svo löturhægt inn. Daníel segir að svona veiði útheimti fórnir úr fluguboxinu, menn verði að reikna með að týna einni eða tveimur eða fimmtán flugum! Uppi og niðri Leiðsögn Garðars gladdi mig, því hann áminnti menn að veiða á grynningum eins og djúpálum. Þá notar hann flotlínu með fjög- urra punda taumi, og dregur yfir grynningar. „Virkilega fallegir fiskar,“ koma stundum á grunn- ið. Og á fögrum kvöldum byrjar bleikjan að taka uppi, þá sé tími þurrflugunnar. Garðar segir að hann sé jafn- an með þijár línur og menn eigi að vera duglegir að skipta eftir aðstæðum: flotlína, flot með sökkenda, hægtsökkvandi. Veiðimenn eru einkum að elt- ast við „kuðungableikjur" sem fara með botni og éta bobba. Púpumar eru ætlaðar þeim. Síla- bleikjan er líklega vænni, draum- urinn um eina 10-14 punda ræt- ist þegar straumfluga fer á réttan stað. Og svo er það urriðinn sjálf- ur, konungur vatnsins, 6-8 pund- arar koma á hverju ári, og tvöfalt stærri fískar sýna sig þegar vel liggur á þeim. Kjörveiðitími Minnugur næturvaktanna okkar spurði ég um kjörveiðitíma á Þingt'öIIum. „Hvenær sem er,“ sögðu þeir, en bættu um betur: hitinn mætti gjaman vera 10-14 gráður, 2-3 vindstig, og ekki verra að golan væri á móti! Þurrflugan getur komið sér vel við þessar að- stæður, kringum ijórtán gráður ættu menn að athuga vel hvort taka er byijuð uppi. Reyndar alltaf að hafa augun hjá sér; það er nefnilega þama eins og svo víða annars staðar að hreyfíng físka er meiri en æstir og taugatrekktir veiðimenn veita atbygli þegar þeir ana áfram. Ein skvetta, ein bylta, getur Ieitt ijársjóð vatnsins í ljós! Hvar? Hvenær? Það kom í ljós í viðræðum við aðra veiðimenn og gamla hunda á bökkum Þingvallavatns að það hefur alið af sér margar kenn- ingar. Garðar og Daníel gefa þá almennu leiðsögn að vel veiðist í vatninu allt sumarið. Engin ástæða til að hætta eftir miðjan júní þótt murtan sé mætt! Hins vegar verður að geta þess að margir viðmælenda telja fiski- ferð nokkra eftir tíma sumars, og aðhyggnir veiðimenn verði að átta sig á því að staður sem gef- ur vel að vori kann að dofna verulega með sumri. Náttúran er síbreytileg, munið það. Til mikils að vinna Eitt eiga menn að varast: að skilja afla við sig; minkurinn er víst skæður! Sjálfur er ég harð- ákveðinn að kynna mér leyndar- dóma vatnsins í sumar, kasta peacok með kúluhaus fyrir kuð- ungableikju, setja út fagra straumflugu fyrir sílableikju, og þegar stóri urriðinn byltir sér í skorpunni ætla ég honum mikið leynivopn sem ég mun senda út með fagurlegri sveiflu og heita á skáldið Jónas um leið. 1 77Z=s\ ;—i Kúríu:- ríMrí 5 ... (/ oir í &LoB CsAT H'AT'fö V PiiKAR R y / V fxKi/1 ' LÓríCurí IúKMÍT MArírí v oi-ti ’m h iliiilii ilil W SA uA MIKU L'lT/LL Kwt^ív TJMT LVríO AUKIST svkm i T $U§WU * SKIPA' LÆjÉtI BR0T- LEGA SPOTTI Rvj/UTTJ AbKTlH KoA 'JkKWA ^— 5vei H írírí- Xf.L' {öRu- SR'oBup. 5 SKáfil ZflríS- FLbTufi. LiSL 'om\ti SCKoTfl M/ET t| R fLAS bsmúj Totit BflríO STflfuk í? • 'flTT &AL\ HLuT L'ERT 3 «ÆG- FMA TflRRiR FALS AVöxt- TU5K- uríA Ejhkst. BL'oTA ILL hla ss SKAuT ;:|i HAfNfl, Fuql B'ATnR Fuu- Kom- te&A PjÖRllé STAR\ ‘AfLOQ 1 Wrí SKoRT- ÍL& HtlTiR T mm- htrírí TXi&T 54MS <50)66- uR OR'AtT- uR r (p K'flö SKLurí REKA LVKT uPÖ- GÖTM l GÆLu- ríflírí Yisama » tlssca iiíií Kem 5V£kS- uR KV/VST- UK PKAR StAt- uF . KÉMST HASKl st/ot ÍÍLurlO- qR 9 II fc F£LL —w FR'10 FLudfl r> kuríuQ, Vifi- KVÆl'M OP ÚM6t STJ&iMA ipm H S SLAna- Arí m t- ÉÍ Krossgáta nr. 130 Lausnarorðið er ......... Nafn Heimilisfang.......................... Póstnúmer og staður .............. Helgarkrossgáta 130 munur á grönnum og breiðum sérhljóðum. Lausnarorð gátunnar á að skrifa á lausnarseð- ilinn og senda til Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri merktan: Helgarkrossgáta nr. 130. Einnig er hægt að senda símbréf í númer 460 6171. 1 verðlaun fyrir helgarkrossgátu 130 er bók- in „Falsarinn og dómari hans“ eftir Jón Hjaltason. Bókaútgáfan Hólar gefur út. Lausnarorð helgarkrossgátu 128 var „klæðaskápur". Vinningshafi er Laufey Val- steinsdóttir, Kvíum II í Þverárhlíð, 311 Borg- arnes og fær senda bókina „Þeir vörðuðu veg- inn“ eftir Unni Karlsdóttur og Stefán Þór Sæ- mundsson. Bókaútgáfan Hólar gefur út. Lausnarorð krossgátu nr. 129 verður til- kynnt ásamt nafni vinningshafa þegar helgar- krossgáta nr. 131 birtist.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.