Dagur - 27.03.1999, Síða 4
T
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sýnt á Stóra sviði
Brúðuheimili - Henrik Ibsen
Menningarverðlaun DV 1999:
Elva Ósk Ólafsdóttir
• í kvöld ld.» sud. 11/4 • sud. 18/4
Sjálfstætt fólk
eftir Halldór Kiljan Laxness í leikgerð
Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar
Margrétar Guðmundsd.
Fyrri sýning: Bjartur -
Landnámsmaður íslands
aukasýn. í dag sud. kl. 15:00 -
nokkur sæti laus • 4. sýn. mvd. 7/4,
kl. 20:00 - nokkur sæti laus •
aukasýning Id. 10/4 kl. 15:00 -
nokkur sæti laus • 5. sýn. mvd.14/4
kl. 20:00 - nokkur sæti laus • 6. sýn.
föd. 16/4 kl.20:00 - nokkur sæti laus
Síðari sýning: Ásta Sóllilja
aukasýning í kvöld kl. 20:00. -
nokkur sæti laus - 2. sýn. þrd. 30/3
- nokkur sæti laus • 3. sýn. fid. 8/4
kl. 20:00 - örfá sæti laus • aukasýn.
Id. 10/4 kl.20:00 • 4. sýn. fid. 15/4
kl. 20:00 - örfá sæti laus
Tveir tvöfaldir - Ray Cooney
föd. 9/4 - örfá sæti laus • Id. 17/4 -
nokkur sæti laus
Bróðir minn Ijónshjarta
- Astrid Lindgren
• i dag Id. kl. 14:00 • nokkur sæti
laus • sud. 11/4 - næst síðasta sýn.
Sýnt á Litla sviði kl. 20.00
Abel Snorko býr einn
- Erik-Emmanuel Schmitt
• i kvöld Id. - uppselt • föd. 9/4
• sud. 11/4 - örfá sæti laus • Id.
17/4 • sud. 18/4
A.t.h. ekki er hægt að hleypa ges-
tum í salinn eftir að sýning hefst.
Sýnt á Smíðaverkstæði kl.20.30
Maður í mislitum
sokkum - Arnmundur Backman
í kvöld Id. - uppselt • sud. 28/3 -
uppselt • fid. 8/4 - uppselt • föd.
9/4 - uppselt • Id. 10/4 - uppselt •
sud. 11/4» fid. 15/4 • föd. 16/4 -
uppselt • Id. 17/4 • sud. 18/4
A.t.h. ekki er hægt að hleypa ges-
tum
í salinn eftir að sýning hefst.
Listdansskóli islands
Nemendasýning mád. 29/3 kl. 20:30
Miðasalan er opin mán.- þri. 13-18
mid-sud. 13-20. Símapantanir frá
jSMIleikfélag Asá
@)éreykjavíkurj®
BORGARLEIKHÚSIÐ
Stóra svið kl. 14:00
Pétur Pan
eftir Sir J.M. Barrie
• í kvöld lau. 27/3 - uppselt
• sun. 28/3 - uppselt • lau.
10/4 - uppselt • sun. 11/4 -
örfá sæti laus • lau. 17/4 -
nokkur sæti laus • sun. 18/4
- nokkur sæti laus
Stóra svið kl. 20.00
Horft frá brúnni
eftir Arthur Miller
• í kvöld lau. 27/3 - Verkið
kynnt í forsal kl. 19:00
• Fös. 9/4 - Verkið kynnt í
forsal kl. 19:00
Stóra svið kl. 20.00
Sex í sveit
eftir Marc Camoletti
76. sýn fös. 10/4 - uppselt
• 77. sýn mið. 21/4.
Stóra svið kl. 20.00
íslenski dansflokk-
urinn
Diving og Flat Space Moving
eftir Rui Horta - Kæra Lóló
eftir Hlíf Svavarsdóttur
6. sýning sun. 28/3
Litla svið kl. 20.00
Fegurðard rottning i n
frá Línakri
eftir Martin McDonagh
5. sýn. lau. 27/3 - örfá sæti
laus • 6. sýn. sun. 28/3 • fös.
9/4 • sun. 11/4
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 12 - 18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
,rr
I?agur
Aldrei vinsælli
W i l I i a m
Shakespeare
er aldrei vin-
sælli meðal
almennings
en einmitt á
okkar tímum,
hátt í fjögur
h u n d r u ð
árum eftir
dauða sinn.
Verk hans
eru sýnd út
um allan
heim (eitt sinn voru 12 sjálf-
stæðar uppfærslur á Hamlet
sýndar samtímis í Tokíóborg
einni). Þau hafa verið þýdd á
meira en eitt hundrað tungu-
mál. Fleiri kvikmyndir hafa
verið gerðar eftir leikritum
hans en ritverkum nokkurs annars
skálds, eða nokkuð á fjórða hundraðið.
Og nú er hann sjálfur orðinn fyrirmynd-
in í kvikmynd sem sópar að sér Osk-
arsverðlaunum í Hollywood.
Efnisþráður kvikmyndarinnar
(Shakespeare in Love) er að vísu hreinn
skáldskapur; höfundarnir fara þá leið að
yfirfæra atburði úr leikritum Shakespe-
ares yfir á hann sjálfan. Sem auðvitað
undirstrikar þá gamalkunnu staðreynd
að þrátt fyrir allt það sem skrifað hefur verið
um ævi skáldsins er afskaplega lítið vitað um
manninn sjálfan.
Skortur heimilda
Skortur á heimildum um Shakespeare hefur
orðið sumum hvatning til að láta hugarflugið
ráða; margir hafa þannig skrifað skáldsögur
um Shakespeare eða ævisögur þar sem afar
frjálslega er farið með staðreyndir. Þeim sem
vilja kynna sér hvernig höfundar hafa gegn-
um tíðina leitað að sannleikanum um líf
Shakespeares og skrifað um hann, skal sér-
staklega bent á merkilega samantekt eftir S.
Schoenbaum, bandarískan prófessor:
„Shakespeare’s Lives.“ Þessi merka bók kom
út í nýrri útgáfu á vegum háskólaútgáfunnar
í Oxford fyrir nokkrum árum.
Enn í dag reyna fræðimenn að gefa Iesend-
ann sem þar var starfræktur og
skáldið verðandi gekk væntanlega í,
og svo framvegis.
Þannig fær lesandinn innsýn í um-
hverfið og aðstæðurnar - fyrst í Strat-
ford og síðan í London þar sem leik-
skáldið vann að öllum þeim mörgu
verkum sem halda nafni hans á lofti.
Hann náði einungis 51 árs aldri, en á
þeim tíma samdi hann að minnsta
kosti 37 leikrit, skóp um 800 persón-
ur og skildi eftir sig ljöldan allan af
orðum sem ekki finnast í ritum fyrir
hans tíma en lifa enn í enskri tungu á
okkar dögum.
En gagnrýnendur eru sammála um
að þótt Honan takist frábærlega að
gefa mynd af ævi Shakespeares nái
hann ekki, frekari en aðrir, að útskýra
hvemig eða hvers vegna Shakespeare
varð eitt mesta skáld Englendinga á
því árþúsundi sem nú er að líða undir lok. Það
er enn sem fyrr óleysanleg ráðgáta.
Verk meistarans
Bók Honans fjallar um manninn Shakespe-
are. Þeir sem vilja lesa frumlega og snjalla
umQöllun um leikritin sem meistarinn skildi
eftir sig fá vart betri leiðsögn en nýlega bók
bandaríska prófessorsins Harold Blooms -
„Shakespeare: The Invention of the Human“
(útgefandi Riverhead Books).
Bloom er þekktur fyrir að segja meiningu
sína tæpitungulaust. Aðdáun hans á
Shakespeare er takmarkalaus; Bloom telur
hann mesta skáld alllra tíma og þann mann
sem f reynd hafi fundið upp persónusköpun í
skáldskap. Hann miðlar ótæpilega af yfir-
gripsmikilli þekkingu sinni á verkum skálds-
ins, gefur kröftugar Iýsingar á viðfangsefnum
skáldsins og fjallar af orðgnótt og hugarflugi
um allar helstu persónur leikritanna. Þótt
sumum finnist kannski nóg um dýrkun
Blooms á Shakespeare hljóta flestir að hrífast
af innsæi og ákafa hans.
Þær bækur, sem hér hafa verið nefndar, má
allar nálgast á Netinu. Þar eru einnig miklar
upplýsingar um skáldið; góð leið til að nálg-
ast þær er að fara inn á vefinn „Mr. WiIIiam
Shakespeare and the Internet“ - slóðin er:
http//daphne.palomar.edu/shakespeare
BÓKA-
HILLAN
William Shakespeare: hver var hann? Park Honan -
Leitin að manninum William Shakespeare.
um sínum mynd af lffi þessa merkasta stór-
mennis enskra bókmennta með því að kanna
rækilega allar tiltækar heimildir um lff
manna á þeim tíma sem Shakespeare var
uppi og á þeim slóðum sem spor hans hafa
Iíklegast legið. Nýjasta bókin af þessu tagi
nefnist einfaldlega „Shakespeare: A Life“
(Shakespeare: Ævisaga) og er eftir Park Hon-
an, sem er prófessor \ið háskólann í Leeds.
Hún hefur fengið frábærar viðtökur gagn-
rýnenda í Bretlandi og Bandarfkjunum.
Óleyst ráðgáta
Rit Honans er fyrst og fremst leit að mannin-
um William Shakespeare. Þar sem heimildir
skortir um hann sjálfan reynir Honan að
draga ályktanir af öðrum upplýsingum sem
fundist hafa - til dæmis um mannlíf í smá-
bænum Stratford við Avon-fljót á þeim árum
sem William var að alast þar upp, barnaskól-
Blóðug Pulp Fiction
Fjórir drengir þurfa að komast yfir hálfa milljón punda i snarheitum. Seinheppni
er orðið sem best lýsir blóðugum eltingarleik þeirra og annarra við peningana.
Lock, Stock &
Two Smoking
Barrels (1998)
- **l/2
Sýnd í Bíóborg-
inni og Nýja
bíó á Akureyri
Leikstjóri og
handritshöf-
undur: Guy
Ritchie
Helstu leikarar:
Jason Flemyng,
Dexter
Fletcher, Nick Moran, Jason
Statham, Steven Macintosh,
Vinnie Jones, Sting, Lenny
Mclaren, P.H. Moriarty.
Fjórir vinir koma sér í peninga-
vandræði. Einn þeirra tapar fjár-
hættuspili fyrir einu helsta
hörkutóli undirheimanna í
ónefndri borg í Bretlandi þar
sem mönnum farnast best hlíti
þeir fyrirmælum glæpona og
geggjaðra eiturlyljabaróna. Vin-
urinn sem tapaðí fjárhættuspil-
inu hafði fengið hálfa milljón
punda lánaða hjá yfirglæponin-
um og þeir fóstbræður hafa nú
eina viku til að sanka að sér fénu
ella verða dagsektir inntar af
hendi: einn putti á dag skorinn
af.
Shooting fish
hittir Pulp Fiction
Það er alltaf heldur tortryggilegt
þegar reynt er að selja fólki eina
mynd á frægð annarrar, þegar
myndir eru spyrtar saman til að
helja þær upp á orðspori fyrir-
fram skilgreindrar tískubylgju.
Lock, Stock and Two Smoking
Barrels er auglýst sem mynd „í
anda Trainspotting og The Full
Monty“ en það verður að viður-
kennast að hún er vissulega skil-
getið afkvæmi bresku nýbylgj-
unnar í k\ikmyndaheiminum en
er auk þess undir sterkum áhrif-
um frá Pulp Fiction hans Tar-
antino en þau áhrif koma einna
helst fram í gegndarlausu (og á
stundum bráðfyndnu) ruglu-
dallalegu ofbeldi. Fylgdarkonu
minni varð á orði að þarna færi
mynd þar sem „Shooting Fish
hittir Pulp Fiction" og er það
ekki Ijarri lagi. Ef við skellum
nokkrum matskeiðum af Train-
spotting í blönduna þá er upp-
skriftin eiginlega komin. Plottið
snýst nefnilega um að ná sér í
helling af peningum á stuttum
tíma (og Shooting Star gerði af-
skaplega skemmtilega þar sem
skjótfenginn gróði var takmark í
sjálfu sér), yfirbragðið minnir
nokkuð á Trainspotting (þungur,
smáskreyttur en rykfallinn íburð-
ur) og afkáralegt ofbeldið er í
anda Pulp Fiction. LSTSB gerir
þetta allt ágætlega og verður svo
sem ekki sökuð um hugmynda-
leysi og stuld þótt sitthvað vanti
upp á að hún hafi burði til að
verða költmynd eins og Pulp
Fiction og Trainspotting.
Blóðböðin fín
Tónlistin er passandi, yfirbragð
og litir flottir, það eru nokkrir
góðir brandarar, bæði sjónrænir
og í orðum, Ieikurinn er fínn hjá
flestum en það er einkum tvennt
sem sker hana frá öðrum mynd-
um af svipuðum toga. Annars
vegar eru ldippingar skemmtileg-
ar þegar frystum myndum er
skellt fram á tjaldið líkt og verið
sé að horfa á slides-myndir (ekki
ósvipað upprifjunarskeiðum f
upphafi hvers eftirmiðdagssápu-
þáttar) og hins vegar absúrd al-
þjóðavísanir í texta og hefði verið
gaman ef betur hefði verið unnið
úr þeirri hugmynd og henni fylgt
út í gegnum myndina.
SUMSÉ: Ágætis afþreying sök-
um ýmislegra frumlegheita. Dá-
lítið tilgerðarleg en vel skipulagð-
ar ofbeldissenur og blóðböðin
skemmtilega skrípaleg.