Dagur - 27.03.1999, Side 9

Dagur - 27.03.1999, Side 9
l>a^wr LAUGARDAGUR 27. MARS 1999- 25 „Við erum að fara í þetta framboð á forsendum Samfylk- ingarinnar, ekki til þess beinlínis að vinna með einhverjum til- teknum flokki eftir kosningar. Eg sé ekki að vinstri-grænir séu neitt geðþekkari samstarfsaðili en hinir.“ - Heldurðu að þið eig- ið eftir að sameinast, vinstri-grænir og Sam- fylkingin? „Eg þori ekkert að segja um það. Eg sé það ekki í kortunum en við erum ekld í neinum slag við þá. Við erum í slag við hægri öflin í þjóðfé- laginu þó að þessir vinstri-grænir virðist sjá okkur sem sinn helsta andstæðing. Það segir kannski sitt um það hvort það verði einhver skyrhræringur úr því í höfn.“ - Af hverju var Mar- grét valin talsmaður Samfylkingarinnar? „Mér finnst það skyn- samlegt. Hún hefur Iagt ýmislegt í sölurnar fyrir því að ná fram sameig- inlegu framboði. Hún er mjög hæfur stjórn- málamaður. Hún er kona og við leggjum mikla áherslu á að gera hlut kvenna stóran. Eg taldi sterkast fyrir Sam- fylkinguna að hún tæki þetta hlutverk að sér.“ Alþýðubandalagið hafði komið illa út úr prófkjörum. Var þetta ekki spuming um að halda Samfylkingunni saman? — „Það má hafa sína skoðun á því. Þessi ákvörðun var ekki gustukaverk. Þetta var ákvörðun sem ég taldi skynsam- lega.“ - Ef Margrét hefði ekki orðið talsmaður Samfylkingarinnar heldurðu að það hefðu komið einhverjir frekari brestir t Sam- fylkinguna? „Eg veit ekki hvort það hefðu komið einhveijir frekari brestir. I svona ferli verða menn að sýna sínu samstarfsfólki fulla virð- ingu og sýna að þeir bera hags- muni Samfylkingarinnar frekar fyrir brjósti en persónulegan metnað. Það var mér mjög auð- velt og Ijúft að taka þessa ákvörðun." Ekki hungraður - Hvert er ykkar forsætisráðherra- efni? „Við höfum ekkert rætt það enda vitum við ekki hvort Sam- fylkingin kemst í ríkisstjórn eða ekki, með hverjum eða hvernig þeir samningar gerast. Forsætis- ráðherraembættið er eitt af því sem kemur upp í samningum flokka í samsteypuríkisstjórn. Þar er skynsamlegast að Ieggja ekki fram neinar ófrávíkjanlegar kröfur fyrir fram svo að við munum ekki gera það. Ef Sam- fylkingin fær góða kosningu, að ég tali ekki um afburða kosn- inga, þá eru það að sjálfsögðu skilaboð frá kjósendum um það hverja þeir vilja sjá í forystu nýrrar ríkisstjórnar.“ - Myndir þú starfa t ríkisstjóm undir forystu Jóhönnu Sigurðar- dóttur? „Eg hef ekki hugmynd um það. Eg er ekkert óskaplega hungrað- ur eftir metorðum en ég hef hins vegar venjulega gegnt þeim störf- um sem ég hef verið beðinn um að gegna og ég mun sjálfsagt skoða það. Það er ekki aðal keppikefli mitt að komast inn í ráðuneyti. Eg er búinn að vera í þeim mörgum, þekki það og hef fengið þeim metnaði svalað." - Ertu að hætta? „Nei. Þetta er bara ekki gulrót- in sem dregur mig áfram. Gulrót- in sem dregur mig áfram er þetta einstaka tældfæri sem við erum að fá til að gerbreyta pólitísku landslagi á íslandi, búa til hreyf- „Ég vona að hún verði góð, ég haldi góðri heilsu og fái að spreyta mig áfram í þeim verk- um sem ég hef áhuga á. Sam- fylkingin snýst ekki um framtíð Sighvats Björgvinssonar heldur um framtíð jafnaðarstefnu á Is- landi." leggur áherslu á að það verði gert á „jákvæðan hátt“ þar sem flokkarnir ganga f hina nýju hreyfingu og leggja eignir sínar með sér á einhvern þann hátt sem flokksfólkið er sátt við, ekki á „neikvæðan hátt“ með því að Ieggja flokka og flokksfélög nið- Ég er ansi hræddur um að það hafi verið viiji ýmissa forystumanna í Alþýðubandalaginu, bæði Steingríms, Hjörleifs og Ögmundar, að taka ekki þátt í þessu samkomulagi, “ segir Sighvatur og telur Kristin H. Gunnarsson sér á parti enda gekk hann í Framsóknarflokkinn. ingu sem ekki hefur verið til í meira en mannsaldur og var drepin í árdaga út af ágreiningi. Það er sú stóra gulrót sem dregur mig áffam. Það að geta skilið slíkt starf eftir sig er að mfnu viti það stærsta sem komið hefur fyrir mig á mínum pólitíska ferli og sennilega hafa ekki aðrir gert betur." Verð ekki á oddinum - Ingibjörg Sólrún hefur stundum ver- ið orðuð við sam- fylkta vinstri menn. Heldurðu að for- ystuliðið breytist eitthvað d þessum fjórum árum sem Itða fram að næstu kosningum? „Ef Samfylk- ingin verður til sem sjálfstæður stjórnmálaflokk- ur þá mun hún að sjálfsögðu boða til lands- fundar með svipuðum hætti og flokkar gera. Þar verður kos- in hefðbundin forysta. Hvaða einstaklingar þar verða á » oddinum hef ég ekki hug- mynd um. Það gæti verið ein- hver af þeim sem er í forystu núna, það gæti líka verið nýtt fólk. Ég tek fram sjálf- ur að ég geri ekki ráð fyrir því að vera í þvf hlutverki," svarar Sig- hvatur. - Hvemig lítur þú á þínafram- tíð? Tilbúin í bátana eftir þrjú ár Sighvatur telur að kosningamál- in í vor verði fjögur; auðlinda- Ekki vill hann nefna neinar töl- ur en segir að lausa- og vanskila- skuldirnar séu engar og að ein- staldingar séu ekki lengur í ábyrgðum fyrir flokkinn. Alþýðu- bandalagið verði að klára sínar skuldir sjálft áður en það gangi inn í hina nýju hreyfingu. „Það var ekki auðvelt fyrir okkur að leysa þetta. í fyrsta iagi þurft- um við að taka erfiða ákvörðun um að Ieggja Alþýðublaðið niður. í öðru Iagi þurftum við að fá fjöldann allan af flokksfólki til að ganga inn í styrktarmanna- samtök til að afla fjár til að geta rekið þennan flokk. I þriðja lagi þurft- um við að gera átak í fjáröflun til að geta greitt niður okkar skuld- ir. Þetta hefur okkur tekist." Velvildin enn fyrir hendi Eftir flokksþingið fyrir tveimur og hálfu ári mældist fylgi Alþýðu- flokksins 22 prósent í skoðanakönnunum hjá Gallup. Sighvatur segir að eftir flokksþingið hafi skoðanakannanir sýnt 38-42 prósenta stuðning við sameigin- Iegt framboð vinstri manna en fyrir síðustu áramót hafi Samfylking- in verið komin niður í 16-18 prósent vegna ýmissa erfiðleika. „Við leystum öll þessi erfiðu mál. Framboðs- listarnir eru nú komnir málin sjávarútvegurinn, há- / svona feríi verða menn a ■ Þar S,„ÍZZfZl‘‘?'T,S'Ú'k‘ M“ ___ flokksféhnn ____ 9 Frlmannsdottur on lendið, málefni fjölskyldunnar, menntamál og skattamál og málefni aldraðra og öryrkja. Ef Samfylkingin fær góða niðurstöðu í kosningunum verður næsta skrefið að stofna ný stjórnmálasamtök. Sighvatur ur. Hann leggur áherslu á að halda flokksmönnum vel upp- lýstum og telur að þetta gerist ekki á einni nóttu, viku eða mánuði. „Við verðum að vera tilbúin í þessa báta í sveitar- stjórnar- kosning- um eftir þrjú ár. Þó að það sé fullur og já- kvæður vilji til að gera þetta þá tekur þetta örugglega tvö, þrjú misseri. Við þurfum að semja um sldpulag nýrra sam- taka og það hvernig þessi félagsaðstaða leggst inn í hinn nýja flokk. Þetta tekur alltaf einhver miss- eri, jafnvel þó það sé engin fyrirstaða. Fólk lætur ekki flytja sig hreppaflutn- ingum milli flokka. Það vill fá að taka þátt í því ferli og þeim ákvörðunum sjálft." Fjárhagur A- flokkanna hefur talsvert verið í umræðunni að undanförnu. Alþýðubandalagið er skuldum vafið og það hefur Alþýðuflokkurinn einnig verið. Sighvatur segir að fjárhagur flokksins sé nú betri en hann hafi verið um áratuga skeið. og sýna að fram. Þegar það gerðist fór Sam- fylkingin að Iyftast aftur, mælist núna í 31-35 prósentum. Það sýnir einfaldlega að þessi velvild sem mældist í upphafi er fyrir hendi. Það er hins vegar engin trygging fyrir því að við fáum þessa niðurstöðu í kosningum. Það er undir okkur sjálfum komið hvort við getum virkjað þennan velvilja. Það má eigin- lega segja að árangurinn sé mjög mikið undir okkur kominn," seg- ir hann. - Hvað er sigur fyrir Samfylk- inguna? „Sigur er 31 -32 prósent og þar yfir. 30-32 prósent er viðunandi. Undir 30 prósentum er ekki nógu gott.“ - Hvað myndi það þýða fyrir Samfylkinguna ef hún fengi tít- reið t kosningunum? „Ég tel að ef við náum ekki upp fyrir 30 prósentin hafi vonir okkar, sem að Samfylkingunni standa, ekki ræst.“ - Hvað myndi það þýða? „Framhaldið yrði sjálfsagt erf- iðara, það að mynda nýjan flokk.“ - Hvað ætlarðu að vera lengi í þessu ströggli áfram? „Ævi stjórnmálamanns er ekki mjög örugg. Þegar ég kom inn á Alþingi 1974 var ég hvað yngst- ur þingmanna. 1978 kom ný kynslóð með Vilmundi, Eiði og svo framvegis. Nú eru þeir allir farnir. Ég held að nú sé farið að halla á seinni hlutann.“ - Finnst þér að það sé að koma tími til að breyta til? „Ég er alveg eins tilbúinn til þess en ég ætla að vinna þau verk sem mér eru falin. Þegar ég gekk til kosninga síðast átti ég ekki von á því að þurfa að taka við keflinu af Jóni Baldvini og gerði það ekki mjög ánægður en ég tók þá við ákveðnu verki og ég ætla að ljúka því. Fyrr en því er lokið ætla ég ekki að hugsa um annað.“

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.