Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 2

Dagur - 17.04.1999, Blaðsíða 2
18 - LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999 HELGARPOTTURINN Fjöldi manna var saman komin til að dreypa á öli og blaðra við félagana á veitingastaðnum Rex síðastliðið föstudagskvöld. Þarna voru ýmsir sem ekki þurfa að klæða sig upp fýrir Rex-ferðir heldur kunna allajafna vel við sig í jakkafötum, s.s. aðstoðarmaður Davíðs Orri Hauksson, Todmóbílarinn fýrrverandi Eyþór Arnalds sem hef- ur tekist með undraskjótum ár- angri að ná mál- hreim og munnviprum Davíðs eftir að hann varð borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins..-En þetta var litfagurt regnbogakrád því auk Dav- íðsmanna, Ozara, fýrirsæta og sagnfræðinga voru þarna þau líkamsræktarfrömuðurinn og vinur litla mannsins, Jónína Benedikts- dóttir og Jóhannes í Bónus. Jónína Benediktsdóttir. Jóhannes í Bónus. Sú myndarlega söngkona Hrafnhildur Björnsdóttir sem syngur nú í uppfærslu Óperunnar á Leðurblökunni, er hreint ekkíein um söngáhug- ann í fjölskyldunni eins og margan sem sáu forsíðu Lífsins í landinu í gær hefur vafalaust rennt í grun. Þær eru nefnilega systur, hún og Selma Björnsdóttir Júróvisjónfari... Og meira um Selmu. Enn eru ’margar vikur þyar tíf Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva verður hafdin í Jerúsalem en til að stytta áhuga- sömum stundir skal bent á vefslöð á heimasfðu haldara keþpninnar. Slóðin er: http//eurovision-pr.walla.co.il. Þar er meðal annars listi yfir löndin sem taka þátt, nöfn keppenda og laganna þeirra. Eitthvað hefur þó vafist fyrir ísraelsmönnunum að nota' ö því íslenski keppandin.n er sagður heita Selma Bjrnsdottir og það getum við náttúrufega ómögulega samþykkt. Stjórnmálamennirnir þurfa aldeilis.að standa sig í kosningabaráttunni þessa dagana þó að þeir strfði við krankleika og aðra erfiðleika. Þannig hefur Sighvatur Björgvinsson ver- ið illa haldinn af brjóskjosi í nokkrár vikur og þurft að fara reglulega til_ sjúkraþjálfara erí ekki komist síðustu daga þvf hann hefur set- ið pikkfastur vest- ur á (safirði vegna veðurs. Þá er Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra fjarri góðu garhni í kosn- ingabaráttunni en hann fór í hjartauppskurð fyrir viku síðan. Hjartaaðgerð er auðvitað heil- mikil aðgerð en Páli líður vel miðað við að- stæður og þess vafalaust ekki langt að bíða að hann komist á stjá á nýjan leik. Sighvatur Björgvinsson. Páll Pétursson. Spilað verður á um 11 mismunandi tegundir af flautum í Gerðubergi í dag. á flautudegi Flautan í öllu sínu veldi verður í aðalhlutverki í Gerðubergi i dag þar sem Dagur flautunnar er haldinn hátíðlegur... Akureyrska hljómsveitin 200.000 naglbítar vinnur nú að upptökum fyrir væntanlegan disk sem stefnt er að útgáfu á í haust Spurð- ur um samanburð yið fyrri diskinn og hvort sá nýi verði líkur þeim fyrri segir Villi naglbítur (eða er hann 200.000?}, að þeir verði að ein- hverju leyti Ifkir. Hljómsveitin stefnir að mikilli spilamennsku í sumar ásamt því að klára að taka upp lög á diskinn. Eitthvað hefur hugur- inn leitað út fýrir landsteinana og fyrirspurnir borist eitthvað eru menn að reyna fýrir sér, meðal annars að syngja á ensku. „En við ætlúm ekkert að vera í- kafi þangaðlil éitthvað gerist" segir Villi. KK (Kristfán Kristjánsson) ftefur lagt af stað í langferð og mun á næstu 44 dögum halda 42 tónleika. „Vorboðinn Ijúfi” er heiti ferðarínnar og munu KK og félagar ætla að leggja áherslu á að tónleikar verði ekki bara á þétt- býlustu stöðunum, heldur einnig sem mest á stöðum sem eru ekki alltaf „í leiðinni" þegar tónleikaferðir eru annars vegar. Margir við- komustaðanna hafa ekki fengið heimsóknir af þessu tagi svo árum skiptir ogsumir hafa ekki' vegasamband nema hluta úr ári (Grímsey reyndar aldrei}. Á þremur stöðum leiðarinnar mun KK-Band (KK ásamt Þorleifi Guðjónssyni og Komma) koma fram og á þremur stöðum verður Magnús Eiríksson KK til fulltingis. Bókafólkið í landinu ætlar að gera sér glaðan dag á laugardagskvöldið um aðra helgi, eða í lok viku bókarinnar, sem hefst í næstu viku, þegar efnt verður til bókaballs í Perlunni. Stendur til að stefna þar saman for- leggjurum, rithöfundum, bókagerðarmönnum, bóksölum og öllum þeim sem að bókum koma - utan þeim sem þær lesa. Á Bókaballinu mun Ing- veldur Ýr Jónsdóttir syngja lög við Ijóð fslenskra skálda en trompið er stórskáldið Þórarinn Eldjárn sem flytur hátíðarræðu kvöldsins á þann stórskemmtilega hátt sem honum er lagið. Kanntu meinlaust slúður og skemmtisögur úr félags- líftnu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkur fréttir og ábendingar til birtingar t Helgarpottinum. Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja- vtk eða á netfangið: ritstjori@dagur. í dag ld. 14-19 verður haldinn Dag- ur flautunnar í Gerðubergi og í til- efni af honum verður fjölbreytt dag- skrá með flautuleik allra helstu flautuleikara þjóðarinnar, m.a. verður frumflutt flautuverk eftir Charles Ross, sem var sérstaklega samið fyrir þennan dag en auk þess verða skringilegar og lítt skringileg- ar flautur til sýnis og sölu. Gera má ráð fyrir að aðsókn verði töluverð enda eru mörg hundruð flautunem- endur á landinu. Ashildur Haralds- dóttir flautuleikari er einn skipu- - leggjanda- dagskrárinnar. 25 flautur í kór - Af hverju var ákveðið að halda dag flautunnar? „1 fyrra var það gítarinn, nú er það flautan og á næsta ári verður það eitthvað annað hljóðfæri. En við vonumst til að þetta verði hefð að taka svona eitt hljóðfæri fyrir á hveiju ári.“ - Og hvað er áhugavert á dag- skránni? „Það er náttúrulega tónlistin sjálf. Það er t.d. mjög spennandi að það er verið að frumflytja nýtt verk fyrir 25 flautur og Jjað er mjög sjaldgæft að heyra svona margar flautur saman - ég veit ekki til þess að það hafi heyrst svona margar flautur spila saman á íslandi. Það kemur mjög sérstakur hljómur þeg- ar þú ert komin með heila hljóm- sveit af flautum. Svo spilar CamiIIa Söderberg verk frá renaissance- tímabilinu og glænýtt verk eftir Kjartan Ólafsson. Dagskráin spann- ar sem sagt tónlist alveg frá rena- issance-tímanum og fram á daginn í dag,“ segir Áshildur og bendir á að í lokaatriðinu megi allir viðstaddir sem eru trallfærir á flautu og nötnalæsir taka þátt í samleik. Fólk fær nótur að Óðinum til gleðinnar úr 9. sinfóníu Beethovens og Bleika Pardusinum eftir Henri Machini. „Við vonumst til að þá verði mikil þátttaka i salnum þar sem fólk situr með flauturnar sínar." Markaðsstemmning „Svo verður heilmikil markaðs- stemmning þarna. Það koma flautusmiðir og flautusalar frá Frakklandi og Bretlandi. Nótnasal- ar verða líka þarna, bæði héðan frá íslandi og erlendis frá. Þannig að þeir sem hafa áhuga á flautu geta ekkt látið daginn framhjá sér fara. Það er líka mjög ólíklegt að svona- lagað verði endurtekið hér fyrir þetta hljóðfæri en svona þing eru haldin í flestum löndum og þar eru oft mörg þúsUnd manns. Eg fór t.d. á eitt í New York og þangað komu um 5000 manns. Já, já.... Svo verð- ur kaffistofan Iíka opin ef fólk er orðið alveg aðframkomið. Fólk þarf sem sagt ekki að taka nesti..." LÓA MAÐUR VIKUNNAR ... ... er hinn reykvíski kennari, „stjórnleysinginn“ sanni sem fyrirvaralaust sendir börnin heim úr skólanum í trássi við gildandi reglur og kjarasamninga, pínir borg- arstjórann að samningaborðinu og heimtar fleiri krónur og aura frá borgarstjóranum. Já maður vikunnar er hinn stjórnlausi kennari sem tilheyrir einni sterkustu stétt landsins og fær aldrei nóg.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.