Dagur - 17.04.1999, Síða 8
24 - LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1999
lí
J
'3 ' j ■ i
-■ j1 1
'S
1 #1
é * fifi
„Mér er afar vel og hlýlega tekið af almenningi sem virðist hvorki telja mig drambsaman né hrokafullan. En sennilega vona samfyikingarsinnar að ef þeir segi nógu lengi og nógu oft að ég sé haldinn
þessum eiginleikum þá muni fólk trúa þeirn." myndir: hilmar þór
í opnuviðtali
ræðir Davíð
Oddsson um
stöðu
stæðis-
flokksins,
málefni
Samfylkingar og
áherslumál í kosninga-
baráttunni.
- Nú tflía fulltrúar Samfylkingar
um Sjálfstæðisflokkinn sem höf-
uðandstæðing sinn. Lítur Sjálf-
stæðisflokkurinn á Samfylking-
unasem höfuðandstæðing sinn?
„Ég svara þessari spurningu
neitandi. Eg held að Samfylk-
ingin telji sig vera að hækka í
sér hlutabréfin með því að velja
sér svo burðugan andstæðing
sem Sjálfstæðisflokkurinn óneit-
anlega er. Þetta eru leikræn til-
þrif hjá þeim fremur en pólitík."
- Gætir þú hugsað þér að starfa
með Samfylkingunni í ríkis-
stjóm?
„Mér finnst óeðlilegt í Iýðræð-
islandi að einn floldkur útiloki
stjórnarsamstarf með einhverj-
um öðrum flokki meðan ekki er
um að ræða því meiri öfga-
flokka. Hins vegar verð ég að
segja að sumt sem maður sér frá
Samfylkingunni er þess eðlis að
það virðist ekki gott búsílag í
málefnasamning. A hinn bóginn
sýnist mér að hjá Samfylking-
unni séu málefnin meira eða
minna öll til sölu.“
- Finnst þér Samfylkingin ekki
hafa talað þannig að hún telji að
það komi ekki til greina að starfa
í rtkisstjórn með Sjálfstæðis-
flokknum?
„Ef Samfylkingin vill minnka
möguleika sína til ríkisstjómar-
þátttöku þá sé ég enga ástæðu
til athugasemda."
- Ef Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur halda meiri-
hluta ætlar þú þá eftir kosningar
að skila umboði þínu til stjórnar-
myndunar eða endumýið þið
Halldór stjórnarsamstarfið?
„Ef ríkisstjórn, hver sem hún
er, heldur meirihluta þá er ekki
nein efni til að skila inn umboði
til stjórnarmyndunar. Það þýðir
þó ekki endilega að stjórnin sitji
áfram. Nýjasta dæmið er frá
1995 þegar Sjálfstæðisflokkur
og Alþýðuflokkur héldu meiri-
hluta, að vísu aðeins með einu
þingsæti. Það var ekki áhugi, hjá
hvorugum flokknum, að biðjast
lausnar af því tilefni, hins vegar
fór svo að þeir sátu ekki áfram
saman í ríkisstjórn.“
- Níí hefur samstarfið t ríkis-
stjórninni verið gott. Hvemig
hefur það verið t samanburði við
Alþýðuflokkinn?
„Samstarfið í ríkisstjórninni
hefur verið afar gott, um það
ber báðum flokkum saman. Eg
þekki ekki mörg dæmi þess í ís-
Ienskum nútímastjórnmálum að
stjórnmálamenn hafi gefið sam-
starfsflokki jafn góða einkunn
og þessir flokkar hafa gert. Þú
spyrð um samstarfið við Alþýðu-
flokkinn. í kosningabaráttunni
1995 fór Alþýðuflokkurinn gegn
Sjálfstæðisflokknum, reyndi að
gera hann tortryggilegan í Evr-
ópumálum og sakaði hann um
að setja á ofurtolla. Okkur
fannst samstarfsflokkurinn fara
ómaklega aftan að okkur og það
kólnaði mjög milli manna á
þessum vikum. Við vissum vel
að þetta var bara sýndar-
mennska krata í kosningabar-
áttu og hún var að sumu leyti
skiljanleg. Jóhanna hafði hlaup-
ið burtu og með vissum hætti
var hún að reyna að drepa Al-
þýðuflokkinn. Alþýðuflokks-
menn gripu til örþrifaráða og
reyndu að ná fylgi frá okkur en
það hafði ekki jákvæð áhrif og
það fyllti menn vantrausti á
áframhaldandi samstarf."
- Nú hefur heyrst að sumum
framsóknarmönnum þyki Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki hafa staðið
nægilega á bak við Finn Ingólfs-
son og Ingibjörgu Pálmadóttur
þegar þau hafa verið að gltma við
erfið mál.
„Ég hef ekki heyrt framsókn-
armenn segja þetta en ég hef
heyrt stjórnarandstæðinga segja
þetta við framsóknarmenn. Eg
held að allir sem hafi íylgst með
störfum mínum hafi tekið eftir
að ég hef brugðið skildi fyrir
báða þessa ráðherra, ekki einu
sinni heldur oft, ef á þá hefur
verið ráðist. Ég tel það ekki neitt
þakkarefni heldur sjálfsagðan
hlut.“
Hlýlega tekið
af almenningi
- Hvað með ásakanir um að þið
Bjöm Bjarnason séuð að vega að
tjáningarfrelsi í landinu með þvt
að saka fréttamenn um hlut-
drægni ífréttaflutningi?
„Ég hef ekki heyrt fréttamenn
tala um þetta. Þeir hafa hins
vegar sagt mér að vinstri menn
hringi mikið í fréttastofurnar.
Það geri ég aldrei. Eina dæmið
sem menn geta talað um í mínu
tilfelli var gagnrýni á fréttastofu
Ríkissjónvarpsins eftir borgar-
stjórnarkosningar. Ég gerði eng-
ar athugasemdir meðan á slagn-
um stóð. Gagnrýnin kom eftir
kosningarnar og ef aldrei má
gagnrýna eftir á, þótt gagnrýni
geti verið hörð, þá eru menn
orðnir afskaplega viðkvæmir fyr-
ir sjálfum sér.“
- Hvað þá með aðrar fullyrð-
ingar um að þú sért drambsamur