Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 4

Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 4
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 WÓÐLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20:00 GULLNA HLIÐIÐ eftir Davíð Stefánsson Frumsýning annan í jólum 26/12, uppselt, 2. sýn. þri. 28/12 uppselt, 3. sýn. mið 29/12 uppselt, 4. sýn. mið. 5/1 nokkur sæti laus, 5. sýn. fim. 6/1 nokkur sæti laus, 6. sýn. lau. 8/1 nokkur sæti laus, 7. sýn. mið. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 13/1 nokkur sæti laus, Tónlist: Páll ísólfsson og Jóhann G. Jóhannsson Lýsing: Páll Ragnarsson Búningar: Elín Edda Árnadóttir Leikmynd: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason Leikendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Edda Heiðrún Backman, Erlingur Gíslason, Guðrún S. Gísladóttir, Kjartan Guðjónsson, Ólafur Darri Ólafsson, Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Stefán Karl Stefánsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Tinna Gunnlaugsdóttir. GLANNI GLÆPUR í LATABÆ - Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Fim. 30/12 kl. 14:00, uppselt, kl. 17:00, uppselt, sun. 2/1 2000 kl. 14:00, örfá sæti laus, og kl. 17:00, nokkur sæti laus , 9/1 2000 kl. 14:00 nokkur sæti laus og kl. 17:00 nokkur sæti laus, 16/1 2000 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 nokkur sæti laus, 23/1 2000 kl. 14:00 nokkur sæti laus og kl. 17:00 nokkur sæti laus, 30/1 2000 kl. 14:00 nokkur sæti laus og kl. 17:00 nokkur sæti laus KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS - Bertolt Brecht Fös. 7/1, lau. 15/1. TVEIR TVÖFALDIR - Ray Cooney Fös. 14/1, lau. 22/1. Litla sviðið kl. 20:00 ABEL SNORKO BÝR EINN - Eric-Emmanuel Schmitt þri. 28/12, uppselt, mið. 29/12 uppselt, fim. 30/12 nokkur sæti laus, þri 4/1 laus sæti, mið 5/1 laus sæti. Ath. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst. Miðasalan er opin mánud,- þriðjud. kl. 13-18, miðvikud.-sunnud. kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551-1200. Gjafakort í þjóðleikhúsið - gjöfin sem lifnar við! Ða^ttr „Hetjur hafsins" Tyrkjaránið árið BOKfl’ 1627 er einn af HILLAN þeim atburðum Islandssögunnar sem lifað hefur í þjóðarvitundinni öldum saman. Enda stór í snið- um á íslenskan mælikvarða, því ræningjarnir sunnan úr Bar- baríinu höfðu á brott með sér mörg hundruð íslendinga. Flestir þeirra áttu ekki afturkvæmt til fósturlandsins. Hinu hefur minna verið haldið á lofti að um svipað Ieyti sem Tyrkjaránið var framið í Vest- mannaeyjum - eða á seinni hluta sextándu aldar og nokkuð fram á þá sautjándu - voru sjórán býsna algeng á hafinu umhverfis Island. Þar voru hins vegar ekki „Tyrkir" að verki, því þeir voru lítt þekktir fyrir að sækja svo langt norður, heldur Englendingar. Reyndar voru sjórán þeirra stundum fram- in með opinberu leyfi stjórnvalda, jtað er að segja þegar þau beindust gegn Spánverjum eða öðrum óvin- um ríkisins. Það mun vafalaust koma lang- flestum mjög á óvart hversu um- fangsmikla starfsemi sjóræningjar stunduðu við Island á íyrrgreind- um tíma, en um það má lesa í þessari nýju og stórmerkilegu bók eftir Helga Þorláksson, sagnfræð- ing. Mikilvægi íslandsmiða Bók Helga íjallar um sjórán og siglingar Englendinga hér við land Elías Snæland Jónsson ritstjóri á fimmtíu ára tímabili, frá 1580 til 1630. Gerð er ágæt grein fyrir tíðarandan- um á þessum árum. Einnig mikilvægi Islandsmiða fyrir sumar nágrannaþjóðirnar sem sendu hingað fjölda skipa til veiða á hveiju ári. Vekur sérstaka athygli að „sá guli“ var ekki á þeim tíma eftirsóttasta auðlindin í sjónum, heldur ættingi hans - langan - sem þótti herramannsmatur jafnvel hjá ensku hirðinni. Þá er einnig athyglisvert að af hálfu Englendinga var gjaman litið á siglingar á Is- landsmið sem besta sjó- mannaskóla þess tíma. En forvitnilegust er lýs- ing höfundarins á sögu, at- ferli og örlögum þeirra fjöl- mörgu manna sem einkum komu við sögu sjórána hér við land á þessum tíma - og reyndar víðar á Norður-Atl- antshafinu. Og þá ekki að- eins lýsingar á sjóræningj- unum heldur einnig ýms- um þeim dönskum mönn- um og íslenskum sem lentu í útistöðum við þijótana, en sumir þeirra virðast engu skárri en ræningjarnir sjálfir. Ránsfengur sjóræningjanna var yfirleitt hvorki gull né silfur held- ur hversdagslegri nauðsynjar. Þeir létu gjarnan greipar sópa um borð í fiskiskipunum - stálu vistum, afla, fatnaði, drykkjarföngum og arsögunni - það er þegar Jón Gentilmann hefndi sín á Vestmannaeyingum all- mörgum árum áður en Tyrkir komu í fræga heim- sókn sína. Spennandi kynnisferð Það liggur augljóslega mildl rannsóknarvinna á bak við ritun þessarar fróð- legu bókar. Einkum hefur höfundurinn kannað ftar- lega skjöl og aðrar heimild- ir á Englandi. En það er ekki sfður frá- sagnaraðferðin og stíllinn sem gefur bókinni gildi. Höfundurinn tekur les- andann með sér í spenn- andi sögulega kynnisferð um ála Atlantshafsins í leit að harla fjölbreyttum hópi sjóræningja og annarra „hetja hafsins“ sem héldu til Islands stranda fyrir fjórum öldum eða svo. A þeirri ferð gefur hann eft- irminnilegar svipmyndir af margra þjóða kvikindum sem standa ljóslifandi fýrir hugskotssjónum lesand- ans. Enda er þetta tvímælalaust með fróðlegri og skemmtilegri sagnffæðiritum síðari ára. SJÓRÁN OG SIGLINGAR. Höfundur: Helgi Þorláksson. Utgefandi: Mál og menning. Eitt frægasti sjónræninginn, Kidd að nafni, endaði feril sinn með þessum hætti í Lundúnaborg. öðru slíku, og svo auðvitað sjó- mönnum til að vinna um borð í sjóræningjaskipunum. Fóru marg- ir nauðugir í þá vist, en aðrir vilj- ugir eins og gengur. Minna var hins vegar um rán á landi, ef undan er skilin sú heim- sókn sem einnig hefur lifað í þjóð- Snjóþung hvers- dagstilvera á hvolf Þeir Hank og Jacob finna peningahrúgu og eru ekki á eitt sáttir um hvað eigi að gera við fenginn. Billy Bob Thornton var á stundum glitrandi flottur í hlutverki hins hjárænulega Jacob en lengst afnáði hann ekki að afmá greindarglampann úr augunum. ★ ★ ★ EINFÖLD RÁÐAGERÐ (A simple plan) Leikstjóri: Sam Raimi. Handrit eftir skáldsögu Scott Smith. Aðalhlutverk: Billy Bob Thomton, BiII Paxton og Bridget Fonda. Þegar ég villtist óvart inn á þcssa mynd í vikunni átti ég satt að segja von á tveggja tíma Ieiðind- um og ekki batnaði skapið eftir að hafa horft á skjáauglýsingar í heila eilífð og svo hreyfanlegar auglýsingar í aðra eilífð. En þeg- ar myndin tók loks að rúlla lak umsvifalaust úr manni allur pirr- ingur, hann gufaði upp um leið og snjóþungar og fannhvítar myndirnar tóku að líða eftir tjaldinu í þessari mynd sem reyndist vera einföld en ágætlega gerð dæmisaga um hvernig ofur- hversdagslegt gæðafólk er reiðu- búið að hætta sálarrónni fyrir peningafúlgu. Hversu lítið þarf til að hvunndagsmennið fleygi upp í vindinn uppeldinu og sann- færingunni um mikilvægi þess að vera umfram allt góð manneskja. Mikil sómamynd Smábæjarmennirnir Hank Mitchell (Bill Paxton), bróðir hans Jacob (BiIIy Bob Thornton) og Lou vinur Jacobs rekast óvart á flugvélaflak inni í miðjum skógi (í flottri snævi þakinni senu þar sem ekkert rýfur þögnina nema fljúgandi tinnusvartar krákur) og þar inni er taska úttroðin af pen- ingaseðlum. Fyrstu viðbrögð hins hamingjusama hversdags- mennis Hanks er að fara með skjattann til lögreglunnar, þeir greindarskertu náungar Jacob og Lou fara hins vegar strax að Iáta sig dreyma um trukkana, eigin- konuna og bóndabæinn sem fyr- ir slíka peningahrúgu má kaupa. Hank er freistað, eigandi pening- anna er nú einu sinni steindauð- ur og ólíklegt að hann sakni þeir- ra. Eftir nokkrar fortölur tekur hinn geðprúði verðandi faðir af skarið, hann skuli geyma pening- ana þar til ljóst sé að þeirra verði ekki saknað. Því næst geti þeir skipt með sér fjársjóðnum. Eig- inkonunni hans óléttu (Bridget Fonda) líst illa á uppátækið í eitt augnablik en snýst svo á sveif með gróðavoninni mun snarar en eiginmaðurinn. Hún tekur málið upp á sína arma, bendir á ýmsar leiðir til að hylja spor fé- laganna og rjúfa tengsl þeirra við flugvélina. Smám saman hlcðst hvert óvilja- en voðaverkið ofan á annað og félagarnir sökkva æ dýpra í fen græðginnar. Ekki svo að skilja að hversdagsfólkið taki hamskiptum og verði illt í gegn, nei, slægðin ristir bara ekki nógu djúpt og viðbrögð einnar vesæll- ar mannssálar er ekki alltaf fyrir- sjáanleg þegar tilveran hrekkur út af sporinu. SUMSÉ: Þetta er mikil sóma- mynd, vel upp byggð, vel tekin, klippingar smekklegar og boð- skapurinn kýrskýr. Hún er stór- vel leikin og ef ekki hefði verið fyrir helsti snilldarsprettalaust handrit og köflóttan leik Thornt- on (sem var alltof greindarlegur til augnanna til að geta leikið greindarskertan utanveltubesefa) þá væri þetta A-mynd. Hún er hins vegar frekar A mt'nus - en al- veg stórfín og notalegasta afþrey- >ng- KVIK- MYNDIR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.