Dagur - 18.12.1999, Qupperneq 7
IBÆKUR
íslensk heiðursmerki
Háskólaútgáfan-
hefur gefið út bók-
ina Islcnsk heið-
ursmerki eftir
Birgi Thorlacius.
I bókinni er leit-
ast við að rekja
sögu fálkaorðunn-
ar og annarra íslenskra heið-
ursmerkja, svo og þeirra heið-
ursmekrja sem efnt var til á
dögum konungsdæmisins og
sérstaklega voru ætluð íslend-
ingum. Einnig er nokkuð fjall-
að um dannebrogsorðuna og
heiðurspening sem ætlaður var
þeim sem þátt tóku í Slésvíku-
rófriðnum 1848-1850, en í
þeim hópi voru nokkrir íslend-
ingar.
Ljós landsins
Ljósið yfir landinu
er sjöunda bók
Omars Ragnars-
sonar fréttamanns,
þar sem hann
fléttar saman frá-
sögur af fólki og landinu á sinn
sérstæða hátt.
I þessari bók segir Omar
m.a. frá ferð sinni með að-
standendur japanskra vísinda-
manna sem fórust við Rjúpna-
brekkukvísl, en tilgangur fólks-
ins var að kveðja sálir hinna
látnu. Sagt er frá konu sem
seldi allar eigur sínar og hélt
upp á hálendi íslands um há-
vetur, svo eitthvað sé nefnt af
því hvemig höfundurinn fléttar
saman landið og mannleg ör-
lög. Fróði gefur bókina út.
Okkar á milli
Mál og menning
hefur gefið út bók-
ina Okkar á milli
eftir Arthúr Björg-
vin Bollason, sem
er fyrsta ljóðabók
hans, en hann er
þekktur fyrir störf við fjölmiðl-
un og ritstörf.
Guðrýn yrkir
bamabok
Guðrún Helgadótt-
ir hefur nú í lyrsta
sinn sent frá sér
barnabók í bundnu
máli og heitir hún
hvorki meira né minna en
Handagúndavél og ekkert
Kristjánsdóttir
Vaka-I lelgafell
Freydís
myndskreytti.
gefur út.
Ævintýri
flughvals
Forlagið hefur sent
frá sér barnabókina
Fallegi flughvalur-
inn og sagan af litla
stjörnukerfinu. Hér
segir frá flughvalnum sem á
hverju kvöldi flýgur upp úr
Hvalfirðinum og gætir að
vellíðan barnanna. Halla Sól-
veig Þorgeirsdóttir mynd-
skreytti.
Bókmennta-
umbrot
Háskólaútgáfan hef-
ur gefið út bókina
Umbrot. Bókmenntir
og nútími eftir Ast-
ráð Eysteinsson. Hún hcfur
að geyma 26 greinar um nú-
tímabókmenntir, íslenskar og
erlendar, og fjalla þær hver á
sinn hátt um umbrot sem
skipta sköpum fyrir skilning
okkar á skáldskap og tengslum
hans við aðrar nútímahræring-
ar. Bókin veitir innsýn í bók-
menntir jafnt sem bókmennta-
fræði síðustu áratuga.
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 - 23
ÓJ £j'J j'J 1 Jj ÍjA n L JpJÐ J LA j'JÐJj'JU )
Bestu
skáldsögumar
Fjöldi skáldsagna kemur út um þessi jól. Dagur velur fimm bestu skáldsögur ársins.
Tekið skal fram að bókunum fimm er raðað í stafrófsröð.
Andrúms-
loft kvíða
I fyrstu skáld-
sögu sinni
Hvíldardögum
lýsir Bragi
Ólafsson viku
í lífi manns á
fertugsaldri
sem fer í
þriggja mánaða sumarfrí. Hann
fyllist óöryggi og hversdagsleg-
ustu ákvarðanir taka að vefjast
fyrir honum. Höfundi tekst
mjög vel að skapa sögunni trú-
verðugt andrúmsloft og lesand-
inn skynjar vel kvíða og efa
sögupersónunn-
ar. Góð og
áhugaverð
skáldsaga.
Fiör og
alvara
Kular af degi,
þriðja skáldsaga
Kristínar Marju Baldursdóttur
er hráðskemmtileg saga um
hina stoltu heimskonu og
kennara Þórsteinu Þórsdóttur
sem grípur til sinna ráða þegar
atburðir fara úr böndum. Fjör-
lega skrifuð bók með alvarleg-
um undirtón. Ein af þessum
vel heppnuðu sögum þar sem
tekst að sameina djúpa alvöru
og ríka gamansemi á trúverð-
ugan hátt.
Heillandi lesning
Slóð fiðrild-
anna er lang-
besta bók
Ólafs Jóhanns
Ólafssonar.
Asdís Jóns-
dóttir sem í
langan tfma
hefur rekið
sveitahótel á
Englandi snýr heim til Islands
og horfist í augu við fortíð sína.
SIÓÐ
MDRII.DANNA
OlAtUR JÓHANN
ÓtAFSSON
Sérlega vel skrifuð skáldsaga
sem er allt í senn spennandi,
fyndin, angurvær og dramatísk.
Falleg og heillandi bók sem
hægt er að lesa sér til ánægju
aftur og aftur.
Sagnfræði
og skáldskapur
I sögulegri
skáldsögu,
Stúlka með
fingur, sýnir
Þórunn Valdi-
marsdóttir all-
ar sínar bestu
hliðar sem
sagnfræðingur
og skáld. Þetta
er þroskasaga Unnar Jónsdóttur
sem kynnist forboðinni ást og
lætur engan buga sig. Lýsingar á
umhverfi, daglegum háttum og
starfsvenjum fólks eru sérlega
vel gerðar og úr verður traust og
lifandi aldarfarslýsing. Ástarsaga
sögunnar er bæði djörf og falleg.
Sérlega vel heppnuð bók.
Kraftur og dramtík
Vetrarferðin, þriðja bókin í þrí-
leik Ólafs Gunnarssonar er ein
dramatískasta skáldsaga seinni
ára. Sögusviðið er Reykjavík á
stríðsárunum og aðalpersónan
Sigrún verður að ganga í gegn-
um miklar hörmungar. Þetta er
fjölmenn skáldsaga með breysk-
um og áhugaverðum persónum
sem láta stjórnast af hvötum
sínum. Kröftug frásögn og sterk
persónusköp-
un halda les-
andanum
rækilega við
efnið á tæp-
um 500 síð-
um. Feikilega
góð skáld-
saga.
Fræðibækur og
ævisögur
Óvenju mikið af góðum fræðibókum og ævisögum hefur komið út fyrir þessi jól. Dagur fékk
lestrarhesta til að velja úr bunkanum fimm þær bestu að þeirra mati. Niðurstaðan er
birt hér á síðunni - og er bókunum fimm raðað í stafrófsröð.
Einar Benediktsson
í öllu sínu veldi
Annað bindi
ævisögu Einars
Benediktsson-
ar skálds hefst
árið 1907 þeg-
ar hann er að
fara með fjöl-
skylduna til
Bretlands með
ekkert í hönd-
unum nema trúna á sjálfan sig
og nokkrar eignir á íslandi sem
geta orðið bakhjarl hans ef í
harðbakkann slær, en lýkur tíu
árum síðar, árið 1917, þegar
Einar er orðinn milljónamæring-
ur en finnst engu að síður nær
dauða en Iífi af drykkju í fá-
tækrahverfi Kristianíu (Osló).
A þessu tíu ára tímabili hefur
Einar lifað og starfað með þeim
hætti sem fljótlega varð efni í
þjóðsögur. Guðjón Friðriksson
hefur kafað ofan í heimildir víða
um lönd og unnið afbragðsvel úr
þeim. Einar Benediktsson birtist
hér í öllu sínu veldi á hátindi
veraldlegrar velgengni sinnar.
Einstök sýn
I þessari minnisstæðu bók lýsir
sálfræðingurinn Kay Redfield
Jamison baráttu sinni við geð-
hvarfasýki.
Bókin hefur
vakið athygli
víða um heim
enda birtir hún
einstaka sýn
inn í hugar-
heim og líf
konu sem tekst
að ná tökum á
geðveiki. Bókin er skrifuð af
miklu hugrekki og heiðarleika.
Jamison er flinkur stílisti og
stíllinn fangar lesandann strax á
fyrstu síðunum. Menn þurfa
ekki að hafa sérstakan áhuga á
geðhvarfasýki til að kunna að
meta þessa bók. Þetta er bók
sem ætti að snerta alla sem láta
sig mannleg örlög einhverju
varða.
Áhrifamikil mynd
af lista skáldinu góða
Páll Vals-
son, ís-
lenskufræð-
ingur, sem
lengi hefur
rannsakað
ævi og verk
þessa höf-
uðskálds ís~
lendinga á
nítjándu
öldinni, gefur í þessari nýju
ævisögu mun nákvæmari og
heilsteyptari mynd af Jónasi
Hallgrímssyni en öðrum hefur
auðnast. Jónas birtist hér les-
endum sem dugmikill og at-
orkusamur maður, jafnt við
nám sem fræðistörf. ÆviferiII
og skáldskapur Jónasar er hér
listilega fléttaður saman.
Þetta er myndarleg bók sem
gefur heilsteypta og áhrifa-
mikla mynd af listaskáldinu
góða. Með henni hefur Jónas
Hallgrímsson fengið þá ævi-
sögu sem lengi hefur verið beð-
ið eftir.
8000 snjallyrði
Tryggvi Gísla-
son, skóla-
meistari
Menntaskól-
ans á Akureyri,
hefur tekið
saman þetta
safn tilvitnana
og fleygra
orða. í bókinni
eru um 8000 uppflettiorð sem
eru meðal þess sem snjallast
hefur verið sagt hér á landi.
Fjöldi erlendra tilvitnana er
einnig í bókinni. Það gefur þess-
ari bók aukið gildi að hverri til-
vitnun fylgja ítarlegar upplýsing-
ar og skýringar á orðum og orð-
tökum. Þetta er bók sem sárlega
hefur vantað á íslenskan bóka-
markað. Það er sannarlega feng-
ur að henni.
Enskir sjóræningjar
á Islandsmiðum
I þessari
nýju og stór-
merkilegu
bók eftir
Helga Þor-
láksson,
sagnfræðing,
kemur skýrt
fram hversu
umfangs-
mikla starfsemi enskir sjóræn-
ingjar stunduðu við ísland á ár-
unum frá 1580 til 1630. Helgi
gerir góða grein fyrir tíðarand-
anum á þessum árum og mikil-
vægi lslandsmiða, en forvitni-
legust er lýsing höfundarins á
sögu, atferli og örlögum þeirra
fjölmörgu manna sem einkum
komu við sögu sjórána hér við
land á þessum tíma.
Heimildarvinnan, frásagnar-
aðferðin og stíllinn gera þetta
af einu fróðlegasta og skemmti-
legasta sagnfræðiriti síðustu
ára.