Dagur - 18.12.1999, Side 20
36- LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999
rD^ftr
R A Ð K iUGLYSIIi 1 G A R
A T V 1 l\l N A U T B 0 Ð 0 T B 0 Ð
I
I
i
I
í
i
I
Bókasafns- og
Upplýsingafræðingur
Við Bæjar- og héraðsbókasafn og Héraðskjalasafn
Akraness er laus 1 1/2 staða bókasafns - og
upplýsingafræðings. Störfin felast annars vegar í
umsjón með daglegum rekstri skjalasafnsins s.s
skráningu skjala og afgreiðslu erinda, stefnumótun
og ráðgjöf við stofnanir Akraneskaupstaðar og
öðrum verkefnum í héraðsskjalasafninu og hins
vegar eru verkefni tengd Bæjar- og héraðsbóka-
safninu, s.s skráningu, upplýsingagjöf og umsjón
með notenda tölvum.
Önnur menntun sem nýtist á sviði safnafræða t.d
sagnfræði eða bókasafnsfræði kemur til greina.
Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf.
Laun samkv. kjarasamningi Akraneskaupstaðar og
STAK.
Upplýsingar gefur Halldóra Jónsdóttir
bæjarbókavörður í síma 431 1664.
Umsóknarfrestur er til 20. desember nk.
Menningar- og skólafulltrúi Akraness
HEILSUGÆSLAN í REYKJAVÍK
STJÓRNSÝSLA
Laus staða læknis
við Heilsugæslustöðina Efstaleiti
Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis við
Heilsugæslustöðina Efstaleiti. Staðan veitist frá 1.
mars nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf, sendist til
starfsmannasviðs Heilsugæslunnar í Reykjavík,
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
Æskilegt er að umsækjendur hafi
sérfræðimenntun í heimilislækningum og hafi einnig
reynslu af því að kenna heimilislækningar, en gert
er ráð fyrir því að kennsla fari fram á stöðinni.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir, Gunnar Helgi
Guðmundsson í síma 585 1800.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar nk.
Reykjavík, 9. desember 1999.
Heilsugæslan í Reykjavík,
starfsmannasvið,
Barónsstíg 47,101 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
Úttekt á grunnskóla
Menntamálaráðuneytið hyggst í tilraunaskyni gera
úttekt á grunnskóla skólaárið 1999-2000, sbr. lög um
grunnskóla nr. 66/1995 og reglugerð nr. 384/1996.
Hér með er auglýst eftir sveitarfélagi sem hefur áhuga
á að grunnskóli innan þess taki þátt í verkefninu. í
úttektinni felst að utanaðkomandi aðili leggur mat á
m.a. stjórnun, kennslu, aðstöðu, samskipti innan skóla
og við aðila utan skólans, þjónustu við nemendur og
starfsfólk, þróunarstarf og umbætur í skólastarfi. Gert
er ráð fyrir að viðkomandi skóli hafi unnið að sjáfsmati
en tekið skal fram að hér er ekki um að ræða úttekt á
sjálfsmatsaðferðum skóla skv. 49. gr. gildandi laga um
grunnskóla. Kostnaður vegna úttektaraðila greiðist af
menntamálaráðuneytinu.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu frá
sveitarstjórnum, undirritaðar af viðkomandi skólastjóra,
fyrir 20. janúar 2000 á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
menntamálaráðuneytis og er einnig að finna á
heimasíðu ráðuneytisins www.mrn.stjr.is. Nánari
upplýsingar gefur Margrét Harðardóttir deildarstjóri
mats- og eftirlitsdeildar menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið, 17. desember 1999.
www.mrn.stjr.is
Menntamálaráðuneytið
Úttekt á framhaldsskóla
Menntamálaráðuneytið hyggst í tilraunaskyni gera
úttekt á framhaldsskóla á vorönn 2000, sbr. reglugerð
nr. 139/1997. Hér með er auglýst eftir framhaldsskóla
sem hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu. í úttektinni
felst að utanaðkomandi aðili leggur mat á m.a.
stjórnun, kennslu, aðstöðu, samstarf og samskipti
innan skólans og við aðila utan skólans, þjónustu við
nemendur og starfsfólk, þróunarstarf og umbætur í
skólastarfi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi skóli hafi
unnið að sjálfsmati en tekið skal fram að hér er ekki um
að ræða úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla, sbr. 23. gr.
laga um framhaldsskóla nr. 80/1996. Kostnaður vegna
úttektaraðila greiðist af menntamálaráðuneytinu.
Umsóknir, undirritaðar af skólameistara, skulu berast
menntamálaráðuneytinu fyrir 20. janúar 2000 á þar til
gerðum eyðublöðum. Umsóknareyðublöð liggja frammi
í afgreiðslu menntamálaráðuneytis og er einnig að
finna á heimasíðu ráðuneytisins www.mrn.stjr.is.
Nánari upplýsingar veitir María Þ. Gunnlaugsdóttir
deildarsérfræðingur í mats- og eftirlitsdeild
menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið, 17. desember 1999.
www.mrn.stjr.is
fAustur-Hérað
Umhverfissvið
íbúðir fatlaðra,
Egilsstöðum.
Alútboð
Leitað er tilboða í alverktöku á hönnun og
byggingu fjörurra íbúða á einni hæð, ætluðum
fötluðum, að Miðvangi 18, Egilsstöðum, ásamt
hönnun og frágangi lóðar.
Verktaka er gefinn kostur á tveimur möguleikum:
a Að hanna og reisa tveggja til þriggja hæða
fjölbýlishús í samræmi við gildandi
deiliskipulag, þar sem fjórar íbúðir fyrir fatlaða
yrðu allar á jarðhæð, en verktaki byggi íbúðir á
efri hæðum hússins á sinn kostnað. Frágangur
á sameign, lóð og byggingar að utan skal þá
að fullu lokið þegar verkkaupi tekur við sínum
eignarhluta. íbúðir í eignarhluta verktaka skulu
á sama tíma hafa náð a.m.k. byggingarstigi 5
skv. ÍST 51.
b Gert er ráð fyrir 2ja til 3ja hæða húsi á lóðinni
skv. deiliskipulagi, en hægt verður að breyta því
í eina hæð, sé ekki áhugi á að nýta lóðina til
fleiri en fjögurra íbúða. Tilboðið feli í sér að
hanna og reisa fjögurra íbúða fjölbýli (raðhús) á
einni hæð fyrir fatlaða án sameignar og að fá
deiliskipulagi breytt til samræmis.
Útboðið tekur til verksins í heild; allrar hönnunar,
undirbúnings, efnisöflunar og allrar framkvæmdar
verksins. Endanleg útfærsla og fyrirkomulag
byggingarinnar er háð samþykki verkkaupa.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði
sem er, eða hafna öllum.
Verkkaupi greiðir bjóðendum ekki sérstaklega fyrir
tilboðsgerð.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Austur-
Héraðs Lyngási 12, 700 Egilsstöðum frá og með
mánudeginum 20. desember 1999.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Austur-Héraðs, í
lokuðum umbúðum þannig merktum:
íbúðir fatlaðra Miðvangi 18
Tilboð
Tilboð skal hafa borist skrifstofu Austur-Héraðs,
Lyngási 12, 700 Egilsstöðum fyrir kl. 14:00
miðvikudaginn 26. janúar 2000, og verða þau þá
opnuð þar og lesin upp í viðurvist þeirra bjóðenda
er viðstaddir kunna að verða.
Egilsstöðum 15. desember 1999
Þórhallur Pálsson
forstöðumaður umhverfissviðs
4f
Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis.
Salc ofnfjár í Sparisjóðc Hornafjarðar og nágrennis.
Á fund; ar Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrennis, sem haldinn var 6. október sl., var samþykkt, með
heimild rundar, að bjóða til sölu stofnfé í sjóðnum að upphæð kr. 4.992.174 eða 418 hluti hvern að
upphæ 43. Bréfin eru föl einstaklingum og fyrirtækjum um land allt. Engin takmörk eru fyrir því hve
mörg br ;r aðili má kaupa, atkvæðisréttur eins aðila verður þó aldrei meiri en 5% af
heildara lamagni í sparisjóðnum.
Kaup á járbréfum í sparisjóðnum veita rétt á skattaafslætti eins og á við um kaup á hlutafé.
Upplýsin;, ; eru veittar í Sparisjóði Hornarfjarðar og nágrennis, sími 478 2020, og þar er einnig tekið við
kaupbesiðnum. ..........
L- ----- — —--------L---- ------SparisjóðurHornafjanðar ognágrennis
Undur oq stDrmerkÍ...
ai
www visiris
FYRSTUR MEÐ FRÉTTiRNAÍi