Dagur - 26.02.2000, Page 5

Dagur - 26.02.2000, Page 5
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 - 21 „Nú er það alkunna að vel samin og hugs- uð leikritþurfa ekki að verða áhrifarík á sviðinu. En hér hefur sro vel tekist til að leikstjóri og leikendur hafa náð, með fullri trúmennsku við verkið, að búa til einkar fallega og heilsteypta sýningu, “ segir Gunnar Stefánsson um Hægan Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur. Leiklistin í lífinu HÆGAN, EL- EKTRA eftir Hrafnhildi Hagalín Guð- mundsdóttur. Leikstjóri: Við- ar Eggertsson. Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson. Tónlist: Valgeir Sigurðsson. Lýsing: Björn B. Guðmunds- son. Frumsýnt á Litla sviðinu 24. febrúar. Þetta nýja verk Hrafnhildar Hagalín sætir verulegum tíðind- um. Um langt skeið hefur ís- lenskur höfundur ekki sent frá sér leikrit sem jafnast á við þetta. Og það er vissulega sér- stætt meðal Ieikverka okkar í seinni tíð. Fyrsta leikrit Hrafn- hildar, Eg er meistarinn, þótti glæsileg byrjun höfundarferils, sjálfur sá ég ekki þá sýningu, en augljóst virðist að hér hefur höfundur tekið nýja stefnu. Enda mörg ár liðin og nýja leik- ritið ávöxtur langrar umhugs- unar, menntunar og vinnu. Sjaldgæft er að ungur höfundur leggi á sig sh'kan aga, en hér hefur það borið góðan ávöxt. Leikurinn fjallar um mæðgur, spunaleikkonur, og samspil þeirra, í ýmsum skilningi. Leik- ritið fer fram á nokkrum plön- um og það veitir því dýpt. A ysta borði er þetta mynd leikhúss, þar sem brugðið er ljósi á leik- listina sjálfa. Það er gert annars vegar með sýningu á sviði, hins vegar með leikatriði á tjaldinu sem í senn er kvikmynd og sviðsleikur, - raunar skýrist það ekki fyrr en f lokin. En þetta at- riði á tjaldinu kallast á við leik- inn á sviðinu, samspil mæðgn- anna og hin sálrænu átök þeirra. Að lokum stöndum við frammi fyrir hinni eilífu spurn- ingu: Hvað er leikur og hvað líf, veruleiki? Atti það sem við sáum sér stað annars staðar en í „þykjustunni" eins og börnin segja? Hvar eru mörk lífs og list- ar? Við þvf er ekkert svar, það er hinn innri veruleiki sem öllu skiptir. Um verkið má segja að þar er ekki allt sem sýnist, - og það er einmitt sú tilfinning sem leikhúsið á að vekja. Hrafn- hildur Hagalín hefur sem höf- undur vald og kunnáttu til þess í senn að leika við áhorfandann og leika á hann. Nafnið vísar á goðsögnina um Elektru, Orestes og móðurmorð- ið sem grísku harmleikjaskáldin ortu um . Ekki þannig að áhorf- andinn þurfi stöðugt að hafa þá sögn í huga, en úr henni er unn- ið á sjálfstæðan hátt, hún gefur leiknum dýpt án þess að þrúga hann á nokkurn hátt. En hér er fólginn leyndardómur kynferðis- ins sem spilað er á í verkinu. Hver er Orestes, og hvers vegna leikur dóttirin karlmann í sýn- ingunni á tjaldinu? Þessi og aðr- ar skírskotanir Ieiksins þjóna heildarmyndinni sem smám saman raðast upp fyrir sjónum áhorfandans. Nú er það al- kunna að vel samin og hugsuð leikrit þurfa ekki að verða áhrifarík á sviðinu. En hér hefur svo vel tekist til að leikstjóri og Ieikendur hafa náð, með fullri trúmennsku við verkið, að búa til einkar fallega og heilsteypta sýningu. Viðar Eggertsson hefur valið einfaldan, nokkuð hæg- gengan stíl sem á stundum reyn- ir nokkuð á þol áhorfanda sem vanist hefur hröðum gangi myndmiðlanna. Þegar upp er staðið sést þó að einmitt þessi stíll hæfir verkinu best. Leikur- inn er stað- og tímalaus og í samræmi við það er leikmyndin alveg nakin, flekar á veggjum, aðeins tveir stólar á sviðinu, hóf- samleg og dul tónlist og mark- viss lýsing sjá um að skapa þá stemningu sem leikurinn fer fram í. Öllu skiptir að leikkon- urnar tvær séu samvaldar í hlut- verk sín. Fyrirfram mætti ætla að aldursmunur þeirra Eddu Heiðrúnar Backman og Stein- unnar Olínu Þorsteinsdóttur sé minni en svo að þær reynist heppilegar í hlutverkum mæðgna. En það kemur ekki að sök. Enda leggur móðirin allt kapp á unglegt útlit, en dóttirin hugsar um annað, eins og hún segir. Meginatriðið er að þeim tekst í sameiningu að bregða upp blæbrigða- og andstæðuríkri mynd mæðgnanna sem í sífellu Iaðast hvor að annarri og hrinda hvor annarri frá sér. Móðirin, eldri leikkonan, er úthverf persóna, eins og stereó- mynd sjálfselskrar konu sem lifir í draumaheimi og vísar frá sér byrðum Iífsins. Raddbeiting, lík- amstjáning og öll túlkun Eddu Heiðrúnar á þessari konu var af- bragðsgóð. Hún hefur kúgað dótturina, ekki síst með því að höfða til meðaumkunar hennar. Dóttirin, unga leikkonan, í senn hinn sterki og kúgaði aðili í sambandinu, er allt annars kon- ar. Hún birtist í dökkum lit og tónum sem Steinunn Olína skil- aði með einkar sannfærandi hætti, ekki síður í þögulum Ieik. Hún málaði þessa konu upp fyr- ir augum okkar svo vel að hún hefur tæpast áður betur gert. Hér verður líka að hafa í huga leikatriðið á tjaldinu, eins og tekið út úr gamalli amerískri bíómynd. Þar leikur móðirin unga stúlku, sem kallast á við æskuþrá hennar, og dóttirin hinn dularfulla karlmann sem einnig skiptir miklu í sviðsleikn- um. - Atli Rafn Sigurðarson er öruggur í þögulu hlutverki sviðs- stjórans sem ætíð er nálægur, minnir stöðugt á návist leiksins í leiknum - og návist karlmanns- ins í lífi kvennanna. Sýningin er án hlés og á það út af fyrir sig mikinn þátt í áhrifum hennar, þess samfellda spuna sem hún er. I Hægan, Elektra er farið inn á nýjar brautir í íslenskri leikritun. Þegar af þeirri ástæðu er verk Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur fagnaðarefni. Meiru skiptir að sýningin ber vott um vönduð vinnubrögð allra sem að henni standa. Metnaður sá, áræðni og alúð sem felst í þessu verki hrósar sigri. Þeir sem í alvöru vilja fylgjast með Ieikrænu sköpunar- starfi láta þessa sýningu ekki fara fram hjá sér. LEIKLIST áB^LEIKFÉLAG fcsiÉL ©^reykjavíkurj© BORGARLEIKHÚSiÐ ATHUGIÐ BREYTTAN SÝNINGARTÍMA UM HELGAR Stóra svið: Kysstu mig Kata Söngleikur eftir Cole Porter Frumsýndur í mars Djöflarnir -eftir Fjodor Dostojevskí, leikgerð í 2 þáttum. lau 26/02 kl. 19:00, nokkur sæti laus, lau 26/02 formáli að leiksýningu kl. 18:00, sun 05/03 kl. 19:00 Litla hryllingsbúðin -eftir Howard Ashman tónlist eftir Alan Menken Fös 03/03 kl. 19:00, nokkur sæti laus, Fös 10/03 kl. 19:00, Lau 18/03 kl. 14:00, Lau 18/03 kl. 14:00. Allra síðustu sýningar. Sex í sveit eftir Marc Camoletti Aukasýning vegna mikillar aðsóknar Lau 04/03 kl. 19:00 nokkur sæti laus, Sun 12/3 kl. 19:00 Ath! Síðustu sýningar. Afi flytur sig á stóra sviðið Afaspil -Höf. og leikstj.: Örn Árnason Sun 27/02 kl. 14:00, uppselt, Sun 27/02 kl. 17:00, uppselt, Lau 04/03 kl. 14:00, nokkur sæti laus, Sun 05/03 kl. 14:00, örfá sæti laus, Sun 12/03 kl. 14:00, uppselt, Fegurðadrottningin frá Línakri -eftir Martin McDonagh Fim 02/03 kl. 20:00, Fös 10/03 kl. 19:00 Leitin að vísbendingu um vitsmunalíf í alheiminum -eftir Jane Wagner Lau 26/02 kl. 19:00, nokkur sæti laus, Fös 03/03 kl. 19:00, nokkur sæti laus. ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN Diaghiev: Goðsagnirnar eftir Jochen Ulrich Tónlist eftir Bryars, Górecki, Vine, Kancheli. Lifandi tónlist: Gusgus. Sun. 27/2 kl. 19.00 rauð kort, fim 02/03 kl. 20:00 blá kort, fim 09/03 kl. 20:00 gul kort. Takmarkaður sýningarfjöldi. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12-18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga Símapantanir virka daga frá kl. 10 Greiðslukortaþjónusta Sími 568 8000 Fax 568 0383 Leikhúsið 10 fingur og Leikfélag Akureyrar frumsýna leikbrúðusýninguna „Gosi“ eftir Helgu Arnalds laugard. 4. mars kl. 14.00 Leikstjóri Þórhallur Sigurðsson. Ljósahönnun Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein. Leikendur: Helga Arnalds, Herdís Jónsdóttir og Þórarinn Blöndal Jólakorta- samkeppnin! Þeir sem voru svo vinsamlegir að senda inn kort í samkeppnina geta nálgast þau í leikhúsinu á miðasölutíma. GJAFAKORT - GJAFAKORT Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! Hul.ili jui«nllvln,*.:iiiÍÍTn il lEdúEnrirof__________ ILE1KFELA6 AKUREYRARl Sa msta rf sver kef n i Leikfélags Akureyrar og leikhópsins Norðanljós Skækjan Rósa -eftir José Luis Martín Descalzo Þýðandi Örnólfur Árnason Ljósahönnun: Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein Leikmynd og búningar: Edward Fuglo Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir Leikari: Saga Jónsdóttir (...Skækjur verða á undan yður inni guðsríki. Matt. 21 - 31) Sýningar laugardagur 26. febrúar kl. 20:00 laugardagur 4. mars. AÐEINS 10 SÝNINGAR Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.