Dagur - 26.02.2000, Síða 9
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000- 25
^LÍFIÐ í LANDINU
hafa næg verkefni á sinni
könnu. Mér er hins vegar orðið
ljóst að mjög erfitt er að vera jafn
vel að sér í öllum málaflokkum
heldur er ákveðinnar sérhæfingar
þörf. Þó mér hafi þótt ég nokkuð
vel að mér í ýmsum málefnum þá
er mér orðið ljóst að það tekur
nokkurn tíma að setja sig inn í
mál af ýmsum toga.
Ég hef starfað sem Iögmaður
og er vön því að starfa sjálfstætt
en jafnframt í samstarfi. I lög-
mennsku þarf maður að vera
mjög vel að sér í þeim málum
sem maður vinnur með og axla
fulla ábyrgð á bæði skrifum sín-
um og orðum. Með þennan bak-
grunn geri ég þá kröfu til sjálfrar
mín að fjalla ekki um mál nema
kunnátta og innsýn búi á bak
við.“
Virkjun er vítamínsprauta
- Við fmrfum að víkja að við-
kvæmu ntáli sem er Eyjabakka-
málið. Hvort stendur þú þar mer
Ólafi Emi flokksbróður þínum
eðaforystu Framsóknarflokksins?
„Ég hef eytt mörgum fríum á
fjöllum, bæði gangandi og ríðandi
en uni mér best úti í ósnortinni
náttúru þessa lands, ég er um-
hverfissinni og umhverfisvinur og
fylgi forystu Framsóknarflokksins
í þessu máli. Pólitík er fyrst og
fremst hagsmunamat, að for-
gangsraða hagsmunum og búa í
haginn. I þessu máli tel ég þjóð-
hagslega hagsmuni okkar eiga að
vega þyngst, auk félagslegra og
byggða- og atvinnuhagsmuna
fólksins á Austurlandi. Við getum
ekki rætt um byggðaröskun og at-
vinnumöguleika á Austurlandi
sem afmarkað vandamál fólksins
sem þar býr eða sem sérstakt
vandamál landsbyggðarinnar. Það
er þjóðarbúinu mjög óhagkvæmt
að fólk þar, sem annars staðar,
flytji úr sinni heimabyggð og skilji
þar eftir verðmæti, hvort sem er í
einkaeign eða eigu hins opinbera
og byggi upp á Reykjavíkursvæð-
inu með tilheyrandi kosnaði og
þensluáhrifum i þjóðfélaginu.
Menn hafa spurt hvort ekki
finnist aðrar lausnir en virkjun og
stóriðja, án þess að benda á eitt-
hvað annað sem dugar, en ég tel
að þetta sé sú vítamínsprauta sem
þessi landshluti þarf á að halda
til að snúa þróuninni við. Ég hef
skerpst í þessari afstöðu minni
eftir að hafa tekið þátt í fundum á
vegum flokksins úti á landi og ég
verð ekki vör við mikla andstöðu í
þessu máli hér á Reykjavíkur-
svæðinu. Ég tel að það séu mörg
önnur mál sem Reykvíkinga
skiptir mun meira máli og láti sig
varða.“
- Finnst þér kannski að um-
hverfissinnar hafi farið offari í
málflutningi sínum?
,Já, mér finnst að nokkrir
menn sem hafa gefið sig úr fyrir
að vera öðrum fremur vinir um-
hverfisins hafi farið offari í þessu
máli og að undirskriftir sem safn-
að var til stuðnings lögformlegu
umhverfismati hafi verið nýttar á
annan veg en þeir ætluðu sem
skrifuðu undir."
- Þií ert í stjóm samtakanna
Heimili og skóli, ertu sátt við
skólamálin í Reykjavík?
„Það er búið að setja nýjar aðal-
námskrár fyrir leikskóla, grunn-
skóla og framhaldsskóla og það
liggur mikil vinna þar að baki. Að-
alnámskráin var kynnt undir for-
merkjunum: „Enn betri skóli". Ég
tel að við búum í aðalatriðum við
góðan skóla en það er afar margt
sem við gætum gert betur. Það er
alltof stór hluti nemenda sem lýk-
ur tíunda bekk sem er ekki með
fullnægjandi einkunnir í einu fagi
eða fleirum og eru vegna þess
hvorki nógu vel undir áframhald-
andi nám eða starf búnir. Brott-
fær jafnréttisbaráttan mjög
breytta mynd. Ef karlar og konur
geta unnið saman að málefrium
barna og Ijölskyldna þá er það
trú mín að það leiði til jafnréttis í
atvinnulífi, jafnt og á öðrum svið-
um þar sem konur standa höllum
fæti.“
Ekki hugleitt
varaformennsku
- Nú heyrist stundum sagt að
Framsóknarflokkurinn sé að
gjalda þess að vera í stjóm með
Sjálfstæðisflokknum. Ertu sam-
mála þvt?
„Já, ég held að Framsóknar-
flokkurinn gjaldi þess frekari en
hitt. Svo virtist f síðustu kosning-
um að menn vildu óbreytt stjórn-
arsamstarf áfram en greiddu síð-
an af einhverjum ástæðum Sjálf-
stæðisflokknum atkvæði sitt
fremur en Framsóknarflokknum.
Framsóknarflokkurinn fer með
nokkur erfið ráðuneyti sem mild-
ar kröfur eru gerðar til og skiptar
skoðanir um forgangsröðun.
Sennilega geldur hann þess. Svo
má spyija hvort Framsóknarflokk-
urinn geti ekki gert mun betur í
sínum kynningarmálum. Kemur
hann nógu vel á framfæri stefnu
sinni, áherslum og sérstöðu sinni
meðal annars gagnvart Sjálfstæð-
isflokknum?"
- Nú hafa ýrnsir haft á orði að
Framsóknarflokkurinn sé nánast
að hverfa í Reykjavík og sagt hejur
verið að flokksstarfið sé í hálfgerð-
um molum. Hvað er til ráða?
„Allir flokkar eiga við einhver
vandamál að etja, ekki síst Sam-
fylkingin. Fylgi Framsóknar-
flokksins minnkaði í síðustu
kosningum frá kosningunum
1995, en það er einlæg skoðun
mín að flokkurinn, hugmynda-
fræði hans og steíha og sá árang-
ur sem hann hefur náð, bjóði
ekki upp á annað en sóknarfæri,
sem ég vona að menn starfi sam-
an að við að nýta.“
- Ertu ánægð með Davt'ð Odds-
son sem forsætisráðherra?
„Kannanir sýna að Davíð er
vinsæll í sínu starfi. Það kemur
mér í sjálfu sér alltaf jafnmikið á
óvart, því kannanir hafa líka
sýnt að stór hluti kjósenda er
mjög ósammála forystu Sjálf-
stæðisflokksins í ákveðnum stór-
málum, eins og kvótamálum og
ýmsum velferðarmálum. Ég veit
ekki í hverju vinsældir Davíðs
liggja. Ég get ekki sagt að ég sé
óánægð með Davíð Oddsson
sem forsætisráðherra, en ég get
líka séð fyrir mér aðra menn í
því starfi.“
- Nú hef ég heyrt að þú njótir
velvildar flokksforystunnar, gæt-
irðu hugsað þér að gefa kost á
þér til varaformanns á næsta
flokksþingi Framsóknarflokksins?
„Það væri merki um lítinn
metnað að svara þessari spurn-
ingu harðneitandi, en sannast
sagna þá hef ég ekki einu sinni
hugleitt að gefa kost á mér til
varaformanns."
- En dreymir þig um að verða
ráðherra?
„Nei, mig hefur ekki dreymt
þann draum ennþá, án þess að
ég gefi það frá mér að hann birt-
ist mér einhvern tíma.“
- En þú myndir ekki hafna því
embætti efþað biðist?
„Að sjálfsögðu ekki.“
Þtí ert í stjórnarflokki en ert
ekki ráðherra. Heldurðu að þú
getir hafi einhver áhrif sem
óbreyttur þingmaður?
„Já, ég hef trú á því að svo sé.
Flesta þingmenn dreymir eflaust
um ráðherraembætti til að geta
haft auldn áhrif, enda fer fólk út
í pólitík til að hafa áhrif á fram-
gang góðra mála og taka virkan
þátt í að móta samfélag sitt.“
„Efkarlar og konur geta unnið saman að málefnum barna og fjölskyldna þá erþað trú mín að það leiði til jafnréttis í
atvinnulífi, jafnt og á öðrum sviðum þar sem konur standa höllum fæti."
fall úr framhaldsskólanámi er líka
alltof mikið, nær 50%. Það eru
líka alltof mörg börn og unglingar
sem koma frá grunnnámi með
brotna sjálfsmynd og lítið sjálfs-
traust. Hluti þessara barna nær
ekki að fóta sig í lífinu og leiðist
út í fíkniefnaneyslu. Þórarinn,
kenndur við SAA, hefur sagt að
hægt sé að þurrka þessa krakka
upp en eftir standi hjá mörgum
stór undirliggjandi vandamál af
ýmsum félags- eða tilfínningaleg-
um toga, vegna misþroska, of-
virkni og lesblindu eða annarra
ástæðna, sem hafa gert að verk-
um að þau hafa ekki rekist í skóla
á farsælan hátt og farnast illa fé-
lagslega. Það þarf auk annars að
gera átak í því að styrkja stoðkerfi
skólans, sem samspil félagsþjón-
ustu, heilbrigðiskerfis og skóla-
þjónustu, til að koma í veg fyrir
að svona fari.
I skólakerfinu er nauðsynlegt
að leita að styrkleika hjá nemend-
um. Ég held því fram að það eigi
allir styrkleika einhvers staðar,
það þurfi bara að vinna að því að
koma auga á það hjá hverjum og
einum. Við eigum langt í land
með að gera eins vel og við best
getum.“
- Þú ertformaður Félags kvenna
í atvinnurekstri. Hafa konur á
liðnum árum átt etfiðan aðgang
að slíkum rekstri ?
„Kannanir hafa sýnt að karlar
og konur hafa ólíka aðkomu að
fyrirtækjarekstri og nokkuð aðra
afstöðu til hans en karlar. Kann-
anir sýna að karlar setja hagnað-
arvonina efst, konur virðist skipta
meira máli að vera sinn eigin
herra, skapa sér atvinnu og laun
„Mér finnst að nokkrir
menn sem hafa gefið
sig úr fyrir að vera öðr-
um fremur vinir um-
hverfisins hafi farið
offari í þessu máli og
aðundirskriftir sem
safnað var til stuðnings
lögformlegu umhverfis-
mati hafi verið nýttar á
annan veg en þeir
ætluðu sem skrifuðu
undir“
og geta sveigt vinnutíma sinn að
þörfum fjölskyldunnar. En það
verður ávallt að hafa hugfast að
stærstur hluti kvenna í atvinnu-
reksri, eins og konur sem eru
launþegar, eru með Ijölskyldu og
það virðist sem sú ábyrgð valdi
mestu um þann mun sem er á
viðhorfum karla og kvenna til
fyrirtækjarekstrar. Það er fjöl-
skylduábyrgðin sem á stærstan
þátt í því að setja konum stólinn
fyrir dyrnar og veldur því að hluta
til að þær taka síður áhættu en
karlar, eru til dæmis tregari til að
veðsetja fasteign og aðrar eigur
vegna öryggis Ijölskyldunnar.
Það er einfaldlega svo að konur
taka meiri ábyrgð á fjölskyldunni
en karlar. Kannski er stærsti lyk-
illinn að jafnrétti kynjanna sá að
lengja fæðingarorlofið og tengja
feður meira börnum og fjöl-
skyldulífinu þannig að þeir axli
ábyrgðina til jafns við konur. I
mörg ár hefur verið rætt um það
hvemig tryggja eigi á sem bestan
hátt jafnan rétt karla og kvenna.
Til skamms tíma mátti ekki
blanda fjölskyldunni og börnun-
um í þá umræðu því þá var því
alltof oft tekið þannig að talað
væri gegn jafnrétti kvenna. Að
hluta til held ég að hagsmunir
fjölskyldunnar og bamanna hafi
verið bomir fyrir borð, þó vilji í
sjálfu sér hafi ekki staðið til þess.
En ef við förum að tala um rétt
karla til bama og fjölskyldulífs,
ekki bara um skyldur þeirra, þá