Dagur - 08.04.2000, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
Sólveig Birna listförð-
unarfræðingur bauð
upp á kennslu í förð-
un á þemadögunum.
Hér má sjá hana
mála Grétu Ýr, sjáif-
boðaliða úr hópi
nemenda.
Heitasti staðurinn i skól-
anum er örugglega eld-
smiðjan. Hér má sjá
áhugasaman nemanda,
Jón Trausta, skara í kolin.
Skildir og rafbfll
I sumar eru þúsund ár liðin frá því að Leifur heppni sigldi til Vínlands. Afþví tilefni mun íslenskt víkingaskip sigla yfir Atlants-
hafið til Grænlands og sra tii Ameríku. Með i för verða sextíu og fjórir skildir sem hannaðir voru i Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Hér má sjá íslenskan nútímavíking handleika einn afskjöldunum er þeir voru í vinnslu á smíðaverkstæði skólans á meðan á
þemadögum stóð. myndir: úeh.
Fortíð og nútíð mætast í
Hafnarfirði þar sem
nemendur og kennarar
iðnskólans smíða allt
frá skjöldum fýrir nú-
tíma víkingana, sem
halda í sumar í kjölfar
Leifs heppna til Amer-
íku, til bifreiðar sem
gengur fyrir rafmagni.
Undanfarna viku hafa staðið yfir
þcmadagar í Iðnskólanum f
Hafnarfirði. Þar var fj'ölbreytnin
höfð í fyrirrúmi. Nemendur og
kennarar skemmtu sér vel við
ýmis verkefni, allt frá rafbíla-
smíð til listaförðunar. Gala-
greiðslur, grafíklist, tölvuvinnsla
og rennismíð var meðal þess
sem í boði var, enda enduspegl-
aðist í þemadögunum fjölbreytt
námsframboð Iðnskólans í
Hafnarfirði, eins og almcnn-
ingur getur kynnst á opnu húsi
skólans í dag kl. 13-17.
Skildir og skreyti
Eins og verið hefur í fréttum
mun íslenska víkingaskipið ís-
Iendingur sigla til Bandaríkj-
anna í sumar f tilefni þess að
þúsund ár eru liðin frá því að
Leifur heppni fann Vínland.
Hin vinsæla hönnunardeild Iðn-
skólans í Hafnarfirði hefur að
undanförnu unnið að hönnun
víkingaskjalda sem munu fara
með í hina fraeknu ferð.
„Þessi skjaldasmíð er liður í
samstarfsverkefni okkar með
öðrum norrænum skólum. Við
erum að gera víkingaskildi fyrir
víkingaskipið Islending," sagði
Astþór Ragnarsson deildarstjóri
hönnunardeildar. „Það kom í
okkar hlut að hanna skreytin á
skildina. Það á að gera sextíu og
fjóra skildi með mismunandi
skreyti. Hver nemandi hannaði
átján skreyti og valdi síðan úr
þrjár tillögur sem verða notað-
ar.“
ísiendingur er eftirlíking af
Gauksstaðaskipinu sem fannst
vel varðveitt í jörðu í Noregi
seint á seinustu öld. Skildirnir
eru byggðir á þeim skjöldum
sem þar voru um borð. Sam-
starfsskóli í Svíþjóð mun smfða
helming skjaldanna en hinn
helmingurinn er settur saman
hjá Iðnskólanum. „Við erum að
nota þemadagana til að efna
niður, setja saman og mála
skildina," sagði Ástþór.
Sigríður Kristín Sæmunds-
dóttir er ein af þeim sem hann-
aði skreytingar á skildina: „Þetta
hefur verið mjög skemmtilegt.
Eg var í morgun að saga út efnið
í skildina. Það verður gaman
þegar íslendingur siglir með þá
til Ameríku. Þá get ég sagt:
Þetta er mitt verk. Eg gerði
þetta.“
Galagreiðslur og förðun
I hársnyrtideildinni var boðið
upp á kennslu í galagreiðslum,
förðun og hárþvotti.
Oskar Björnsson, nemi í hár-
snyrtingu var önnum kafinn við
að greiða og snyrta: „Ég er eini
strákurinn í fjórða bekknum á
hársnyrtibraut Það er gott að
vera með öllum stelpunum.
Þetta er fínt nám, fjölbreytt og
skemmtilegt. Maður umgengst
mikið af fólki þannig að maður
þarf alltaf að vera á Iéttu nótun-
um. Þetta er fjögurra ára nám
svo að ég er að útskrifast núna í
vor. Þessir þemadagar eru flottir.
Við erum í galagreiðslunum
núna. Þetta eru fínar samkvæm-
isgreiðslur sem eru eiginlega
dottnar út. Svona greiðslur eru
nær eingöngu keppnisgreiðslur í
dag.“
Myndlist
Helga Guðrún Helgadóttir
myndlistarkennari hélt nám-
skeið í grafíkaðferð: „Þetta geng-
ur mjög vel. Ég er með áhuga-
sama nemendur sem eru tilbún-
ir til að gera tilraunir. Þetta
byggist á þvf að þau prófa sig
áfram í grafíkaðferðinni. Svo
sjáum við hver útkoman verður."
Hjörtur Skúlason, nemi f
hönnunardeild, sat sveittur við
grafíkina: „Þetta námskeið er
rétt að byrja en það lítur vel út.“
Honum líkar vel við námið í
Iðnskólanum: „Hönnunardeildin
býður upp á alhliða nám í hönn-
un og sköpun hluta úr ólíkum
efnum. Þetta nýtist mér við að
fá þekkingu á hinum fjölbreytta
efnivið sem nota má við list-
sköpun.“
Rær og rennismíöi
„Okkar þema í dag er renni-
smíði," sagði Ómar Ingason er
okkur bar að garði á renniverk-
stæði skólans þar sem Qöldi
nemandi grúfði sig yfir renni-
bekkina. „Þetta hefur verið mjög
gott. Við höfum fengið góða til-
sögn í þessu. Núna erum við að
búa til ró.“
Ómar er ekki ókunnugur
rennismíðinni: „Ég er nemi í
grunndeild málmiðna. Klára á
næstu önn. Þetta nám er mjög
skemmtilegt. Eg mæli með því.“
Rafbfll
Á einu af verskstæðum skólans
voru nemendur að vinna hörðum
höndum við smíði rafmagnsbíls.
„Þetta er meira hvetjandi en að
vinna við hefðbundnari verkefni,"
sagði Jens Karl Ágústsson nemi í
vélvirkjun. „Þetta virkjar meira
áhugann."
Rafmagnsbíllinn sem er hann-
aður og smíðaður frá grunni af
nemendum og kennurum Iðn-
skólans var smám saman að taka
á sig mynd. Hann er á stærð við
go-kart bíl og drifinn áfram af
venjulegum bílarafgeymi.
„Þetta gengur vonum framar,“
sagði Jens. „Smíði stýrisbúnaðar
er lokið. Þá er hönnun drifbúnað-
arins einnig lokið og verið er að
vinna í að koma honum fyrir.“
Fjölbreytt nám
Iðnskólinn í Hafnarfirði, sem
nýlega flutti í nýtt og glæsilegt
hús við Flatahraun, býður upp á
fjölbreytt iðnnám. Meðal náms-
brauta má nefna hönnun, hár-
snyrtingu, útstillingu og tækni-
teiknun auk hefðbundnari iðn-
greina á borð við rafeindavirkj-
un, málmiðnir, pípulagnir, múr-
smfði, vélvirkjun og margt fleira.
Þá býður skólinn upp á ýmis
námskeið fyrir almenning. Um
fjögur hundruð nemendur
stunda nám við skólann, þar af
er helmingurinn Hafnfirðingar.
- ÚEH
Ragnhildur Hauksdóttir, Halla Kristín Árnadóttir og Úskar
Björnsson eru öll nemar á hársnyrtideild. Þau skemmtu sér vel
við að greiða fínar galagreiðslur á þemadögunum.
Myndlist lék stórt hlutverk á þemadögunum. íris Sigurðar-
dóttir, Heiða Norðfjörð og Hjörtur Skúlason [við borðið]
vinna hér með grafíkaðferðum.