Dagur - 13.10.2000, Side 16
16- FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000
Dnptr
numL
WNPlWM
Hugvísmdamenn kynna
rannsóknir sínar
Heimspekileg,
guðfræðileg og
sagnfrædileg efni
verða meðalþess
sem sem rætt verð-
ur á Hugvísinda-
þingi í dag og á
morgun.
Hugvísindaþing verður
haldið á föstudag og
laugardag í þriðja sinn.
Þingið er ætlað háskóla-
mönnum og öilum áhuga-
mönnum um húmanísk
fræði, en Hugvísinda-
stofnun hefur haft veg og
vanda af undirbúningi
þingsins.
Dagskrá þingsins er
Qölbreytt og m.a. íjallað
um efni sem snerta sagn-
fræði, heimspeki, guð-
fræði, málvísindi og þjóð-
fræði.
Þingið hefst kl. 13 í
dag með málstefnu Sagn-
fræðingafélags Islands
undir yfirskriftinni: Póst-
módernismi - hvað nú?
„Þetta er svona mini-mál-
stofa sem er eins konar
upphitun fyrir þingið,"
segir Jón Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Hugvís-
indastofnunar. Geir
Svansson, Sigrún Sigurð-
ardóttir, Ingólfur A. Jó-
hannesson og Kristján
Kristjánsson taka þar til
máls og er meiningin að
þarna fari fram eins kon-
ar uppgjör um póst-
módernismann sem sagn-
fræðingar hafa fjallað
töluvert um á síðustu
misserum.
Klukkan 16 heldur
Sölvi Sogner frá Oslóar-
háskóla síðan fyrirlestur
á norsku um þróun hjú-
skapar og annarra sam-
búðarforma allt frá siða-
skiptum til dagsins í dag.
Fyrirlestur hennar er um
leið minningarfyrirlestur Jóns
Sigurðssonar, sem að sögn
Jóns Ólafssonar er árleg uppá-
koma og var ákveðið að sam-
elna hann þinginu að þessu
sinni vegna þess að tímasetn-
ingin skaraðist.
Að kunna gott að meta
Aðalfyrirlestur þingsins verður
svo í kvöld í hátíðarsal Háskól-
ans, þar sem Sigrún Svavars-
dóttir heimspekingur tekur til
umfjöllunar siðfræðilegar
spurningar. Fyrirlesturinn
nefnist „Að breyta skynsam-
lega, réttlætanlega og vel“ og
þar spyr Sigrún m.a. hver
tengslin séu á milli þessa
þrenns, þ.e. að breyta skyn-
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Hugvísindastofnunar.
samlega, réttlætanlega og vel.
Tekið er mið af kenningum um
skynsemina sem á rót sína að
rekja til Davids Humes. Sam-
kvæmt kenningum Humes þarf
það ekki að brjóta í bága við
skynsemina að fremja hið
versta ódæði, og kenningar af
því tagi vekja óneitanlega upp
margar spurningar um tengsl
skynseminnar og siðferðisins.
Sigrún tók við lektorsstöðu
við Ohio State University í Col-
umbus nú í haust, en hefur
kennt við New York University
og University of Pittsburgh á
árunum 1993-2000.
Á morgun verða svo haldnar
fimm málstofur ásamt sjálf-
stæðum fyrirlestrum þar sem
fjöldi fræðimanna tekur til
máls.
„Að kunna gott að meta:
Hlutlæg verðmæti" er yfirskrift
einnar málstofunnar, og þar
verður fjallað um efni sem teng-
ist fyrirlestri Sigrúnar. Spurt
verður m.a. hvernig skilja beri
hugtakið hlutlægni þegar átt er
við siðferðileg verðmæti eða
gildi og hver séu tengslin milli
hlutlægra verðmæta og skyn-
semishyggju. Þátttakendur
verða heimspekingarnir Sigrún
Svavarsdóttir, Kristján Krist-
jánsson, Sigurður Kristinsson
og Róbert H. Haraldsson, auk
þess sem Atli Harðarson, Magn-
ús Diðrik Baldursson, Salvör
Nordal og Vilhjálmur Árnason
viðra viðbrögð sín. Jón Ólafsson
stýrir umræðunum.
Víða komið við
Á vegum sagnfræðinga verður
málstofa um menningu og sam-
félag kaldastríðsáranna þar
sem þau Valur Ingimundarson,
Jón Ölafsson, Jón Viðar Jóns-
son, Dagný Kristjánsdóttir og
Gestur Guðmundsson verða
frummælendur.
Guðfræðingar efna til mál-
stofu um fórnina, þar sem þau
Gunnlaugur A. Jónsson, Arn-
fríður Guðmundsdóttir, Einar
Sigurbjörnsson, Martin Regal og
Soffía Auður Birgisdóttir ræða
fórnina frá ólíkum sjónarhorn-
um og leita víða fanga.
„Á milli mála“ er yflrskrift
málstofu þar sem fjallað er um
þau takmörk sem tungumál og
menningarhefð setja mönnum
og hvaða leiðir þau opna
þeim. Þar taka til máls
þau Svavar Hrafn Svav-
arsson, Þorleifur Hauks-
son, Aðalheiður Guð-
mundsdóttir, Gauti Krist-
mannsson og Jón Karl
Helgason.
„Einstaklingurinn fyrr
og síðar“ nefnist loks
málstofa, þar sem komið
er inn á víðtækt efni sem
tengist flestum fræði-
greinum hugvísinda á
einn eða annan hátt. Þar
fjalla þau Torfi Tulinius,
Björn Björnsson, Jón Ma.
Ásgeirsson, Ásdís Egils-
dóttir og Kristján Árna-
son um einstaklinginn og
sjálfið frá ýmsum hliðum.
Þingið lifir á Netinu
„Almennt er hugmyndin
með Ilugvísindaþingi að
kynna eins konar þver-
snið af þeim rannsókn-
um sem stundaðar eru í
þeim deildum sem
standa að þinginu," seg-
ir Jón Ólafsson. „Og
þetta á að vera áhuga-
vert fyrir alla áhuga-
menn um þessi efni, en
samt ekki þannig að það
sé verið að einfalda neitt
um of. Þetta verður al-
vöru akademísk umræða
en á þó ekki að vera of
sérhæfð eða of tækni-
leg.“
Jón segir Hugvísinda-
stofnun vera í örum
vexti innan innan heim-
spekideildar. „Hlutverk
hennar er að vera rann-
sóknarvettvangur í
deildinni, sem var ekki
til áður. Hingað er t.d.
komið fólk í rannsóknar-
störfum eftir doktors-
próf, sem þekktist ekki
áður,“ segir Jón.
Jón bendir á að dag-
skrá þingsins sé á Net-
inu og þar fylgja hverj-
um dagskrárlið tenglar í
annað efni á Netinu sem
tengjast viðkomandi efni
á þinginu.
„Það er náttúrlega til
svo mikið efni á vefnum
þetta,“ segir Jón. „Hug-
myndin var sú að búa til dag-
skrá á vefnum sem væri jafn-
framt sjálfstæður vefur þannig
að þá væri eitthvað út úr því
að skoða dagskrána óháð þing-
inu. Bæði til þess að gera þing-
ið meira spennandi en líka fyr-
ir þá sem ekki hafa tök á að
fara á þingið. Og svo er líka
meiningin að Hugvísindaþing
2000 standi áfram sem vefur.
Einhverjir fyrirlestrar verða
þar og einhver umræða von-
andi.“ Hann tekur þó fram að
töluvert fé þurfi til þess að
halda úti vef af þessu tagi og
óvíst hvort það verði fyrir
hendi.
-GB
um