Dagur - 17.10.2000, Side 1
Þridjudagur 17. október 2000
Sparisjóðirair á
leið í hlutafélag
Lagafnunvarp á leið-
iiuii sem gerir spari-
sjóðimum kleift að
sameinast. Hlutafé-
lagsformið heppileg-
ast fyrir sparisjóðiua
segir Guðmuudur
Haukssou
Valgerður Sverrisdóttir viðskipta-
ráðherra sagði á fréttamanna-
fundi sl. föstudag að í undirbún-
ingi væri að leggja fram laga-
frumvarp sem gerði sparisjóðun-
um í landinu kleift að sameinast
í hlutafélag og þá jafnvel með
fleiri fjármálastofnunum. Greini-
legur vilji er hjá sumum ráða-
mönnum sparisjóðanna til að
kanna málið og hefur nefnd ver-
ið að störfum í sumar að kanna
með hvaða hætti hægt er að brey-
ta sparisjóðunum í hlutafélag.
Hallgrímur Jónasson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs
Vélstjóra, sagði að það
væri nokkuð flókið mál
að breyta sparisjóðun-
um í hlutafélag. Hann
sagði að nefnd hefði
starfað í allt sumar en
þó væri ekki búið að
setja punktinn fyrir aft-
an það starf.
„Sparisjóðirnir eru svo
misjafnir að stærð og
uppbyggingu. Sumir eru
með urmul af ábyrgðarmönnum
meðan aðrir eru með örfáa.
Sumir sparisjóðanna eru með
stærstan hluta af eigin fé, sem
hefur komið frá rekstri í gegnum
tíðina. Aðrir eru svo með meiri-
hlutann fjármagn frá ábyrgðar-
mönnum. Vegna þess hvað þetta
er allt ólíkt er afar erfitt að koma
þessu heim og saman. En ég er
sannfærður um að menn hafa
áhuga á að skoða þessa hluti,“
segir Hallgrímur.
Hann segist alls ekki vera
smeykur við fyrirhugaða samein-
ingu bankanna. Hann
segir hana skapa spari-
sjóðunum ákveðin sókn-
arfæri.
„Það er fjöldi manns
sem vill heldur skipta
við minni stofnanir, þar
sem öll afgreiðsla er per-
sónulegri og hver og
einn viðskiptavinur
skiptir máli,“ segir Hall-
grímur Jónsson.
Hlutafélagsfonnlð
heppilegast
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON segir að
sparisjóðirnir hafi alla tíð kapp-
kostað að hafa sem best samstarf
sem hafi að sjálfsögðu tekið
breytingum í gegnum tíðina.
Hann bendir á að þeir hafi kom-
ið sér upp neti af dótturfélögum
til þess að vera færir um að bjóða
sem besta þjónustu. Þetta sam-
starfsnet hafi gert sparisjóðun-
um kleift að vera samkeppnis-
hæfir við bankana.
„Við erum enn að þróa þetta
samstarf okkar og sfðan er verið
að skoða möguleikann á því
hvort eitthvert annað rekstrar-
form henti okkur betur. Meðal
annars hlutafélagsformið í stað
þess að nota þetta hefðbundna
form sem sparisjóðirnir byggja
sinn rekstur á. En það er ekki
komin niðurstaða í það mál og
því of snemmt að segja til um
hvaða stefnu málið tekur. Ég tel
að málið hafi ekki fengið nægi-
lega kynningu meðal sparisjóð-
anna til þess að hægt sé að spá
um hver vilji þeirra er. Eg per-
sónulega er mjög hlynntur því að
sparisjóðirnir verði sameinaðir í
hlutafélag," segir Guðmundur.
Hann segist vera sannfærður
um að hlutafélagsformið væri
heppileg leið fyrir sparisjóðina
vegna þess að það myndi gera
þeim kleift að sækja sér meira eig-
ið fé. Hann segist sannfærður um
að það sé ekki til betra form fyrir
sparisjóðina en hlutafélagsformið.
Sjá einnig blaðsiðu 5 -S.ÐÓR
Guðmundur
Hauksson, sparí-
sjóðsstjórí Spron
Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra.
Hrein
fjarstæða
Sú orðrómur hefur gengið um
þjóðfélagið að Halldór Asgríms-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, sé að hætta í pólitík
og muni taka við sem banka-
stjóri hins nýja sameinaða
banka sem stefnt er að um ára-
mót. Meira að segja skýrði DV
frá þessu í slúðurdálkí blaðsins,
Sandkorni, í gær. Halldór var
spurður um þetta mál.
„Þetta hefur aldrei verið
nefnt. Aldrei. Þessi saga er hrein
Ijarstæða. Ég hef oft þurft að
búa við ótrúlega skáldsagna-
hæfileika í fjölmiðlum, sem ég
hafði haldið að væri ekki hlut-
verk þeirra,“ sagði Halldór As-
grímsson.-S.dór
Landsþing
kirkjiumar
Biskup íslands sagði í ávarpi sínu
við setningu kirkjuþings í gær að
kirkjan væri í kreppu um þessar
mundir. Fólk hefði lýst vonbrigð-
um yfir kirkju sem væri íjarri
þeim háleitu markmiðum sem
hún vinnur að. Oft virtist tungu-
tak kirkjunnar, orðfæri og tján-
ingarform fjarlægt samtímanum,
og kirkjan ekki í takt við tíman-
um. En kreppan væri einnig
tækifæri og köllun til dáða, til að
sækja fram sem kirkja með ís-
lenskri þjóð í bæn. I því sldni
væri boðað til Landsþings kirkj-
unnar um Jónsmessuna á sumri
komanda. „Þjóðkirkjan hefur
mikilvægu hlutverki að gegna.
Engin stofnun á lslandi getur
sýnt fram á annað eins samhengi
í þjóðarsögunni og kirkjan. Þjóð-
kirkjan vill standa vörð um það,
um leið og hún mætir trúarþörf
samtímans með næringu hins
heilnæma orðs fagnaðarerindis-
ins,“ sagði biskup Islands.
Karí Sigurbjörnsson biskup ávarpar Kirkjuþingið í gær.
Áætlaður kostnaður vegna
stækkunar verksmiðju Norður-
áls á Grundartanga úr 90 þús-
und tonnum í 240-300 þúsund
tonn er talin verða um 45-50
miljarðar króna. Tómas M. Sig-
urðsson framkvæmdastjóri
tækni- og umhverfissviðs fyrir-
tækisins hendir á að Columbia
Ventures sé m.a. nýbúið að selja
verksmiðjur sem það átti f
Bandaríkjunum, auk þess sem
eigið fé Norðuráls sé mjög hátt.
Af þeim sökum sé innistæða fyr-
ir þessum framkvæmdum og því
tækifæri til að nýta það til upp-
byggingar á svæði félagsins við
Grundartanga. Þá segist hann
ekki vita annað en að stækkunin
eigi að rúmast innan núverandi
aðal- og svæðisskipulags á
Grundartanga. Hins vegar gæti
þurft að breyta deiliskipulagi.
Sjd jréttaskýringu
á blaðstðum 12-13
Sími 530 2800
www.ormsson.is
DEH-P3100-B
• 4x45 magnari • RDS
• Stafrænt útvarp FM MW LW
• 24 stöðva minni • BSM • Laus framhlið
• RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn
• Loudness þrískiptur
Setjum tækið í bílinn
þér að kostnaðarlausu