Dagur - 07.11.2000, Side 21

Dagur - 07.11.2000, Side 21
 flkureyri-Norðurland I’RinjUDAGUR 7. NÓVF.MBER 2 0 00 - 21 Ásdls hélt KA/Þór á floti Ekki var gert ráð fyrir að lið KA/Þórs í Nissandeild kven- na í handknattleik sækti gull í greipar Stjörnunnar í Garðabæ á laugar- dag, og það gekk eftir. Leikurinn byrjaði bins vegar ekld illa, sjá mátti stöðuna 3-3, en síð- an dróg sundur, ekk síst fyrir góðan leik Nínu Kristínar Björnsdóttur í sókn- arleik Stjörnunnar sem skoraði 9 mörk. Asdís Sigurðardóttir bar af í liði KA/Þórs að þessu sinni, tók Nínu Kristínu m.a. úr umferð, og nánast sú eina sem sýndi einhvern baráttuvdlja en margir aðrir leikmenn voru eins og svefngenglar sem fyrirfram voru búnir að tapa leiknum. Það kann svo sannarlega ekki góðri lukku að stýra. Stjarnan komst í 10 marka forystu í fyrri hálfleik, 17-7, en í hálfleik var stað- an 18-10. KA/Þór tók sig saman í and- litinu í hálfleik, Hlynur Jóhannsson þjálfari væntanlega vakið þær flestar af værum blundi, þeim tókst að minnka muninn í 5 mörk, 26-22, en Stjarnan átti góðan sprett í lokin og lokatölur urðu 29-24. Ásdís skoraði 6 mörk fyrir KA/Þór sem og Inga Dís Sigurð- ardóttir sem tók sig á í síðari hálfleik, en það er á stundum eins og hana vanti allt keppnis- skap. Sigurbjörg Hjartardóttir varði 10 skot en stöllur hennar í Stjörnumarkinu vörðu 19 skot. GG Ásdís Sigurðardóttir skor- aði mörg skemmtileg mörk gegn Stjörnunni. Sparisjóður Norðlendinga vann Sveit Sparisjóðs Norðlendinga vann sigur í Norðurlandsmótinu í sveitakeppni í bridge um helgina. Mótið fór fram á Akureyri í Hamri og tókst vel í hvívetna. Sveit spari- sjóðsins vann alla sína leiki og skoraði 106 stig alls eða yfir 21 að meðaltali af 25 mögulegum. I sig- ursveitinni eru Sveinn Pálsson, Jónas Róbertsson, Jón Björnsson, Pétur Guðjónsson, Reynir Helga- son og Björn Þorláksson. Baráttan um 2. sætið var all- hörð en svo fóru leikar að sveit Ragnheiðar Haraldsdóttur hlaut silfrið og endaði með 83 stig. í 3. sæti varð sveit Frímanns Stefáns- sonar með 77 stig. Birkir ívar afgreiddi KA Guðjón Valur Sigurðsson, KA, var bestur KA-manna í leiknum gegn Stjörnunni og raunar sá eini sem lék af eðlilegri getu. KA-liðinu skortir til- fiimanlega hávaxna skyttn með góðan stökkkraft. Ráðaleysi var allsráðandi í fyrri hálfleik í leik KA gegn Stjörn- unni í Nissan-deildinni í hand- knattleik karla í Garðabæ á laug- ardag. Vörn Stjörnunnar var sterk og aftan við hana stóð Birk- ir ívar Guðmundsson og varði nánast allt sem á markið komst gegnum vörnina. Reyndar voru skotin flest hver ekki erfið; en það gerir ekki þátt Birkis Ivars minni. í hálfleik var staðan 13-5 fyrir Stjörnuna en þegár 25 mín- útur voru liðnar af leiknu hafði KA-liðið aðeins gert 3 mörk. Það kom berlega fram í þessum hálf- leik sem haldið hefur verið fram af mörgum að liðið skortir til- finnanlega hávaxna skyttu með góðan stökkkraft. Heimir Örn Arnarson, sem hefur verið ein hel- sta skytta liðsins, átti ein 8 skot á markið en skoraði ekki eitt einasta mark, mörg skota hans varði vörnin, náði boltanum og skor- aði úr hraðaupphlaupi hinum meginn. Óláni KA varð Stjörn- unni allt að vopni. Markvarsla KA-liðsins er ein- nig höfuðverkur. Meðan Birkir Ivar ver 25 skot f leiknum var markmaður KA að verja Ktið, en heldur lagaðist það er á leið. Hörður Ólafsson varði 6 skot en Kári Garðarsson 8, þar af nokkur undir lok leiksins sem snéri noklvuð gangi leiksins, en Kári kom allt of seint í markið því for- skot Stjörnunnar var orðið allt of mikið. Fleiri leikmenn KA voru allt of lengi inn á við það að gera nánast ekkert vitrænt, eins og t.d. leikstjórnandinn Jónatan Magnússon, sem að vísu gerði 2 mörk en í 10 tilraunum. Aðeins tveir leikmenn Iéku af eðlilegri getu, Guðjón Valur Sigurðsson sem gerði 8 mörk og Giedruius Cserniaukas 4, og hefði sá síðar- nefndi að ósekju mátt fá boltann oftar, en það var eins og útispilar- arnir sæju hann ekki eða vísvit- andi væru að svelta hann. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Línumaðurinn Andreas Stelmokas sást ekki í leiknum, enda við harða varnarmenn Stjörnunnar að etja. I seinni hálfleik klóraði KA-lið- ið aðeins í bakkann og minnkaði muninn í 20-15 en nær komust þeir ekki og lokatölur urðu 23- 19. Leikmenn KA vilja eflaust gleyma þessunt leik sem fyrst, sem og stuðningsmennirnir, og koma eflaust grimmir til leiks gegn Gróttu/KR á Seltjarnarnesi á laugardaginn. GG Tindastóll vairn „derbyleiktim66 gegn Þór GrindvLkingar rull uðu Þórsunun upp á föstudag í Griudavík, 95-75. Lið Tindastóls í Epsondeildinni í körfubolta vann öruggan sigur á Þór í „derbyleik" liðanna í íþróttahöllinni á Akureyri á sunnudagskvöld. Tindastóll er með 10 stig eftir 7 umferðir ásamt Grindavík og Haukum, tveimur stigum á Keflvíkingum sem tróna á toppi deildarinnar með 12 stig, hafa aðeins tapað gegn ÍR-ingum. Tindastóll hef- ur tapað tveimur leikjum, gegn Keflavík og Grindavík. Þór er í 8. sæti með 6 stig og hefur eitt- hvað misst flugið eftir annars ágæta byrjun í deildarkeppn- inni. Þórsarár leiddu leikinn gegn Tindastól í hálfleik með 35-30 og virtust til alls Iíklegir gegn Skagfirðingum. Jafnræði var með liðunum í lok þriðja leik- hluta, en þá hljóp allt í baklás hjá Þór. Það hefur verið að ger- ast í fleiri leikjum f vetur hjá Þór að þeir hafa verið með for- ystu fram í fjórða leikhluta, en svo ekki söguna meir. Leikmenn virðast hafa úthald í leikinn, en gera afdrifartk mistök, missa boltann útaf, hiítnin hverfur, og þá sfga andstæðingarnir fram úr. Þetta nýttu Tindastólsmenn sér vel, fóru hamförum gegn lánlausum Þórsurum þar sem Adonis Pomonis var allt í öllu í sóknarleiknum, en hann skor- aði alls 18 stig. Lokatölur urðu 81-65 fyrir Tindastól. Stigafræstur Tindastólsmanna var hins vegar Kristinn Friðriks- son með 24 stig en Shawn Myers var með 17 stig. Óðinn Ásgeirsson var eini Ieikmaður Þórs sem lék af eðlilegri getu allan leikinn. Hann var einnig stigahæstur með 21 stig, Clifton Bush gerði 16 og Magn- ús Helgason 12 stig. Þór Ieik frestan leik gegn Grindavík á föstudagskvöldið í Grindavík. Það var engin frægðarför því Grindavík vann sanngjarnan sigur, 95-75, þar sem Þórsarar sáu aldrei til sólar. Stigahæstur Þórsara var Clifton Bush með 24 stig en í liði Grindavíkur Kim Lewis með 25 stig. Tindastóll leikur í undanúr- slitum Kjörísbikarkeppninnar (deildarbikarkeppninnar) á laugardaginn í Kópavogi gegn KR. Vinnist sá leikur leika þeir til úrslita á sunnudag gegn Grindavík eða Njarðvík. Tinda- stóll vann keppnina í fyrra. Næstu deildarleikir eru 14. nóv- ernber en þá leikur Tindastóll gegn Skallagrími á Sauðárkróki en Þór leikur gegn IR í Breið- holtinu. GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.