Dagur - 20.01.2001, Síða 5
Bandaríski vísinda-
sagnfræðingurinn Mike
Fortun er að skrifa bók
þar sem hann ber sam-
an það sem er að ger-
ast í viðskiptum með
erfðavísindi á íslandi
og í Bandaríkjunum.
Bandaríski vísindasagnfræðing-
urinn Mike Fortun er einn
þeirra fjölmörgu sem fjárfest
hafa í Islenskri erfðagreiningu.
Hann hefur þó ekki keypt
hlutabréf í fyrirtækinu, heldur
varið ómældum tíma í rann-
sóknir á hinni stuttu en merki-
legu sögu þess og samanburð
við bandarísk fyrirtæki á sama
starfsvettvangi.
Nú í vikunni var hann stadd-
ur hér á landi í tilefni þess að
mikið magn hlutabréfa í
deCODE kom á markað þann
15. janúar síðastliðinn eftir að
iæsingartímabili lauk, en það
hófst samkvæmt bandarískum
lögum um leið og fyrirtækið var
skráð á hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum. Vegna áhuga
síns á fyrirtækinu og í Ijósi allr-
ar þeirrar vinnu sem hann hef-
ur lagt í að skoða starfsemi
þess, fannst honum ekki annað
hægt en að vera staddur hér á
landi þegar þessi áfangi í sögu
þess ætti sér stað.
Hann vildi þó engu spá um
það hvaða áhrif þessi nýju
hlutabréf á markaðnum myndu
hafa á fjárhag og horfur Is-
lenskrar erfðagreiningar. Þar
gæti allt gerst. Þó sagði hann
algengt á bandarískum markaði
að verð hlutabréfa lækkaði
nokkuð snöggt eftir að læsing-
artímabilinu lýkur, og sum fyr-
irtæki ættu erfitt með að stand-
ast þá eldraun. Sum næðu sér
aldrei á strik á ný.
Farið að sngast
æ meir um ísland
Fortun dvaldi aðeins í fáa daga
hér á landi að þessu sinni, en
flutti meðal annars ræðu á
málþingi sem samtökin Mann-
vernd efndu til í Norræna hús-
inu á mánudagskvöldið. Þar
skýrði hann frá meginatriðum
nýrra reglna sem settar hafa
verið í Bandaríkjunum um
meðferð heilsufarsupplýsinga.
Þessar reglur urðu tilefni til
harðra orðaskipta milli Jónasar
Kristjánssonar ritstjóra DV og
Páls Magnússonar kynningar-
fulltrúa Islenskrar erfðagrein-
ingar, eða „blaðurfulltrúans"
eins ogjónas uppnefndi hann í
strákskap sínum.
- Þú hefur fylgst vel með ís-
lenskri erfðagreiningu og varið
miklum tíma í rannsóknir á
sögu þess. i
„Já, og nú á þessu ári er ég f
rannsóknarleyfi til þess að
skrifa um genamengisfræði al-
mcnnt, bæði í Bandaríkjunum
og á Islandi, og nota þá Island
til samanburðar við það sem er
að gerast í Bandaríkjunum. Og
Mike Fortun á íslandi: „Ég hef oft veriö spurður að því á ýmsum ráðstefnum hvort deCODE sé aðeins blekkingarvefur eða
hvort það sé ósvikið."
þetta er farið að snúast æ meir
um Island hjá mér. Þannig að
þessa dagana er ég í fullu starfi
við að lesa og skrifa um Is-
land," segir Mike Fortun í við-
tali við blaðamann Dags.
Fögur fyrirheit
- Og hvað á þá að koma út úr
þessu? Bók?
„Já, ég er að skrifa bók sem á
að heita Promising Genomics,"
segir hann. „Eg veit ekki hvern-
ig ætti að þýða það á íslensku,
því hætt er við að tvíræðni
merkingarinnar fari forgörðum.
En það er einmitt þessi tvö-
falda merking sem ég er að
reyna að fást við. I aðra rönd-
ina er erfðamengisfræðin sam-
bland af nýrri tækniþekkingu,
nýjum vísindum og nýrri þróun
sem mikils má vænta af, og ég
• vil ekki missa sjónar á því. En á
hinn bóginn þegar fólk fer að
gefa fögur fyrirheit sem svo eru
seld við háu verði en reynast
svo verðlaus með öllu, þá er
það ekki gott. Spurningin er
hvernig hægt sé að sameina
þetta tvennt, Ioforðin annars
vegar og áreiðanleika hins veg-
ar.
Oll starfsemi í erfðamengis-
fræðum, allt frá vísindaþættin-
um til efnahags- og viðskipta-
hliðarinnar á þeim, byggist að
miklu leyti á loforðum, því
þetta er ekki orðið að raun-
veruleika ennþá. Vandinn er
því fólginn í því hvernig bæði
vísindamenn og fjárfestar
hugsa um framtíðina. Hvernig
unnt er að fjárfesta skynsam-
lega þegar maður veit ekki
hvað kemur út úr þessu."
Smæðin eykur áhættuna
- Sérðu mun á því hvernig að
þessu er staðið í Bandaríkjun-
um og á Islandi. Eru loforðin
stærri hér?
„Nei, við erum með fullt af
fólki sem er að gefa ótrúlega
stór Ioforð úti í Bandaríkjun-
um. Það er ekkert einsdæmi. I
Bandaríkjunum er líka mikið af
fólki, allt frá fjárfestum til
venjulegra borgara, sem er
mjög auðtrúa og ógagnrýnir.
Fólk hugsar ekki vandlega um
þessi mál vegna þess að það
veit ekkert endilega hvernig
hægt er að hugsa um þau. Eitt
af því sem ég er að reyna að
gera í bókinni er að auðvelda
fólki að hugsa um þessi mál
með gagnrýnum hætti. Ekki
neikvætt, heldur á gagnrýninn
hátt. Hvernig hægt er að vega
og meta allar þessar fullyrðing-
ar sem hlaðnar eru gífurlegri
óvissu og eru þegar verst lætur
einungis innantómir auglýs-
ingafrasar. Hluti vandans er
fólginn í að greina á milli inn-
antómra orða og raunverulegs
inntaks," segir Mike Fortun.
- Þessi nánu tengsl við við-
skiptalífið gerir fólki þarna enn
erfiðara fyrir.
„Já, og að sumu leyti er
stærðin í Bandaríkjunum
ákveðin vernd fyrir okkur, þótt
undarlegt ntegi virðast. Ef eitt-
hvað gengur ekki upp þar, þá
hefur það ekki jafn víðtæk
áhrif á efnahagslífið í heild og
hér á landi. Þannig að á smærri
stöðum er enn brýnni ástæða
fyrir fólk að fara varlega og Iíta
hlutina gagnrýnum augum,
bara vegna þess hve mistök
hafa umfangsmikil og snögg
áhrif," segir hann.
Nýju realurnar
eru góo fyrirmynd
- Þú ræddir á málþinginu um
þessar nýju reglur í Bandaríkj-
unum. Hvaða áhrif gætu þær
haft hér á landi?
„Eg vona að fólk noti þær
fyrst og fremst- sem góða fyrir-
mynd að því hvernig hægt sé að
hugsa um meðferð heilsufars-
upplýsingar, sem verða notaðar
æ meir á fjölmörgum sviðum,
bæði á sjúkrahúsum og lækna-
stofum, rannsóknarstofum og
fyrirtækjum. Þetta er ekki
spurning um að flytja einfald-
lega inn þetta líkan, heldur
nota það sem fyrirmynd og að-
laga það að aðstæðum á hverj-
um stað."
- Heldurðu að þessar reglur
geti haft einhver áhrif á starf-
semi íslenskrar erfðagreiningar
vegna þess að deCODE er skráð
fyrirtæki í Bandaríkjunum?
„Það er ekki gott að segja, en
þetta er mjög mikilvæg spurn-
ing. Sú staðreynd að þetta fyr-
irtæki er skráð í Bandaríkjun-
um, að viðskipti með hlutbréf í
því fara fram á bandarískum
verðbréfamarkaði og að fyrir-
tækið á sér samstarfsaðila í
Bandaríkjunum þá getur það
haft áhrif á það hvað deCODE
hefur heimild til þess að gera.
Ég hef ekki farið ofan í
saumana á því ennþá, en það
þarf að gera."
Tóm blekking?
- N« hefpr þú skoðað málefni
íslenskrar erfðagreiningar hýsna
vandlega. Myndirðu taka st'o
djúpt í árinni að segja hinfögru
fyrirheit þar á hæ vera tóma
blekkingu?
„Ég hef oft verið spurður að
því á ýmsum ráðstefnum hvort
deCODE sé aðeins blekkingar-
vefur eða hvort það sé ósvikið.
Svar mitt er að ekki sé hægt að
útiloka möguleikann á því að
um blekkingu sé að ræða. Þetta
er það sem er erfitt en um Ieið
undarlegt við það sem ég kalla
Promising Genomics. Að
mörgu Ieyti er nefnilega ekki
hægt að kveða upp úr um það
með fullri vissu hvort gena-
mengisfyrirtæki stendur fyrir
sínu í raun eða er bara blekk-
ingarleikur. Þetta gildir um öll
fyrirtæki á þessu sviði, hvort
sem það heitir deCODE eða
Millenium eða hvað sem er.
En þetta krefst þess að menn
skoði og greini hlutina eins
vandlega og nákvæmlega og
nokkur kostur er, kanna öll
smæstu atriðin og hvernig þau
geta hugsanlega tengst saman
og hvaða þýðingu þau geta
hugsanlega haft. Ekki vegna
þess að á endanum sé hægt að
fá svar við spurningunni hvort
fyrirtækið sé ósvikið eða tóm
blekking, heldur vegna þess að
með því að grandskoða þessi
atriði þá fær maður að minnsta
kosti betri tilfinningu fyrir því
hver áhættan er. En þarna
verður alltaf ákveðin óvissa til
staðar.
Hvað varðar deCODE, þá
hef ég einmitt lagt stund á slík-
ar rannsóknir undanfarið ár.
Ég hef ekki enn séð raunveru-
Iegar vísindalegar niðurstöður
frá fyrirtækinu sem væru al-
mennt staðfestar af samfélagi
sameindaerfðafræðinnar. Ég
hef ekki enn séð að fyrirtækið
skili raunverulegum afurðum.
En aftur á móti hef ég séð
hvernig þeir keyrðu lögin um
miðlaegan gagnagrunn á heil-
brigðissviði, hvernig tengsl þeir
hafa átt við stjórnmálamenn,
þau völd sem þeir hafa beitt
hér á Islandi til þess að ná sínu
fram. Þannig að ef ég ætti
milljón dollara núna, þá væri
það síðasta sem ég gerði við þá
að fjárfesta í Islenskri erfða-
greiningu. Aðrir hafa greinilega
tekið annan pól í hæðina," seg-
ir Mike Fortun.
-GB
4