Dagur - 20.01.2001, Blaðsíða 21

Dagur - 20.01.2001, Blaðsíða 21
21 - LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 RAÐAUGLÝSINGAR n S T Y R K I R ívrópsY'- Landsnefnd um Evrópskt tungumálaár 2001 Styrkir ESB til verkefna á Evrópsku tungumálaári 2001 Landsnefnd um Evrópskt tungumálaár 2001 vekur athygli á að síðari umsóknarfrestur um styrki framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til verkefna á tungumálaárinu er 15. febrúar n.k. Styrkupphæðin getur orðið mest 50% af styrkbærum heildarkostnaði við verkefni. Styrkupphæðir nema 10.000-100.000 evra (u.þ.b. 800.000-8.000.000 kr). Forgang hafa m.a. verkefni sem ná til fleiri en eins lands. Þeir sem geta sótt um styrki eru mennta- og menningarstofnanir, stofnanir og samtök á vegum bæjar- og sveitarstjórna, frjáls félagasamtök, rannsóknarstofnanir, aðilar vinnumarkaðarins og fyrirtæki. Skilyrði fyrir styrkveitingu eru m.a. að verkefnið, sem sótt er um styrk til, sé unnið á tímabilinu 1. júní til 31. desember 2001 og að það fullnægi vissum skilyrðum sem Evrópusambandið hefur sett. Vakin er athygli á að upplýsingar um Evrópskt tungumálaár 2001 er að finna á heimasíðu menntamálaráðuneytisins: www.mrn.stjr.is. Heimasíða framkvæmdastjórnar ESB um tungumálaárið er: http://europa.eu.int/comm/education/languages/acti ons/year2001 .html. Þar er m.a. að finna umsóknareyðublöð fyrir styrkina. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá verkefnisstjóra Evrópsks tungumálaárs 2001, Jórunni Tómasdóttur, sími: 560 9500, netfang: jorunn.tomasdottir@mrn.stjr.is og hjá Maríu Gunnlaugsdóttur, deildarsérfræðingi í menntamálaráðuneytinu, sími: 560 9500, netfang: maria.gunnlaugsdottir@mrn.stjr.is. Umsóknum ber að skila til ofangreindra. Landsnefnd um Evrópskt tungumálaár 2001 16. janúar 2001 Y M I S L E G T VIIMIXIUIVIÁLA STOFIM LJIM Verkþjálfunarsetur ? húsnæði óskast. Óskum að taka á leigu atvinnuhúsnæði 500 - 600 fm. sem hýsa mun verkþjáifunarsetur fyrir ungt fólk. Húsnæðið þarf að vera með aðkeyrsludyrum og vera möguleiki á að setja upp kennslu- og vinnustofur og nemendaaðstöðu. Tilboð berist til Margrétar Kristínar Gunnarsdóttur hjá Vinnumálastofnun, Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu, 150 Reykjavík, fyrir 25. janúar. Hún veitir jafnframt frekari upplýsingar ef óskað er í síma 515-4800. Vinnumálastofnun. A T V I N N A Leikskólar Hafnarfjarðar Leikskólakennarar óskast til starfa Vesturkot Lögð er áhersla á einfaldleika, einbeitingu, frið og festu í umhverfinu. Einnig laus staða aðstoðarleikskólastjóra. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í s. 565-0220. Hvammur Lögð er áhersla á leik, hreyfingu og tónlist. Upplýsingar gefa leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri í s. 565- 0499. Hlíðarberg Lögð er áhersla á frjálsan leik og hreyfiuppeldi. Sérstök áhersla er á samstarf leik-og grunnskóla. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í s. 565-0556. Nýr leikskóli v/Háholt Lögð verður áhersla á að efla hugmyndaflug og sköpunargáfu barnanna og að þau fái tækifæri til að endurskapa reynslu sína í gegnum leik. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í s. 860-8598 eða 585-5800. Einnig veitir leikskólafulltrúi upplýsingar í s. 585-5800. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga og FÍL/STH. Vakin er athygli á því að ef ekki tekst að ráða leikskólakennara í stöðurnar kemur til greina að ráða fólk með aðra uppeldismenntun eða reynslu. Skólafulltrúinn í Hafnarfirði Fjölbrautarskóli Suðurlands Kennsla Laus eru til umsóknar tvö hlutastörf á komandi vorönn í Fjölbrautaskóli Suðurlands. Annars vegar er um að ræða hálft starf í ferðagreinum og hins vegar vegar stundakennsla í rekstrargreinum í meistaraskóla. Nánari upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskólameistari í síma 482-2111. Umsóknir berist skólameistara eigi síðar en 26.janúar ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Skólameistari. TIL SttLU Eigum nýja Polaris VÉLSLEÐA til afgreiðslu strax: INDY XCF 440 55 hö. árg. 1999 á kr. 668.665,- INDY 500 75 hö. árg. 1999 á kr. 682.300,- INDY XC 700 125hö. árg. 1999 á kr. 865.200,- INDY Sup.Sport 65 65. hö. árg. 2000 á kr. 659.485,- INDY 340 DL 45 hö. árg. 2000 á kr. 574.400,- INDY Sport Tour 65 hö. árg. 2001 á kr. 723.670,- Árs ábyrgð. Einnig vandaður vélsleðafatnaður og fleira, svo sem hjálmar, hanskar og skór. ÁSGEIR EINARSSON EHF. Kópavogi. Sími 564-4580 FAX 564-4581 U T R 0 Ð UTBOÐ i F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í svart pípuefni og tengistykki vegna lagna við 4. áfanga gufaðveitu og skiljustöð. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar. Opnun tilboða: 7. febrúar 2001, kl. 11:00 á sama stað. F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í endurmálun í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr.1000,- Opnun tilboða: 7. febrúar 2001, kl. 14:00 á sama stað. F.h. Strætisvagna Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í 25 fullbúna lággólfsstrætisvagna. Allt að 19 vagnar 12 m langir, þar af 2 metanknúnir. Einnig 6 vagnar, 9 m langir. Útboðsgögn sem eru á ensku fást á skrifstofu okkar. Opnun tilboða: 20. mars 2001 kl. 11:00 á sama stað. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800 Bréfsími 562 2616/561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang: www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079 Hafnarfjarðarbær Útboð Bókasafn Hafnarfjarðar, Strandgötu 1 Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í að endurinnrétta Strandgötu 1, fyrir starfsemi Bókasafns Hafnarfjarðar. Verkið miðast við fullfrágengið húsnæði og felur m.a. í sér eftirfarandi: - Rif, múrbrot og endursteypur í núverandi húsnæði. - Styrkingu milligólfa með stálbitum. - Endurinnréttingu húsnæðisins með tilheyrandi milliveggjum, loftaklæðningum, gólfefnum, innréttingum, lagna-, loftræsti- og raflagnavinnu. - Gerð nýs stigahúss að austanverðu og kjallaratrappa að norðanverðu. Núverandi húsnæði er á fjórum hæðum og er alls brúttó um 1422 m2 og 4.820 m3 og nýtt stigahús verður á fjórum hæðum og verður alls brúttó um 97 m2 og 346 m3. Verkinu skal vera iokið að fullu 31. ágúst 2001. Útboðsgögn eru seld á kr. 7000 og fást afhent á skrifstofu umhverfis- og tæknisviðs, Strandgata 8-10, Hafnarfirði. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 6. febrúar 2001, kl. 11.00 Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.