Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Blaðsíða 2
14 - Laugardagur 26. október 1996
jDítgur-Œtttmm
Sunnudaga-
skólinn slær
ígegn
Tæplega 200 manns mætlu í Húsavíkurkirkju síð-
astliðinn sunnudagsmorgun og tóku þátt í starfi
Sunnudagaskólans af lífi og sál.
Hafliði Jó-
steinsson
bera hitann
og þungann
af skipulagi
og starfsemi
Sunnudagaskólans og hafa sér
til aðstoðar ungmennin
Hjálmar Boga og Kristbjörgu
Lilju auk þess sem Valmar
Valjaots sér um undirleik.
Aður en skólinn tók til starfa
á þessu hausti fór fram kynning
á vetrarstarfinu í leikskólum
bæjarins og yngstu deildum
Borgarhólsskóla. Að sögn Haf-
liða Jósteinssonar hefur sú
kynning skilað sér ótrúlega vel
því alitaf fer íjölgandi þeim sem
skólann sækja og mikill áhugi
fyrir því sem þar fer fram. „Að-
sóknin að Sunnudagaskólanum
gefur okkur vísbendingu um að
við séum að gera góða hluti og
vonandi tekst okkur að halda
áhuganum vakandi í framtíð-
inni,“ segir Hafliði Jósteinsson.
GKJ
Þessar brúður eru fastur liður á dagskrá Sunnudagaskólans. Það mátti heyra saumnál detta
þegar þær komu fram. MyndirGKj
Hlustað af athygli, Aníta Stefánsdóttir með börnin sín Ingibjörgu og Stef-
án.
Mikið var sungið í kirkj-
unni þennan morgun,
farið í helgileiki, tvær
brúður komu fram í brúðuleik-
húsi og farið var með bænir svo
eitthvað sé nefnt. Þá var eitt
barn skírt í Sunnudagaskólan-
um en það er að sjálfsögðu ekki
fastur liður.
Sr. Sighvatur Karlsson og
Fjölmenni var í Húsavíkurkirkju þegar Sunnudagaskólinn var haldinn í
þriðja sinn á þessum vetri.
Fatlaðir Siglfírðingar sækja námskeið
Hjá fullorðinsfræðslu fatlaðra á Akureyri er
fólki utan Eyjafjarðarsvæðisins nú í fyrsta
sinn boðið að sækja námskeið. Hið fyrsta var í
vikunni þegar Siglfirðingar mættu til leiks.
Sex fatlaðir einstaklingar
frá sambýli fatlaðra á
Siglufirði hafa í þessari
viku stundað nám við Fullorð-
insfræðslu fatlaðra á Akureyri
sem starfrækt er í skólanum við
Hvammshlíð 6. Fullorðins-
fræðsla fatlaðra býður upp á
námskeið fyrir fullorðið fólk
sem ekki á kost á námstilboði
við hæfi hjá öðrum skólastofn-
unum. Þetta er í fyrsta sinn sem
fólki, búsettu utan Eyjafjarðar-
svæðisins, býðst kostur á að
sækja svona nám við skólann -
og í fámennari byggðum er
fræðslu- og menntastarf fyrir
fatlaða yfirleitt frekar takmark-
að.
Mikil tilbreyting
„Þetta er mikil tilbreyting fyrir
okkar skjólstæðinga og gott fyr-
ir þá að komast í þetta nám
hér. Hér nema þau sitthvað sem
þau munu svo geta nýtt sér í
Gunnar Jens Þorsteinsson við leirmunagerð.
daglegu lífi sínu í framtíðinni.
Nei, þetta fólk hefur engrar
menntunar af þessu tagi notið
áður, þó á því væri full þörf. Ég
bind þó vonir við að menntun-
ar- og fræðslustarf gagnvart
þessu fólki verið eflt í framtíð-
inni. Þar eru ýmsir möguleikar
að opnast, s.s. með fjar-
kennslu," segir Sigurleif Þor-
steinsdóttir, forstöðumaður
sambýlis fatlaðra á Siglufirði.
Siglfirðingarnir sex hafa í
vikunni sótt ýmiskonar nám-
skeið, svo sem í sundi, leik-
rænni tjáninu, tónmennt, lestri,
leirmunagerð, leikfimi og dansi.
Þá hefur þeim einnig verið
kennt sitth'tið af hverju sem ætti
að gagnast þeim í daglegu lífi,
svo tölvunotkun, líkamshirðing
og snyrting og matreiðsla.
Menntun er
nauðsynleg
Fyrr á þessu ári sendi Svæðis-
skrifstofa um málefni fatlaðra á
Norðurlandi vestra stjórnend-
um Fullorðinsfræðslu á Akur-
eyri erindi þar sem þess var
óskað að skólinn tæki inn fatl-
aða nemendur til skammtíma-
náms af áðurnefndu tagi. Nám-
skeiðið sem Siglfirðingarnir
hafa sótt er svar við því erindi,
og á næstunni verður leitað
leiða til þess að fatlaðir Blöndu-
ósbúar og einnig fatlaðir Hús-
víkingar komi til sambærilegs
náms. -sbs.
Oddur Guömundur Jóhannsson þiggur góð ráð frá Helga Jósefssyni um
tölvunotkun.