Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Page 6

Dagur - Tíminn - 26.10.1996, Page 6
18 - Laugardagur 26. október 1996 ÍDagurJ(Enmrm Samstula konur tíðahringí sína? Er mögulegt að konur samstilli tíðahringi sína ef þær búa eða vinna saman? Ýmislegt bendir til að svo sé. Þótt konur finni ekki blæðingalykt hver af annarri er hugsanlegt að þær samstilli tíðahringi sína með hjálp þefskynsins og þá í takt við konuna sem hefur verið á „réttum slóðum", í návígi við karlmann. Tíðahringurinn. Flestar konur sem hafa deilt íbúð með vinkonum eða systrum þekkja það að tíðahringir þeirra nálgist og séu orðnir svipaðir eftir tveggja til þriggja mánaða samveru. Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á fyrirbrigðinu, þeirra þekktust er kennd við McClintock og var gerð í Bret- landi árið 1971. McClintock komst að því að konur sem eyddu miklum tíma saman hefðu tilhneigingu til að samstilla tíðahringi sína. Hún byggði rannsóknina í kringum hóp í kvennaskóla og komst einnig að því að konur sem voru reglulega í návígi við karl- menn hefðu styttri tíðahringi en hinar sem sjaldan voru innan um karlmenn. Önnur rannsókn var gerð í Bandaríkjunum árið 1977. Tek- in voru svitasýni úr handar- krika konu daglega og þau síð- an leyst upp í alkóhóli og komið fyrir á efrivör nokkurra kvenna. Var þetta gert þrisvar í viku í þeirri röð sem sýnin voru tekin og alkóhólið notað til að stilla styrk svitans og þá lyktar- innar. Tíðarhringir kvennanna sem námu sýnishornin byrjuðu þegar í stað að stilla sig eftir hring konunnar sem sýnin voru tekin af. Hreint alkóhól var not- að til samanburðar en gaf eng- in áhrif. Hversu miklu ráða hormónarnir? Mannskepnan vill trúa því að hún sé nokkuð frjáls undan hormónastjórnun og kennir taugakerfmu fremur um ef síg- ur á ógæfuhlið hins frjálsa vilja hvort sem um ræðir kynlöngun eða sveiflur í skapi. Þótt gerðar hafi verið fremur fáar rann- sóknir á lyktarskyninu er margt sem bendir til að lykt, og svo- nefnd ferómón sem berast í loftfasa, hafi áhrif á vissa starf- semi í líkamanum og þar með tíðahringinn. Þegar konur sam- stilla tíðahringi sína finna þær ekki blæðingalykt hver af ann- arri en í loftinu eru ferómón sem gamla og gamalreynda skynfærið neíið nemur. Hormón senda boð frá einum líkamshluta til annars en feró- món bera boð á milli manna eða dýra og hafa þannig áhrif á félagslega hegðun þess sem fær boðin. Ferómón eru aðallega numin með lyktarskyni og þykir öruggt að þau hafi áhrif á fjölg- unarhegðun dýra. Þegar kvenmýs eru hýstar saman hægir „estrogen" hring- ur þeirra, sem er svipaður tíða- hring kvenna, á sér og stöðvast að lokum. Ef hópurinn er látinn „Styrkleikikóninnar var fyrst og fremst fólgin í sameinuðum meydómi kórlima, líkt og samhentum tíðahring. “ (Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helgason) lykta af svita karldýrs eða þvagi hans fer hringurinn aftur af stað og þá hafa mýsnar til- hneigingu til að samstilla hring- ina. Hvað veldur samstillingunni? Þór Eysteinsson, dósent í lífeðl- isfræði við H.í, hefur Qallað um lyktarskynið í kennslu í sálar- fræði og hvaða breytingum það getur valdið í líkamanum. „í fljótu bragði er ekki auð- velt að koma auga á gildi sam- stiUingarinnar nema hvað það er rökrétt að hægja á hringnum þegar ekkert karldýr er nálægt, - þannig aukast líkurnar á að eggið nýtist síðar meir. Kannski er þetta spurning um möguleik- ann á pörun við vissar um- hverfisaðstæður og með það í huga er rökrétt að hópur kvenna stilli sig saman og verði í takt ef karl kemur á svæðið. Hann hefur þá möguleikann á að eiga samneyti við allar og ná besta árangri. En þetta eru auðvitað getgátur.“ Þór segir að það sé eitthvað í svitanum sem gerir samstillingu tíðahringa mögulega en ekki sé vitað hvað það er nákvæmlega. „Lyktarskyn nagdýra hefur að- allega verið skoðað í þessu sam- hengi en þau hafa auka lyktark- lumbru sem er sérstaklega til þess fallin að nema ferómónin í loftinu. Það er hæpið að heim- færa þær rannsóknir yfir á mennina því í nagdýrum er lykt- arskynið mikilvægasta skynfær- ið en augun í mönnum. Þróað- asti hluti heilans, heilabörkur- inn, fer næstum allur í að vinna Tíðahringir kvennanna sem námu sýnishornin byrjuðu þegar í stað að stilla sig eftir hring konunnar sem sýnin voru tekin af úr lyktarskynsáreitum hjá rottu en úrvinnsla lyktar hjá mann- skepnunni fer nánast ekkert fram í heilaberkinum heldur í eldri stöðvum heilans." Engu að síður segir Þór þá menn til sem halda því fram að það séu leyfar af auka lyktar- „Við erum þá að tala um að ferómón virki milli manna sem er líklegasta skýringin á því að konur samstilli tíða- hringi sína. “ klumbru í manninum sem starfi þá svipað og hjá nagdýrum og hafi áhrif á hormónastafsem- ina. „Við erum þá að tala um að ferómón virki milli manna sem er líklegasta skýringin á því að konur samstilli tíðahringi sína. Þetta eru getgátur en engu að síður er lyktarskynið mikilvægt í tilhugalífinu t.d. og í rauninni er það mesta furða hvað lyktar- skynið hefur mikil áhrif á atferli og tilfinningar.“ Á réttum slóðum Þór segir að til þess að komast að því hvers vegna þetta furðu- lega fyrirbrigði, samstillingin, eigi sér stað verði menn að líta neðar í þróunarskalann. „Hjá nagdýrum þárf getnaður að ganga þannig fyrir sig að lík- urnar á að afkvæmi lifi séu sem mestar. Þetta miðar allt að því Þór Eysteinsson, dósent í lífeðlisfræði, segir að þó lyktarskyn manna sé mun ófullkomnara en hjá nagdýrum séu þeir menn til sem halda því fram að auka lyktarklumbra finnist í mönnum og hafi þá áhrif á hormónastarf- semina.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.